Morgunn - 01.06.1984, Blaðsíða 66
ÚR GÖMLUM MORGNI:
1. tölubl. 1962
HINN SÁLRÆNI GRUNDVÖLLUR
TRÚARBRAGÐANNA
Höfundur greinar þeirrar, sem hér fer á eftir, er Marcus
Bach, prófessor í samanburói trúarbragöa viö hásJcólann í
Iowa, USA. Prófessor Buch hefir feröast um allar álfur
heims, til aö kynna sér af eigin reynd menningu og ti'úarlif
og ritaö mikiö um ]>au efni.
öll meiri háttar trúarbrögð mannkyns eru eins og eylönd
á stórfljóti sálrænnar reynslu kynslóðanna. Sömu bylgjur
leika um strendur þeirra ailra, sömu straumar hafa sorfið
þær, sömu fyrirbrigðin liggja til grundvallar þeim. En
grundvöilur allra höfuðtrúarbragðanna er: Samféiag við
alheimsandann.
Hin sáli’æna reynsla, sem skóp trúarbrögðin á löngu
Iiðnum öldum, ætti að geta sameinað þau á vorum dögum,
því að öll byggja þau á sama grunni: Að guðleg opinberun
hafi veist mönnum, sem voru í sambandi við hið eilífa, ótak-
markaða.
I víðari merkingu er spíritisminn rannsókn á hverjum
þeim fyrirbærum, sem snerta í'ramhaldslíi' mannssálarinn-
ar. 1 þrengri merkingu táknar hann samband við lifandi
framliðna menn. Sem slíkur hefir hann verið fordæmdur
af flestum nútímaguðfræðingum og öðrum þeim, sem við
trúmál fást. Allt frá hinum frumstæðustu andaprestum
aftur í forneskju og til nútímamiðlanna hefir hin djarfa