Morgunn - 01.06.1993, Page 84
MORGUNN
Frekari spumingar leiddu í ljós að sál Michaels fékk í
millilífinu leiðbeiningar um að reyna - hversu hörð sem
hin jarðneska refsing yrði - að greiða úr flækjunni sem
hafði eyðilagt svo mikið og orsakað ringulreið í svo
mörgum lífum. Dagskrá þessa lífs gerði því ráð fyrir
kynferðislegum áföllum auk ásetnings um að losa sig við
kreddubundnar trúarskoðanir. Ef allt færi eftir ráðagerð-
inni yrði næsta líf erfitt en engu að síður það líf sem skipti
sköpum og sneri við dæminu um sífellda söfnun
karmaskulda.
Næstu dáleiðslutímar áttu eftir að reynast Michael
Gallander þeir erfiðustu þótt hann væri nú orðinn gamal-
reyndur á þessu sviði. Með þá fullvissu að vopni, sem
vitneskjan um millilífin veitti honum, fór hann að kynna
sér - oft mjög hikandi og aldrei viljugur til þess - tímabil
stóráfalla í lífi Juliu Murchinson. Hún fæddist inn í
fátæka, guðhrædda fjölskyldu í sveitahéruðum Kentucky.
Hvað eftir annað valt líkami Michaels til og frá á gólfinu
meðan Michael horfðist í augu við það sem hann langaði
ekki til að muna. Öskrandi, grátandi og mótmælandi með
röddum sem spönnuðu allt frá mjóróma rödd lítillar telpu
til raddar ungrar konu, rifjaði hann upp atburði úr hinni
stuttu en afgerandi tilvist Juliu...
Eftir að móðir hennar deyr langtfyrir aldurfram er
Julia alin upp af föður sínum sem er drykkjurútur
sem lemur hana og kvelur. Hann nauðgar henni
þegar hún er aðeinsfimm ára að aldri og hún hœlir
allar minningar um atburðinn í hugskoti sínu -
1915 var einmitt árið, sama ár og Michael flýðifrá í
upphafi meðferðarinnar. Og Julia vex upp ákaflega
taugaveikluð. Engu að síður býr hún yfir miklum
viljastyrk og á sér fyllilega meðvitaða ákvörðun um
að koma sér í burtu frá öllum höftum og hömlum
82