Morgunn


Morgunn - 01.06.1993, Side 32

Morgunn - 01.06.1993, Side 32
MORGUNN þar sem samkomulag okkar um ásýnd hlutanna þrýtur. Lífsviðhorfin myndast á vettvangi þess sem er ósegjan- legt, því í eðli sínu eru lífsviðhorf það sem skilur einn mann frá öðrum í skoðunum og fjalla því ekki um það sem við erum sammála um. Ekki þar fyrir að öll lífs- viðhorf allra manna séu ósamþættanleg, öllu heldur ríkir ekki um þau almennt samkomulag. Þessu til viðbótar er ég að halda því fram að við höfum tilhneigingu til þess að hafna öllum viðteknum skoðunum, vegna þess að innra með okkur búi einhvers konar þrá- hyggja sem hvetur okkur til þess að öðlast reynslu af fyrir- bærunum upp á eigin spýtur. Slík reynsla sé nauðsynlegt skilyrði fyrir skilningi á viðfangsefnunum. Trúarhugmyndir okkar eru oftar en ekki fyrirferðar- mesti hluti lífsviðhorfa okkar. Þær eru afrakstur viðleitni sem er jafngömul mannkyninu til þess að skýra hið ósegjanlega sem liggur handan þess sem skýrt verður fyrir tilstilli skynseminnar. Vegna þessa eðlis síns er engin ein trúarhugmynd annarri æðri eða rétthærri, eins og gjaman er þo látið í veðri vaka. Þörf okkar fyrir að hafna því við- tekna til þess að geta endurskapað skilning okkar á til- verunni á lifandi og merkingarbæran hátt á því ekki hvað síst við um trúarbrögð, vegna þess að við viljum sjálf öðlast reynslu af veruleika trúarinnar. / Astundun hverskyns dulhyggju eru ekkert annað en viðleitni í þessa átt. Þær eru vettvangur til mótunar lífs- viðhorfa og sem slíkar allrar athygli verðar, en þær eru ekki og verða aldrei annað en ein leið af mörgum til þess að nálgast það sem er ósegjanlegt í tilverunni. Sérhver ígrundun þess ósegjanlega er leið til þess að öðlast skilning og fótfestu í lífinu og þar eru allar tilgátur af þessum toga jafngildar en sérhver maður þarfnast allrar / þeirrar aðstoðar sem möguleg er í þessari rannsókn. Eg hélt því fram hér í upphafi að heimspekin væri hæfust til 30

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.