Morgunn - 01.06.1993, Síða 71
MORGUNN
þægilegt, í raun hreint og beint ógnvekjandi. Þó upplifði
hann stundum allt að því þægileg áhrif, að tímunum
loknum. Varfæmisleg tilfinning sameiningar sagði honum
að verið væri að greiða úr flækjum innri bælingar hans.
Nú skýrðist óðum hvers vegna fimmtán ára nákvæm
sálgreining hafði ekki borið árangur. En hvernig átti
Michael eða þá sérfræðinga sem hann leitaði til að renna
grun í að mörg vandamála hans voru sem ókleifur múr,
því þau ættu rætur að rekja til fyrri jarðvista en ekki
bamæsku hans?
Líkt og maður sem hreinsar stóra glerrúðu með
tannstöngli og bómullarhnoðra, hreinsaði dr. Whitton
skjáinn sem sýndi löngu grafnar minningar Michaels og
reyndi að gera þær ljóslifandi á ný. Hann var fastráðinn í
að kalla ekki aðeins fram, heldur einnig skilgreina þennan
átta hundruð ára gamla Michael Gallander. Þótt það tæki
langan tíma að skýra myndina af lífi Hildibrandts, var dr.
Whitton þess meðvitaður frá upphafi að hann var að fást
við einstakling sem var fær um að beita ótrúlegri
illmennsku...
Hildebrandt tók sem liðsstjóri þátt í þriðju
krossferðinni, árið 1189, þegar hann var þrjátíu og
eins árs gamall. Þessi krossferð bar hann í eyði-
mörk nálœgt Acre í Palestínu. Hinn stolti Germani,
skrýddur snjóhvítum klæðum með svörtu kross-
marki, bölvar hitanum um leið og hópur arabískra
kvenna er leiddur fyrir hann, til að biðja sér lífs. En
kveinstafir þeirra hafa engin áhrif á Hildebrandt,
sem horfir með vanþóknun á fangana. Umhverfis
hann í eyðimörkinni, gefur hvarvetna að líta
herklœði fallinna félaga hans, sem látið höfðu lífið í
orrustunni. Þessir hugdjörfu tryggu menn höfðu
verið honum sem brœður og hann langar mest að
69