Morgunn - 01.06.1993, Page 36
MORGUNN
eitthvað sem við erum ekki. Þetta eru allt stjórntæki.
Annað hvort reynum við að stjórna umhverfi okkar,
fólkinu sem við vinnum með, fólkinu sem við elskum eða
við reynum að stjórna okkar eigin tilfinningum og ótta.
Allar þessar tilraunir til að stjóma eru kallaðar viðbrögð.
Viðbrögð em leiðir okkar til að komast hjá að upplifa lífið
beint og tilraun til að sleppa við sársaukafulla reynslu. Líf
með viðbrögðum er líf án meðvitundar. Því meir sem við
bregðumst við lífinu, því meir styrkjum við hinn
ómeðvitaða ótta sem hindrar okkur í að komast að kjama
okkar. Við eflum vanmáttarkennd okkar gagnvart
vandamálum.
Hvemig öðlast þú styrk?
Fyrsta skrefið í að öðlast styrk er að gera sér grein fyrir að
uppspretta hamingjunnar er innra með okkur, að enginn
getur leyst vandamál þín nema þú sjálfur. Næsta skref er
að hætta að reyna stjórna atburðum lífs þíns, vegna þess
að eina leiðin til að læra af sérhverjum atburði er að
streitast ekki á móti. Og það kostar það að hætta allri
ásökun, sektarkennd, afneitun og ótta. Að taka ábyrgð
þýðir að þú ákveður að upplifa á meðvitaðan hátt allt það
sem þú hefur áður flúið frá, forðast, leitt hjá þér eða bælt.
Það eru þessi höft, bælingin og afneitunin sem hafa haldið
þér föngnum, en ekki hinir sársaukafullu atburðir. Ef þú
getur upplifað bældar tilfinningar þínar til fullnustu, mun
það gera þig frjálsan. Með meðvitaðri athygli getur þú rutt
burt hindrunum sem einangra þig frá kjarna þínum. Það
em til leiðir sem hjálpa okkur að verða meðvitaðri. Ein
slík leið er Kripalujóga. Það inniheldur hinn sanna tilgang
jóga, sem er að leysa okkur undan oki sjálfskapaðra
þjáninga okkar. Með þessu kerfi læmm við fyrst að halda
stöðum á réttan hátt. Þegar við höldum stöðunni áfram,
byrjum við að finna fyrir orkustíflum í líkamanum. Við
34