Morgunn - 01.06.1984, Qupperneq 76
74
MORGUNN
anna væri lesið sér fyrir af framliðnum. f bréfi til G.
Maurice Elliott, segir hann:
„Þegar þessar bækur urðu til, voru hinir himnesku gest-
ir jafn áþreifanlegir og ég sjálfur. Þeir gátu fært til hús-
gögn, litið í bækurnar mínar, leikið á hljóðfæri og yfirleitt
hagað sér eins og ég gerði sjálfur.
Oftsinnis hef ég gengið götur Lundúna, með einhverjum
þeirra. Þeir hafa ferðast með mér í lestum, þeir hafa hitt
mig og jafnvel talað við vini mína, á sýningum og gengið
með mér á ströndinni.“ —
Victoria drottning pantaði sex sérinnbundin eintök af
bók hans „Through the Mists“, sem hún gaf meðlimum
konungsfjöiskyldunnar.
Skömmu fyrir dauða sinn, sendi hún eftir Lees, þakkaði
honum það sem hann hafði gert fyrir hana, og bauð hon-
um enn einu sinni lífeyri, sem hann afþakkaði nú sem
áður fyrr.
Eva Lees, dóttir miðilsins, sagði J. Arthur Findlay, að
drottningin hefði aldrei skrifað föður hennar, heldur sent
sérstakan sendiboða. Var það gert vegna hleypidóma gegn
spíritisma við hirðina. Findlay skrifar í bók sinni „The
Curse of Ignorance“, (Bölvun fáfræðinnar): Viktoria
drottning skráði hjá sér allt sem kom fram á fundum
bæði hjá John Brown og Lees.
Dr. Davidson, djákni af Windsor, sem seinna varð erki-
biskup af Cantaraborg, var alltaf fjandsamlegur gagnvart
konunni sem bar titilinn „Verndari trúarinnar“, en var
svo ekki nógu strangtrúuð. Hún fór ekki eftir ráðleggin-
um hans, um að hætta að hafa samband við eiginmann
sinn í gegnum miðla, og ól fjölskyldumeðlimi upp í trú á
spíritisma. Þannig að í gegnum tíðina hefur konungsfjöl-
skyldan setið fundi hjá ýmsum frægustu miðlum heims.
Eft'ir dauða John Browns ritaði drottningin eftirmæli um
hann og óskaði eftir að fá það birt. Þar hafði hún skýrt
nákvæmlega frá fundum sínum hjá miðlinum. Dr. Davidson
og Sir Henry Ponsonby, einkaritari hennar, harðneituðu