Morgunn - 01.06.1993, Blaðsíða 41
MORGUNN
rannsóknir. Síðan ferðaðist hann um heiminn og fékk í lið
með sér hóp vísindamanna frá mörgum löndum, - lækna,
sálfræðinga, geðlækna, eðlisfræðinga, efnafræðinga, líf-
fræðinga, lífeðlis- og lífefnafræðinga og fleiri innan hinna
ýmsu sviða vísinda auk rafeindafræðinga - sem allir voru
fúsir til að takast á hendur rannsóknir og ferðalög í þessu
sérstaka markmiði. Allt voru þetta vísinda- og rannsókna-
menn sem þekktir voru hver á sínu sviði og má þar td.
nefna dr. William Tiller við Stanfordháskólann í Banda-
ríkjunum, dr. Norman Shealy, prófessor við háskólann í
Wisconsin og Minnesota, sir Kelvin Spencer, dr. Lyall
Watson og marga fleiri sem of langt yrði að telja hér.
I fyrstu beindust rannsóknir Meeks og samstarfsmanna
hans að svonefndum heilendum eða andalæknum og
hæfileikum þeirra til heilunar og uppgötvuðu þeir margt
furðulegt í því sambandi. Flestir heilendanna töldu að
maðurinn hefði tvo líkama því að auk hins efnislega væri
annar svonefndur ljósvakalíkami og að það væri einmitt
sá líkami sem mestu máli skipti þegar um heilbrigði eða
sjúkdóma væri að ræða. Algengt var að kalla þennan
líkama andlega líkamann sem virtist vera hið sama og
Rússar nefndu bioplasma-líkamann og tekist hafði að
ljósmynda. Hinir andlegu læknendur töldu að framliðnir
læknar aðstoðuðu þá við lækningarnar - sumir sögðust
jafnvel sjá þá og heyra þá tala. Margir heilendanna höfðu
litla sem enga menntun en náðu þó frábærum árangri í
laekningum sínum eins og Meek og samstarfsmenn hans
komust að raun um. Sannanir fyrir framhaldslífi voru þó
þær rannsóknir sem áhugi Meeks og samstarfsmanna hans
beindust fyrst og fremst að. Og þeir hófu brátt að smíða
tæki - rafeindabúnað - sem mögulega gæti komið á
sambandi við þá sem famir væru burt úr þessum heimi.
✓
I Evrópu hafði hópur rannsóknarmanna verið að vinna
við að þróa tækni þar sein raddir látinna virtust koma fram
39