Morgunn


Morgunn - 01.06.1993, Side 51

Morgunn - 01.06.1993, Side 51
MORGUNN tekur að borða gómsætan ávöxt. Hún segir að ekki sé þörf á að iðka formlegar trúarathafnir heldur að framkvæma heilshugar það sem við gerum; þá finnum við gleðina. Hún leggur áherslu á að við lifum okkar daglega lífi með Guði. Ef takmarkið er að finna Guð gegnum gleðina þá finnum við leiðina. Allt er guðlegt - það er engin tví- skipting í andlegt annars vegar og veraldlegt hins vegar. Það eina sem skiptir máli er að sinna störfum sínum og skyldum af heilum hug. Gleðin er varanleg fullnægja sálarinnar. Sjálf sinnir hún þeim daglegu störfum sem til falla heima hjá sér og sýnist ósköp venjuleg. Hún bakar, saumar, dundar í garðinum og hefur meira segja gaman af því að horfa á sjónvarp. Móðir Meera tekur á móti öllum leitendum, óháð trúarbrögðum þeirra og skoðunum. Ég vitna aftur í hana: „Ég kom til að segja að allar brautir eru jafngóðar og leiða allar til guðdómsins, þess vegna er mikilvægt að menn beri virðingu fyrir trúarbrögðum og leiðum hver annars. Það geta allir komið til mín, fólk af öllum trúar- brögðum - ég hjálpa því að muna eftir Guði og færi því frið og hamingju þegar það á í erfiðleikum.“ Móðir Meera boðar því enga sérstaka leið heldur er hér komin til að veita öllum náð og kraft hvaða leið sem þeir fara. Hún leggur áherslu á að mikilvægt sé að trúa af öllu hjarta án tillits til nafns þess sem trúað er á. Hún líkir guðdómnum við hafið. Öll trúarbrögð eru ár sem renna til sjávar. Sum fljót renna í bugðum. Því ekki að leita beint til hafsins? Darshan Upp eftir líkama manneskjunnar liggja örfínir þræðir, frá tám og upp á höfuð. Þessir þræðir eru fíngerðari en hár og á þeim eru litlir hnútar eða hnökrar hér og þar. Guðdóm-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.