Morgunn - 01.06.1984, Síða 61
ÁHRIF SPÍRITISMA . . .
59
sælusviðið og þangað fer allur þorri framliðinna manna
strax eftir andlátið. Einar lýsir því svo:
Eftir lýsingunum er þetta svið mjög mismunandi,
skuggalegt og gleðisnautt neðan til, þar sem þeir
menn lenda, sem mjög eru illa undir vistaskiptin bún-
ir, en verður æ viðkunnanlegra, eftir því sem ofar
dregur. Margir hafast þar við skamma stund að eins,
en ýmsir eru þar lengi. Mjög algengt virðist það vera
um þá framliðnu menn, sem gera vart við sig af þessu
sviði, að þeir tjá sig ekki mundu fáanlega til að fara
inn í jarðlífið aftur, hvað sem í boði væri, þó að þeir
að hinu leytinu dyljist þess ekki, að mörgu sé ábóta-
vant og að mikið vanti á fullsælu. Aftur á móti eru
aðrir fullir óþreyju og gremju, og sumir geta alls ekki
áttað sig á breytingunni, fyr en eftir nokkurn — mis-
jafnlega langan — tíma, og þræta harðlega fyrir það,
að þeir séu komnir út úr hinu jarðneska iífi.28)
Fyrir ofan astralsviðið er Sumarlandið svokallaða. Það
er „neðsta ríki ljósheima eða sæiustaðanna" og einna yfir-
gripsmesta lýsingin i einni setningu á tilverunni þar er „að
lífið þar sé eins og jarðlífið, ef það væri fullkomið“.29)
Einar segir að menn hagi lífi sínu þar,
/... / að einhverju mjög miklu leyti, svipað og hér.
Menn njóta sams konar gæða og unaðar, en í fyllra
og göfugra mæli.80)
Til Sumarlandsins koma margir bráðlega eftir andlátið,
sumir jafnvel tafarlaust.
Fyrir öðrum verður meiri dráttur á því, og dráttur-
inn verður auðvitað skammur eða langur eftir því,
hvað vel eða illa mönnum gengur að samþýðast þeim
heimum, sem þeir eru nú komnir inn í.^1 >