Morgunn


Morgunn - 01.06.1993, Side 50

Morgunn - 01.06.1993, Side 50
MORGUNN í viku og gefur það sem hún kallar darshan og pranam. Hina þöglu gjöf friðar og ljóss. Hún hefur valið að kenna í þögn. Eg vitna í Móður Meeru: „Fólk vill hlusta á fyrirlestra; ég gef því þögn. Til þess að hugurinn fái blómstrað verður hann að fara handan þess sem hann þekkir. Mín leið er að gefa aðeins kjarnann, guðdóminn, ekki er þörf á öðru.“ Hver og einn fær aðeins það sem hann þarf. Paramatman er þögull, Guð er þögull. Þögnin er uppspretta alls. Sönn alsæla er án orða. (Paramatman hefur verið þýtt sem „sál alheimsins“.) Ljós Paramatman er alls staðar, í allri sköpun, á öllum tímum. Móðir Meera segir að það hafi aldrei verið notað áður og það sé aðeins á færi þess sem er avatar. Hún biður til Paramatman að hún megi nota það. Hún kom hingað til að virkja þetta ljós. Því að þótt það sé alls staðar og í öllu er það líkt og rafmagnið; til þess að nýta það verður maður að vita hvernig á að virkja það. Þetta er eini tilgangurinn með starfi hennar. Til þess kom hún - til að opna hjörtu okkar fyrir ljósinu. Hluti af starfi Móðurinnar er að uppfylla þarfir og þrár manna vegna þess að mikilvægt er að búa yfir friðsæld og hamingju í andlegri iðkun. Ekki þarf að hafa áhyggjur af iðkuninni meðan þetta tvennt ríkir. Þeirri tilhneigingu Vesturlandabúa að halda að andlegur þroski komi aðeins gegnum þjáningu og kvöl svarar Móðir Meera: „Hvar er sá sem hefur þjáðst og grátið og þess vegna fundið Guð? Þjáningin getur snúið manninum að Guði en getur ekki ein og sér leitt hann að Guði. Það eru ýmsir sem hafa fundið Guð gegnum söng og hlátur. Þeirra leið er leið gleðinnar.“ Hún talar um mikilvægi þess að finna gleðina innra með sér, því að hún sé varanleg. Ánægja aftur á móti er stundleg, hún kemur og fer og endist álíka lengi og það 48

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.