Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Síða 17
Þuríður Pálsdóttir.
Alice Babs.
Hjördís Schymberg.
<i)------------------------------------
Útvarpstíðindi hafa áður getið þeirra
Eustrati og Frischer-Diskaus og birt af
þeim myndir, svo óþarft mun vera að
kynna þau lesendum blaðsins nánar.
Alice Babs nefnist fræg sænsk kvik-
myndaleikkona og dægurlagasöngkona,
og var hún hér í haust á vegum SÍBS
og vakti mikla hrifningu þeirra er á
hana hlýddu. Er hún vafalaust bezta
dægurlagasöngkona, sem hingað hefur
komið. Normanstríóið aðstoðaði söng-
konuna. Þessa frægu söng- og leikkonu
fá útvarpshlustendur að heyra um jólin.
Sænska sendiherrafrúin í Reykjavík,
frú Öhrvalls, syngur sænsk þjóðlög í út-
varpið einhverntíma um hátíðina, og er
þess atriðis getið á öðrum stað hér í
blaðinu.
Þá verður útvarpað píanótónleikum
þeirra Þórunnar Jóhannsdóttur og Willi
----------------------------------------«>
Piel og ennfremur flytur Jón Nordal
frumsamin verk, bæði einn, og með að-
stoð Ingvars Jónassonar fiðluleikara.
Þá er og í ráði að Árni Kristjánsson
komi fram í útvarpinu einhvern hátíðis-
daginn-
Flensborgarkvartettinn, sem hér var
í haust, var tekinn upp á segulband, og
er gert ráð fyrir að útvarpað verði flutn-
ingi hans á Silungakvintettinum eftir
Schubert, en meðferð hans á þessu ynd-
islega tónverki var með ágætum. Og
svo á þrettándanum mun Karlakórinn
Fóstbræður undir stjórn .Jóns Þórarins-
sonar syngja út jólin. Einsöngvarar
kórsins verða Ásgeir Hallsson, Gunnar
Kristinsson og Sigurður Björnsson. Enn-
fremur aðstoða kórinn þeir Ernst Nor-
man (flauta) og Carl Billich (píanó).
ÚTVARPSTÍÐINDI
17