Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Side 20
skaparvíti. — Hann hélt uppteknum
hætti: að knýja sig fram til slíkrar full-
komnunar, sem mannlegri getu er of-
raun, og sennilega hefur hann komist
þeim himni sínum næst þegar hann
hafði lokið við „Porgy and Bess“ árið
1935. — Það var klassískur jazz-þjóð-
söngleikur, svo einlægur og trúr sínum
uppruna, að hann varð músikalskur
samnefnari fyrir Catfish Rou með allri
sinni fyndni, ofsa og angurværð; málað
í tónum af snilld meistarans og auð-
mýkt vitringsins, — svo öll önnur tón-
verk með líf negrans að uppistöðu, urðu
að klaufalegum skringimyndum.
Árið 1935 hristi Gershwin af sér ryk-
ið frá Broadwáy og hélt með hugsjónir
sínar að veganesti til Hollyvood, en í
því andrúraslofti þykir oft falla skjótt á
hina flekklausu skildina. Hann fékk
margt óþvegið orð í eyra, þegar í odda
skarst milli tillagna hans um endur-
bætur á kvikmyndatónlist og harðsoð-
inna postula blekkibragðanna — og
auðvitað báru þeir sigur úr býtum. Og í
spor sálarkvala hans fetuðu líkamlegar
þjáningar, sem elnuðu meir og meir, unz
um þverbak keyrði með heilsu hans, og
hann féll í óvit í vinnustofu sinni þegar
hann hafði lokið við lagið: „Our love is
here to stay“ er hann samdi fyrir Gold-
wyn Follies.
í fyrstu var sjúkleiki hans talinn stafa
af ofþreytu, en rannsókn leiddi í ljós, að
hann þjáðist af bólgu í heilanum. Heila-
skurður reyndist árangurslaus, og Ger-
shwin dó að morgni 11. júlí 1937.
Fám hefur auðnast að auðga svo líf
sitt að innihaldi sem George Gershwin
í þessi þrjátíu og níu ár, sem örlagadís-
irnar höfðu úthlutað honum, og senni-
lega enginn maður náð sínu setta marki
Áhrifamikið
leikrit
Laugardaginn 14. nóv. var flutt í út-
varpinu mjög athyglisvert leikrit er
nefnist „Sjávarturninn“ og er eftir Ed-
ward Rutherford en byggt á skáldsögu
Arndís Björnsdóttir.
eftir Hugh Walpole. Fjallar leikrit þetta
um fullorðna konu, sem haldin er stjórn-
lausri eigingirni og drottnunarfýsn yfir
sonum sínum og eiginmann. Hefur
henni tekist að beygja allt heimilisfólk
sitt undir vald sitt, svo það hlýðir boði
hennar og banni í taumlausri undir-
gefni. En annar sonurinn giftir sig og
á jafn skömmum tíma; hann lifði það að
sjá allar hugsjónir æsku sinnar rætast.
Hann tók jazzinn, olpbogabarn og
Öskubusku pútnahúsanna og ölkránna í
New Orleans, svipti hann álagahamnum
og leiddi hann til þess hásætis, er hann
var borinn til.
20
ÚTVARPSTÍÐINDI