Morgunn - 01.06.1993, Page 51
MORGUNN
tekur að borða gómsætan ávöxt. Hún segir að ekki sé þörf
á að iðka formlegar trúarathafnir heldur að framkvæma
heilshugar það sem við gerum; þá finnum við gleðina.
Hún leggur áherslu á að við lifum okkar daglega lífi með
Guði. Ef takmarkið er að finna Guð gegnum gleðina þá
finnum við leiðina. Allt er guðlegt - það er engin tví-
skipting í andlegt annars vegar og veraldlegt hins vegar.
Það eina sem skiptir máli er að sinna störfum sínum og
skyldum af heilum hug. Gleðin er varanleg fullnægja
sálarinnar. Sjálf sinnir hún þeim daglegu störfum sem til
falla heima hjá sér og sýnist ósköp venjuleg. Hún bakar,
saumar, dundar í garðinum og hefur meira segja gaman af
því að horfa á sjónvarp.
Móðir Meera tekur á móti öllum leitendum, óháð
trúarbrögðum þeirra og skoðunum. Ég vitna aftur í hana:
„Ég kom til að segja að allar brautir eru jafngóðar og
leiða allar til guðdómsins, þess vegna er mikilvægt að
menn beri virðingu fyrir trúarbrögðum og leiðum hver
annars. Það geta allir komið til mín, fólk af öllum trúar-
brögðum - ég hjálpa því að muna eftir Guði og færi því
frið og hamingju þegar það á í erfiðleikum.“
Móðir Meera boðar því enga sérstaka leið heldur er
hér komin til að veita öllum náð og kraft hvaða leið sem
þeir fara. Hún leggur áherslu á að mikilvægt sé að trúa af
öllu hjarta án tillits til nafns þess sem trúað er á.
Hún líkir guðdómnum við hafið. Öll trúarbrögð eru ár
sem renna til sjávar. Sum fljót renna í bugðum. Því ekki
að leita beint til hafsins?
Darshan
Upp eftir líkama manneskjunnar liggja örfínir þræðir, frá
tám og upp á höfuð. Þessir þræðir eru fíngerðari en hár og
á þeim eru litlir hnútar eða hnökrar hér og þar. Guðdóm-