Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 16
Jón Þórarinsson,
tónlistarráðunautur útvarpsins.
Eins og að líkum lætur verður mikið
um góða tónlist í útvarpinu um þessi
jól. Á aðfangadagskvöld syngja hinir
vinsælu íslenzku söngvarar, Þuríður
Pálsdóttir og Einar Sturluson, og má
því segja að þau syngi inn jólin. Ýmsir
frægir listamenn er hafa heimsótt oss á
þessu ári hafa verið teknir á segulband
og list þeirra geymd til jólanna eins og
hvert annað góðgæti. Því miður getum
við ekki gefið upplýsingar nema um fátt
eitt af því, sem við eigum að fá að heyra
um hátíðina, og skal þá fyrst fræga
telja, Hjördísi Schymberg, kgl. hirðsöng-
konu frá Stokkhólmi, sem hér var í vor
og lék sem gestur í La Traviata við
mikla hrifningu óperugesta. Gefst út-
varpshlustendum nú kostur á að hlýða á
söngkonuna um þessi jól, en Fritz Weis-
chappel aðstoðar-
JÓLA -TÓNLIST
ÚTVARPSINS
Þá verður útvarpað tónleikum hinnar
ágætu grísku söngkonu, Diönu Eustrati,
sem hér var í vor á vegum Tónlistarfé-
lagsins. Við hljóðfærið er Herm. Hilde-
brandt.
í haust var útvarpað tónleikum hins
frábæra þýzka söngvara Dietrich Fris-
cher-Dieskau, og verður nú um hátíðina
útvarpað öðrum tónleikum er hann hélt
hér í Reykjavík. Þessi afburða listamað-
ur vakti hér geysihrifningu, en héðan
fór hann til Danmerkur, þar sem hann
hélt tónleika og hlaut þar glæsilegri við-
tökur en dæmi eru til í seinni tíð. Þó
gátu vinir vorir Danir ekki dulið gremju
sína yfir því, að Frischer-Dieskau skyldi
ekki heiðra þá fyrr með söng sínum en
oss íslendinga.
Árni Kristjánsson aðstoðaði söngvar-
ann af sinni alkunnu snilld.
16
ÚTVARPSTÍÐINDI