Morgunn - 01.06.1993, Page 93
Konráð Adolphsson
Til félagsmanna
Á þessu ári verður Sálartrannsóknafélagið 75. ára en það
var stofnað árið 1918 af þeim Einari Kvaran, sem var
fyrsti forseti félagsins, og Haraldi Níelssyni prófessor.
Einar var þekktur rithöfundur, frjálslyndur og hleypi-
dómalaus. Haraldur var landskunnur fyrir prédikanir sínar
og vann m.a. að þýðingu Gamla testamentisins úr
hebresku. Félaginu var ekki spáð löngum lífdaga en í dag,
75 árum síðar, hefur félagið aldrei verið sterkara eða í
örari vexti.
í dag leggur Sálarrannsóknafélag íslands áherslu á að
opna umræðuna um sálarrannsóknir og hagnýtt gildi
þeirra í daglegu lífi - að rækta þá jákvæðu eiginleika sem
blunda í hverjum einstaklingi. „Gakktu með gát í þessum
hávaðasama heimi og mundu hvaða frið þú getur fundið í
þögninni“, sendur einhversstaðar.
Innra starf félagsins þarf að efla með opnum félags-
fundum, námskeiðum og fleiri tækifærum til þjálfunar.
Gera verður miklar kröfur til allra þeirra sem starfa að
andlegum málum, miðla, huglækna og annarra þátt-
takenda til þess að skapa traustan grunn til þess að byggja
á fyrir framtíðina. Reglur hafa þegar verið mótaðar og
þurfa stöðugt að vera í skoðun. Bæna- og þróunarhringir,
huglækningar og þjálfun miðilsefna tekur langan tíma og
kallar á aga. En einhversstaðar stendur: „Vertu samt ljúfur
við sjálfan þig og vertu þess viss að sannleikurinn stendur
þér opinn. Vertu því sáttur við Guð, hvar sem þú finnur
hann og haltu þinni sálarró.“ Nauðsynlegt er að hver
91
L