Morgunn - 01.06.1993, Blaðsíða 15
MORGUNN
þjóðfélagsmál og vandamál sam-
tímans. Leiðtogar þjóðkirkjunnar
og guðfræðideildarinnar hafa
heilaþvegið prestastétt landsins
síðustu áratugina svo mjög að það
gengur guðlasti næst að nefna í
sömu andránni Jesú eða Pál post-
ula og mögulegar og líklegar mið-
ilssýnir þeirra sem og aðra miðils-
hæfileika beggja.
Með öðrum orðum þá hafa
þessir tveir andlausu hrímþursar
íslensks samfélags, Háskólinn og
lútersk-evangelíska þjóðkirkjan,
tekið höndum saman og komið
því svo fyrir að sálarrannsókna-
hreyfing Islands er ekki svipur hjá
sjón í dag miðað við það sem hún
var í byrjun aldarinnar. Þá voru
alvöru sálarrannsóknir stundaðar í
Tilraunafélaginu eldra á miðils-
starfi Indriða miðils af þeim
Einari H. Kvaran og prófess-
orunum Haraldi Níelssyni, í guð-
fræði, og Guðmundi Hannessyni,
í læknisfræði. Nú er því öldin
önnur enda býr Gaukur ekki leng-
ur á Stöng.
I þriðja lagi, sem skýring á því
hvers vegna við höfum farið
Lára Agústsdóttir miðill.
Þrátt fyrir að Lára hefði
stundað miðilssvik, eða
réttara sagt miðilsýkjur
með gardínudulunum sem
svifu á rennibrautum í
loftinu, og verið dœmd
opinberlega fyrir hér í
Reykjavík, þá breytir það
engu um það að hún var
einn besti miðill
Islendinga á 20. öldinni.
Líklega nœst á eftir
Indriða. Hún hafði
töluverða hœfileika í átt til
líkamn ingafyrirbœra og
urðu margir vitni að því er
svipir af látnu fólki sáust
greinilega á fundum hjá
henni.
svona halloka í opinberu umræð-
unni, og verið svona rækilega úthýst úr öllum umræðum
til dæmis í Háskóla Islands, þá höfum við sjálf sofnað
illilega á verðinum í viðleitni okkar sjálfra og félaga okkar
13