Sjómaðurinn - 01.10.1939, Page 32
26
S JÓMAÐURINN
E§JA, iiyjii strandferðaskipið.
Nýja Esja.
ri INN AF GLEÐILEGRI VIÐBURÐUM þessa
síðustu og verstu daga var það, þegar liið
nýja strandferðaskip „Esja“ kom hingað til
Reykjavíkur. Henni var líka fagnað vel af bæj-
arbúum og voru sjómennirnir fjölmennir i þeim
hóp. Skipið er fagurt á að lita og vafalaust gotl í
sjó að leggja. Við fljótlega athugun á skipinu kem-
ur í Ijós, eins og raunar var áður vitað, að það
er allmiklum erfiðle’ikum bundið að sameina það
tvent i einu skipi, að það sé hentugt til strandsigl-
inga og ennfremur farþegaflutninga milli landa.
virðist sem of mikil áherslá hafi verið á það lögð,
að skipið rúmaði marga farþega í millilandasigl-
ingum. íbúðir skipverja eru viða góðar, en þó
skortir þar nokkuð á. Til dæmis hefði mátt til
þess ætlast, að í nýju skipi væri matstofa fyrir
matsveina og þjónalið, en svo er ekki. Þá virðist
það óheppilegt og næsta óskiljanlegt, að matsvein-
unum skuli ætlaður svefnstaður fram á og það í
litlu herbergi með öðrum. Yf-
irleitt má segja, að matsveina-
og þjónaliðið hafi verið sett
hjá við smiði skipsins, og er
það þeim mun furðulegra, þeg-
ar þess er gætt, að því e'r ætl-
að að matbúa fyrir alt að 200
manns — og þjóna sama
mannfjölda. En úr þessu má
auðveldlega hæta, og ]>að þarf
að gera það með þvi að taka
eitthvað af þeim herbergjum,
sem ætluð eru farþe’gum,
lianda þjónustufólkinu. — Þá
virðist alveg hafa gleymst stað-
ur fyrir yfirhafnir og oliuföt
hásetanna, þvi að ekkert vit er
• þvi, að ætla þeim að geyma slikt
i svefnklefum sínum. En úr þessu
er Iíka auðvelt að hæta, þegar búið
er að flytja matsveininn úr her-
hergi þvi, sem honum er nú ætl-
að, fram á. Maður rekur strax aug-
un í það við skoðun skipsins, að
einungis ein losunarbóma er aftur
á. Er það tvimælalaust mikill galli,
þegar fermt er og affermt, sér-
staklega þegar vont er í sjóinn —
en þetta er erfiðara að lagfæra úr
því sem komið er.
En þó að hér hafi verið fundið að ýmsu, þá er
margt gott að segja um skipið. Má þar nefna, sem
algera nýjung á íslenskum siglingaskipum, að
stýrt er inni í stýrishúsi og er í þessu um mikla
framför að ræða. Bátadavíðar eru af nýjustu gerð
og fullkomnari en gerist. Yélarúm er sérstaldega
rúmgott svo að annað eins hefir ekki sést hér.
Ýmiskonar útbúnaður er á skipinu, sem of langt
yrði upp að telja, og sem aðeins þekkist á þessu
eina skipi hér. 1 skipinu er sérstök skrifstofa ætluð
stýrimönnum fyrir afgreiðslu viðvikjandi farmi
og farþegum. Það má lika lelja mikla framför frá
því sem nú er.
Stærð skipsins er sem hér segir:
Brutto reg. tn....................... ca. 1345
Deadw. tn.............................. — 550
Mesta lengd ........................... — 229'6"
Lengd í sjólínu .................... — 210^ 6"
Mesta breidd .......................... — 35' 6"
Dýpt að aðalþilfari ................ — 20' 6"