Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Qupperneq 26

Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Qupperneq 26
En að svo búnu leystum við landfest- ar. Við vorum sex á bátnum, skipstjóri Páll Þorláksson, vélstjóri bróðir hans Halldór Þorláksson, stýrimaður Guð- mundur Falk, og auk mín tveir háset- ar, frændurnir Kristmundur Steinsson og Þorgeir Sveinsson, ættaðir norðan af Skaga. Veður var mjög stillt er við sigldum út úr höfninni, og skinu stjörn- ur uppi, en í hinni daufu skímu byrj- andi dags mátti sjá að það var sveim á fugli yfir Örfirisey, og bólstrar á Esj- unni. Og þegar við vorum búnir að gá til veðurs og hrista okkur svolítið og taka í nefið, þeir okkar sem tóku í nef- ið, þá söfnuðumst við aftur í til að njóta ■hlýjunnar af olíukyntri eldavélinni, nema skipstjórinn, sem stóð uppi í brú og stýrði út. Þarna í eldhúsinu var útvarpsviðtæki fest á þilið yfir matborðinu, og frá þessu tæki brosti við manni flugþernan Mar- grét Guðmundsdóttir sínu hæverska brosi. Hafði mynd hennar verið klippt út úr Morgunblaðinu er hún kom heim eftir hinn fræga sigur sinn í London hér um árið, og sett þarna upp, bæði til þess að prýða staðinn, en einnig af því að Margrét er dóttir Guðmundar heitins Þorláks, þess sem báturinn er nefndur eftir. En Guðmundur sá Þorlákur var mikill aflamaður, og þó ef til vill enn meiri sómamaður, enda hef ég oft heyrt sjómenn minnast hans, og alltaf með hinni mestu virðingu. Ég veit ekki hvort netin voru á Hamr- inum'meiri þessa nótt, eða Hamrinum minni, eða kannski í Melakrikanum, eða einhvers staðar við Hraunkantinn sem maður finnur með því að láta þá syðstu af þremur tilteknum hæðum bera í há- hnjúk Helgafells, — og eru þetta allt kunn mið í Faxaflóa. En við vorum hálfan annan til tvo tíma þangað út og orðið bjart, þegar Guðmundur stýrimað- ur krækti stjakanum í baujuna á fyrstu trossunni og dró hana að bátnum stjórn- borðsmegin. Því næst kipptum við bauj- unni um borð. Ég hafði það starf að draga af spilinu, og setti færið á skífuna, og það kom inn óhindrað og með miklum hraða alveg þangað til drekinn hófst frá botni, þá þyngdi snögglega í, en aðeins stutta stund, því að dýpi var hér ekki nema 15 -—20 faðmar, og bráðlega vorum við líka búnir að taka drekann um borð. Þeir frændur, Þorgeir og Kristmundur, báru drekann yfrum og hengdu hann á bak- borðslunninguna með aðra flaugina fyr- ir utan. Og nú byrjaði fyrsta netið að koma upp á skífuna hjá mér. Og fuglinn fór strax að safnast kring- um bátinn til að athuga hvað okkur liði. En þetta var ekki fýllinn — eða múkk- inn svo maður tali sjómannamál —, því að hann er nú allt í einu horfinn úr bugt- inni; hann, sem venjulega var þarna svo aðsópsmikill að aðrir fuglar komust varla í æti fyrir honum, hann er svo gjörsamlega horfinn, að við höfðum til dæmis ekki séð einn einasta múkka all- an þann hálfa mánuð, sem liðinn var síðan við hófum þessar veiðar. Og er ekki gott að segja, hvað hvarfinu veldur. Það er skiljanlegt, að svartfuglinn sést nú ekki nema einn og einn á stangli, því að hann hefur verið skotinn svo misk- unnarlaust, (og eru þar með úr sögunni þær vísbendingar um aflahorfur, sem hann veitti sjómönnum samkvæmt 26 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.