Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Side 73

Morgunn - 01.06.1984, Side 73
AUÐUR H. HAFSTEINSDÓTTIR: ÞAÐ VORU HALDNIR MIÐILSFUNDIR í BUCKINGHAM HÖLL ÞÝTT ÚR „TWO WORLDS“ Viktoriu drottningu var ekki skemmt. Hún ýtti dagblað- inu til hliðar og kallaði fyrir sig tvo menn úr hirðinni. „Vér óskum þess, að þið farið á miðilsfund,“ sagði hún. — Á sama tíma lagði 13 ára drengur af stað i skólann, allsendis grunlaus um að sá dagur kæmi, að einn valda- mesti þjóðhöfðingi heims myndi óska eftir stöðugri nær- veru hans við hirðina. Robert James Lees var fæddur miðill. Hann fæddist 12. ágúst 1849. Hann var svo skyggn sem smábarn, að ekki var hægt að láta hann vera einan í herbergi að nóttu til. Barn að aldri, var hann farinn að halda vikulega miðils- fundi fyrir fjölskyldu sína. Árið 1861 lést Prins Albert, eiginmaður Victoriu drottningar, sorg hennar var mikil. Á miðilsfundi sem haldinn var á heimili Lees skömmu eftir, féll Robert í dásvefn. 1 sambandið kom rödd sem sagðist vera eiginmaður drottningarinnar, og mælti hann svo fyrir að Victoriu drottningu yrði sagt, að honum væri fært að tala við hana í gegnum þennan barnunga miðil. Ritstjóri nokkur, sem var vinur Lees fjölskyldunnar, var viðstaddur þennan fund. Hann var svo uppnuminn að hann birti grein um fundinn í blaðinu. Það var þessi blaða-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.