Morgunn - 01.06.1993, Blaðsíða 61
MORGUNN
fyrirfinnast ótal mismunandi vitsmunaverur sem vinna að
framþróun lífsins. Þannig eiga allar lífverur, jafnt plöntur,
dýr og menn, sér hjálparverur. Rétt eins og menn eiga sér
leiðbeinendur í andanum, eiga plöntur sér hjálpendur sem
liðsinna þeim við að breytast og þróast til nýrra forma,
sem leitast við að ná meiri fullkomnun og hærra vits-
munastigi. Þetta á við um alla framþróun lífs, - hún á sér
andlegan bakhjarl. Manneskjan getur stundum skynjað og
skipt við þessa anda náttúrunnar en þeir eru meira í ætt
við astralsviðin en þið eruð og þess vegna ekki beinlínis
efniskenndir. Fólk sem skynjar astralsviðin skynjar því
þessar verur mjög gjaman líka. Það kemur jafnvel fyrir að
sumir einstaklingar eiga mjög auðvelt með að hafa
samskipti við þessar verur en þær hafa ekki minnsta áhuga
á að valda ykkur tjóni eða skaða. Hins vegar hafði
Shakespeare nokkum veginn rétt fyrir sér í leikriti sínu,
Draumur á Jónsmessunótt, þegar hann dregur upp þá
mynd af þessum verum á þann hátt að þær stríði og gantist
við mennina til þess að skemmta þeim og gleðja þá.
Þessar verur eru gjamar á að stríða og gantast til þess að
draga úr alvarleika tilveru mannanna. Tökum dæmi:
Hugsum okkur einstakling sem haldinn er heljartökum af
aðalhindrun sinni. Verurnar beita þá brögðum sem sér-
staklega eiga við til þess að losa þessi tök. Gerð aðal-
hindrunarinnar skiptir miklu máli hér fyrir þau viðbrögð
sem við eiga hverju sinni. Upplifun viðkomandi ein-
staklings af því sem hendir hann verður gjaman neikvæð
vegna þess að það sem álfarnir eða verurnar eru að pota í
er það sem hverjum persónuleika er heilagast: Aðal-
hindrunin í lífinu.
Annað er það sem við viljum nefna varðandi þessar
verur snertir Island sérstaklega. Þeir staðir eru til á
landinu ykkar þar sem þeir eru greinilega einhvers konar
gæslumenn viðkomandi svæðis. Þetta er vegna þess að á
59