Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 24

Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 24
DAGUR I BUGTINNI (Jtvarpserindi Jónasar Árnasonar. Það hafði fallið svolítill snjór á göt- urnar, og í gegnum kyrrðina heyrðist að einhvers staðar úti í bæ var maður að reyna að setja bíl í gang, en líklega hef— ur verið frosið á bílnum, því að hann fór ekki í gang. Það voru engin spor í snjónum fyrr en maður nálgað- ist höfnina, þá fóru að sjást fáein spor sem lágu úr ýmsum áttum en stefndu öll á verbúðarbryggjurnar. Klukkan var að verða sex einn morgun um miðj- an október, og sporin voru eftir sjó- mennina, sem á þessum tíma lögðu af stað á bátum sínum út á Faxaflóa að vitja um þorskanet. Maður þurfti að fara yfir tvo báta til að 'komast um borð í bátinn okkar, og þegar ég var búinn að leggja frá mér nestistöskuna á matborðið aftur í eld- húsinu, fór ég frammí lúkar að setja á mig gúmmístígvélin í staðinn fyrir gömlu skóna, sem ég notaði til að ganga á heim og heiman. En það var þá myrk- ur í lúkarnum, því að vélstjórinn var enn ekki búinn að hleypa straumnum af ljósavélinni þangað fram, og ég varð að kveikja á eldspýtu til að finna stígvél- in. Svo slokknaði á eldspýtunni, og ég setti á mig stígvélin í myrkrinu. Ég var ekki alveg búinn að setja á mig stígvélin þegar skyndilega upphóf- ust átakanlegar stunur og mæðulegir blástrar þarna innar í myrkrinu. Kom mér það á óvart, því að við skipsmenn- irnir vorum allir vanir að sofa í landi, og var lúkarinn þess vegna jafnan mannlaus um nætur. Og ég spurði: „Er einhver þarna?“ „Hvað segirðu, vinur?“ var þá spurt í myrkrinu. „Ég var að spyrja hvort einhver væri iþarna?“ „Æ-já. Það er einhver hérna,“ sagði röddin. „Þú átt víst ekki sígarettu, vin- ur?“ „Nei, því miður.“ Ég kvaðst bara reykja pípu. „Æ, er það satt,“ sagði röddin, „reyk- irðu pípu? Æ-jæja. Maður hlýtur þó einhvers staðar að eiga stubb.“ 24 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.