Morgunn


Morgunn - 01.06.1993, Side 45

Morgunn - 01.06.1993, Side 45
MORGUNN orku atómsins á mismunandi stigi, en með því að fara út fyrir þennan viðurkennda ramma náttúrulögmálanna er þessum „framúrstefnu“- vísindamönnum mögulegt að fara inn á rannsóknasvið á óefnislegum eiginleikum mannsins, orkusvið hans og rannsaka þetta á nýjum grundvelli. Hjá þeim hefur skapast grundvöllurinn að þeim nýja skilningi að heilinn sé rafeindafræðileg samsetning, líkt og tölva, en stjórnandi hennar óefnisleg eining sem notar heilann aðeins tímabundið, þ.e. hugurinn sé raunverulega óháður heilanum og haldi áfram að starfa eftir að heilinn er orðinn óvirkur. Metascience lætur í té þann skilning að orku slíkrar vitundar eða huga sé ekki hægt að skilgreina innan ramma þeirra vísinda sem byggjast á viðurkenndum orkusviðum vísindanna í dag. Samkvæmt þessum nýju viðmiðunum veitist mögu- leiki á að skilja á annan hátt en áður þann raunveruleika sem tími og rúm fela í sér því að hér skapar ljóshraðinn ekki lengur þau takmörk sem miða verður við þegar um er að ræða fjarlægðir í tíma og rúmi eða önnur svið til- verunnar. Hin nýja eðlisfræði - skammtafræðin - er í dag að nálgast þessi viðhorf og sumir eðlisfræðingar telja raunar að við stöndum á þröskuldi stórkostlegra upp- götvana til skilnings á eðli alheimsins og stöðu mannsins innan hans. Einn þeirra er David Bohm sem telur efnið vera eins konar frávarp frá öðrum og æðri veruleika en sá veruleiki sé hin raunverulega undirstaða efnisheimsins. Þegar hér er komið er ekki ólíklegt að lesandann sé farið að gruna hvort verið geti að hér séum við raunverulega komin að hinu sanna upphafi allra æðri trúarhugmynda um að lífið sé eilíft og að baki búi annar og æðri veruleiki - sem við erum vön að kalla Guð? í bók sinni skýrir Meek frá þeim niðurstöðum sem rannsóknir hans og samstarfsmanna hans hafa leitt í ljós og gerir skilmerkilega grein fyrir 43

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.