Morgunn - 01.06.1993, Page 86
!
MORGUNN
I
I
• • •
Þegar lækna á taugaveiklun sem helgast af sálrænum
áföllum, er ákveðinn þáttur sem krefst þess að atburðurinn
sem í hlut á sé endurtekinn með það fyrir augum að færa
hann inn í meðvitund einstaklingsins. Sigmund Freud
nefndi þetta „þráhyggju endurtekningarinnar” þegar hann
ræddi um síendurtekninguna í lífi einstaklinga. Athuganir
dr. Whittons á sjúklingum sýna aukinheldur að þetta
fyrirbæri teygir sig á milli lífa, líf eftir líf. Sé atburður frá
fyrri lífum færður til meðvitundar sjúklingsins getur það
leitt til lausnar á sálrænum og líkamlegum vandamálum.
Julia sótti í blindni eftir þessari endurtekningu í starfi
sínu sem vændiskona og þegar það dugði ekki til, hlýddi 1
hún þeirri tilhneigingu sem byggð var á djúpstæðri
reynslu sem bjó innst inni með henni, tilhneigingunni til
að leita eftir átakameiri aðgerðum. Julia misreiknaði sig,
því hún bjóst ekki við að verða myrt þegar hún endurlifði
nauðgunina. I þessu lífi hefur Michael náð fram þessum
minningum sem útskýra hugmyndir hans um morð á
hvítklæddri konu.
Það var óstjórnlega óþægilegt að vera Julia, en þegar
hilla fór undir lok tímanna, fann Michael álag marga alda
hverfa úr líkama sínum og hann upplifði áður óþekkta
tilfinningu vellíðunar. Nú var samband hans við Sharron
ekki lengur undirlagt af ótta; sektarkenndin og viðbjóð-
urinn á honum sjálfum gufuðu upp og allar hálfó-
meðvitaðar hugmyndir um að fyrirfara sér hurfu einnig.
Hann uppgötvaði að hann gat horft í spegilinn á hverjum
morgni án þess að fyllast örvæntingu og þegar hann gaf
dúfunum brauð eða þurfalingum skotsilfur átti það rætur
sínar jafnt í gleði sem samkennd. Vinir og ættingjar sáu
breytingar í lífsviðhorfi Michaels. Hann gat losað sig við
strangar skoðanir sínar á tómstundum og ánægju og það
84