Sjómaðurinn - 01.10.1939, Blaðsíða 42
36
S JÓMAÐURINN
Blaðið Tíminn og sjómennirnir.
17. ]). m. birti blaðið Tíminn illkvitnislega grein,
þar sem ráðist er á sjómennina á Esju fyrir það,
að þeir kunni ekki störf sin. Vill blaðið láta líta
svo út, sem það sé sjómönnunum að kenna, að
skipið ekki heldur áætlun, og það svo mjög, að
fallið hefir úr heil ferð. Er þetta sjáanlega gert i
þeim tilgangi, að breiða jdir það, livórsu átælunin
er vitlaust samin og Iialda hlýfiskildi yfir þeim,
sem að því verki hafa unnið og ennfremur því,
hvað losunartækjum skipsins er mikið áfátt. Sjó-
mennirnir á Esju eru með örfáum undantekning-
um alt saman menn, sem um áraskeið, sumir um
áratugi, hafa siglt, ýmist á strandferðaskipunum
eða hinum siglingaskipunum og þektir að því að
kunna vel öll sín störf. Það kemur úr hörðustu
átt, þegar blað forstjóra Skipaútgerðar ríkisins
kemur með slíka sleggjudóma á menn, sem vinna
störf sín með samviskusemi.
SJÓMENN!
Verslið við þá, sem auglýsa í Sjómanninúm!
Gerist fastir áskrifendur að SJÓMANNINUM!
F
IELAGSPRENTSMIÐJAN
Býr til Gúmmístimpla.
\
Hefir fyrirliggjandi :
Stimpilhulstur, sem hægt er
að hafa í vasa, ílöng og
kringlótt, stimpilpúða og
stimpilblek, margar tegundir.
Stimplar sendir gegn póst-
kröfu um land alt.
Lágt verð------Fljót afgreiðsla