Morgunn - 01.12.1986, Side 9
þar aðallega skilið á milii, en sú kenning er ein af undir-
stöðum guðspekinnar.
1 fyrsta hluta þessarar ritgerðar3 er gerð grein fyrir
menningarlegum og félagslegum forsendum fyrir þeim
átökum um guðfræðileg efni, sem leiddu til þess að frjáls-
lynda guðfræðin náði öruggri fótfestu meðal guðfræðinga
í Reykjavík um aldamótin. Þrátt fyrir það að frjálslynda
guðfræðin (þýska) leit yfirleitt allt öðrum augum á hin
svokölluðu dularfullu fyrirbæri en spíritistar, þá var hún
að vissu leyti forsenda fyrir framgangi spírtistmans, a. m.
k. sem fjöldahreyfingar. Um þetta verður fjallað nánar hér
á eftir, en nauðsynlegt er að ræða þetta atriði lítillega hér
í byrjun. Frjálslynda guðfræðin gróf undan aldagamalli trú
á tilvist helvítis og eilífa útskúfun. Hún gaf sér sem forsendu
að framvinda vísindanna væri ekki í mótsögn við fram-
gang kristinnar trúar, heldur gæti þvert á móti gegnt þar
jákvæðu hlutverki. Frelsi einstaklingsins, frelsi vísinda-
mannsins og guðfræðingsins væru samhljóða anda og boð-
un kristindómsins og forsenda þess að komast að innsta
kjarna guðlegrar opinberunar í Kristi. Hér gegndu biblíu-
rannsóknirnar lykilhlutverki. Guð væri fyrst og fremst
góður og kærleiksrikur — óendanlega kærleiksríkur. Við
þessar kringumstæður voru forsendur fyrir nýjum skiln-
ingi á dularfullum fyrirbrigðum og andaverum. Hvers
vegna skyldu andar og dularfull öfl vera af hinu vonda, ef
helvíti var ekki lengur til og kærleikur Guðs óendanlegur?
Fyrir marga varð frjálslynda guðfræðin undanfari spíri-
tismans. Ekki var Jón Helgason prestaskólakennari í þeim
hópi, en hann var sá ,er endanlega hóf þá guðfræðistefnu
til vegs og virðingar í íslensku kirkjulífi. Hann vék að
atriðum eins og andlegu frelsi, sannleiJcsleit og mikilvægi
mannlegs persónuJeika þegar í fyrirlestri um kenningar-
frelsi presta á prestastefnu árið 1899. Ekki var sá fyrir-
lestur birtur á prenti, en ítarlegt ágrip birtist i blaðinu
ísafóld. Eins og siðar mun að vikið, er það varla tilviljun,
3. Saga XVII 1980, bls. 193 og áfram.
MORGUNN
7