Morgunn - 01.06.1993, Page 31
MORGUNN
leitinni hef ég stundum upplifað brotabrot af slíku ástandi
þegar mér hefur tekist að handsama hamingjuna augnablik
í senn.
Með þessa tilgátu um tilgang og eðli lífsins að
leiðarljósi hef ég skemmt mér við að skoða tilveru mína.
Það eina sem skiptir máli í því að takast á við þessa tilgátu
er ekki hvort hún veiti mér trúarlega sannfæringu um
tilvist Guðs eða andlegs veruleika, heldur það að hún
skapar nýtt sjónarhom þar sem ég sem einstaklingur get
skoðað líf mitt og athafnir, siðferðilega breytni mína og
veru í heiminum. Hún verður leið til skilningsauka. Það
að skoða tilveru sína undir sjónarhorni slíkrar tilgátu er
leið til þess að fullnægja þörf okkar fyrir að hafna því
viðtekna, til þess að geta endurskapað skilning okkar á
tilverunni á lifandi og merkingarbæran hátt. Mikilvægasti
undirtónninn í slíkri skoðun er að ég held sá, að hún knýr
okkur til þess að horfast í augu við siðferði okkar.
Siðferðið hefur tilhneigingu til stöðnunar; það þarfnast
reglulegrar endursköpunar og endurskoðunar til þess að
haldast virkt og gilt í samfélagi okkar. Ég er að gera því
skóna að tilgátur eins og sú sem ég nefndi hér að framan,
að hver og einn sé ábyrgur gerða sinna og velji sér þær
aðstæður sem hann þarf að glíma við í lífinu, knýi á um
lifandi og virkt siðferði. Ríkjandi siðferði hverju sinni
innrætir okkur viðhorf og gildismat. Það hefur áhrif á mat
okkar á sjálfum okkur. Vegna þessarar innrætingar er þörf
íyrir sífellda endursköpun og tilgátur af þessu tagi geta
rækt þetta hlutverk.
Ég lagði upp með að segja að lífsviðhorf mótist af
glímu okkar við eitthvað í tilverunni sem er ósegjanlegt.
Til staðar er samkomulag um það hvemig tiltekinn hluti
tilverunnar verður skýrður, en lífsviðhorf okkar verður til
29