Morgunn - 01.06.1984, Qupperneq 72
70
MORGUNN
Þar var hann til í huga Guðs og beið aðeins þess, að hinn
rétti maður kæmi til að veita honum viðtöku. Hinn rétti
maður var spámaðurinn Múhameð. Múhameðstrúarmenn
eru um 450 milljónir, og efasemdum þínum svara þeir með
þessari brennandi spurningu: „Hefði ómenntaður úlfalda-
ekill, eins og Múhameð var, getað skrifað þessa mestu bók
allra arabískra bóka, ef hann hefði ekki einfaldlega skrifað
það, sem engillinn sagði honum að skrifa?“
Guðleg opinberun, handleiðsla anda, eða spiritismi, kall-
aðu það hvað sem þú villt, en víst er, að straumur sálrænn-
ar reynslu rennur í gegn um öll trúarbrögðin.
Trúarbrögðin, eldri og yngri, eru eylönd, sem hillir undir
á úthafi sálrænnar i’eynslu kynslóðanna. Og þegar daga
mun af nýjum trúarbrögðum á nýrri öid, rísa einnig þau
eins og eylönd úr sama hafi. Og ennþá munu vegsögumenn
og leiðtogar vera þeir, sem hafa opin hug við himneskum
vitrunum, menn, sem með sálrænni sjón sjá það, sem aðrir
sjá ekki, menn, sem með hinu innra eyra geta numið lær-
dóma hinnar hvíslandi, himnesku raddar.
Ekki veit ég hvernig heimurinn lítur á mig, en mér finnst ég vera
eins og lítill drengur, sem leik mér á ströndinni. öðruhvoru hef ég
fundið eins og einn stein, sem var fægðari, og skel sem var fegurri
en önnur, en allan tímann iá haf sannleikans jafn ókannað fyrir aug-
um mínum.
StœrÖfrœOingurinn Isak Newton.