Morgunn - 01.06.1984, Page 75
I>AÖ VORU HALDNIR . . .
73
hefði einungis getað verið við mann hennar. Síðan fékk
hún bréf frá hinum 13 ára gamla miðli, sem hafði skrifað
bréfið undir stjórn prins Alberts. Efni bréfsins var svo
persónulegt og þar að auki undirritað með sérstöku nafni,
sem prinsinn notaði eingöngu í bréfum til drottningarinn-
ar, að hún sendi tafarlaust eftir Lees.
Þá var komið að einni af stærstu stundum í sögu spírit-
ismans í Englandi, þegar drottningin talaði við hinn látna
eiginmann sinn í gegnum 13 ára gamlan dreng.
Hún var svo hrærð við endurfundina, að hún sagði prins
Albert að hún vildi að Lees yrði stöðugt við hirðina.
Myhanene, stjórnandi Lees í gegnum allt líf hans, bann-
aði það, augsýnilega án þess að skeyta um að hann var
að mótmæla einum valdamesta þjóðhöfðingja heims. En
prinsinn bjargaði málunum með þvi að benda drottning-
unni á annan miðil, — drenginn sem hafði borið byss-
u.rnar hans á Balmoral landareigninni, við veiðar. Það var
John Brown, sonur þjóns í Balmoral höllinni. Myhanene
bætti við, að ef John Brown mistækist einhverntíma að
ná því sem drottningin óskaði eftir, myndi hann leyfa að
miðillinn hans kæmi ef sent yrði eftir honum. Victoria átti
eftir að senda eftir Lees alls átta sinnum. John Brown
dvaldi eftir þetta stöðugt við hirðina. 1 gegnum miðilsam-
band. hans, héldu drottningin og maður hennar stöðugu
sambandi. Prinsinn hélt áfram að gefa henni góð ráð, varð-
andi stiórnun ríkisins, allt til dauða hennar.
Lees varð fulltiða og gerðist biaðamaður og rithöf-
undur. Hann kvæntist 1871, hann réðst að „Manchester
Guardian" og aðstoðaði Sir George Newnes, við útgáfu á
hinu vinsæla vikuriti hans, ,,Tit-Bits“. Hann var í vinfengi
við Gladstone og þekkti vel Disraeli, Temple erkibiskup
og aðra leiðandi menn í þjóðfélags- og andans málum.
Þekkt ritverk eftir hans eru: „Through the Mists“, „The
Life Elysian" og „The Gate of Heaven“. Þau voru marg-
gefin út og þýdd á margar tungur. Hann sagði að efni bók-