Morgunn - 01.06.1993, Side 37
MORGUNN
finnum fyrir þessum stíflum sem áhrifum, kannski óþægi-
legum eða sársaukafullum. Minningar og tilfinningar geta
komið upp á yfirborðið. Ef við erum opin og dæmum ekki
þessa reynslu, festumst ekki í henni eða reynum að breyta
henni, munum við upplifa orkulosun sem er frelsandi,
styrkjandi og fullnægjandi. Þú getur notað þessa aðferð í
daglega lífinu. Á meðan þú ert að læra að verða meðvit-
aður, munu atburðir halda áfram að kalla fram viðbrögð.
Þessi frumviðbrögð eru í sjálfu sér ekki vandamálið. Það
er það sem þú gerir við þau sem skiptir sköpum.
Að „upplifa“ fremur en að sýna viðbrögð
Þegar þú lendir í ákafa tilfinningaviðbragða þinna, er best
að beina athyglinni að líkamanum, finna fyrir líffræði-
legum áhrifum tilfinningaástandsins svo sem reiði,
afbrýðisemi eða sársauka. Finndu breytingamar sem verða
við þetta tilfinningaástand, t.d. spennu í líkamanum,
orkuflæðið, eða ójafna og grunna öndun. Taktu eftir öllu
þessu og slakaðu á.
Andaðu djúpt. Þetta er kallað að „upplifa“ að bregðast
ekki við eða dæma reynsluna. Þegar þú „upplifir“ við-
brögð eins og þau gerast í huga þínum og líkama, styrk-
irðu þau ekki með því að trúa þeim, né dæma þau röng og
reyna að bæla þau. Þú fylgist einfaldlega með þeirn,
upplifir þau til fullnustu, viðstaddur en hlutlaus. Á þennan
hátt eyðast viðbrögð þín. Mótþrói þinn við raunveruleik-
anum hverfur. Og þú getur leyft þér að upplifa til fullnustu
það, sem þú hefur verið að fela á bak við viðbrögðin. Þar
með lýkurðu hinni óloknu reynslu og leysir þig undan
áhrifum hennar á sál og líkama. En ef þú trúir á viðbrögð
þín, lifir þig inn í þau, nærir þau með tilfinningaþrungnum
hugsunum og réttlætingum, magnarðu aðeins viðbrögðin.
Ef þú reynir að réttlæta þig og telja þér trú um að þér eigi
ekki að líða á þann hátt sem þér líður, þá bælir þú einungis
35
L