Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Side 39
Vinsælir dægurlagasöngvarar
Svavar
Lárusson.
Alfreð
Clausen.
Ingibjörg
Þorbergs.
Á V f Ð O G DREIF
Að gera öll- Það hefur vízt engum
um tii hæfis. þeirra manna, sem frá
stofnun ísl. Ríkisútvarpsins hafa um
lengri eða skemmri tíma verið með í
ráðum um efnisflutning þess, látið sér
til hugar koma að í þeim efnum yrði
hægt að gera öllum útvarpshlustendum
til hæfið. Slíkt mun eitt af því marga,
sem óframkvæmanlegt er, enda tekið
sem sjálfsögðum hlut að í jafnstórum
hópi séu skemmtana og fróðleiksþarfir
fólks næsta ólíkar. Það verður því ein-
ungis hægt að gera þá kröfu til þeirra
manna, sem hverju sinni stjórna dag-
skrá útvarpsins að þeir geri sitt bezta
og reyni að verða sem flestum að liði í
fullnægingu þessara þarfa. Og vafalaust
munu fáir bera forráðamönnum út-
varpsins það á brýn að þeir hafi legið á
liði sínu það sem af er þessa vetrar með
að gera útvarpið ánægjulegt, þó skiftar
séu skoðanir um hvernig það hefur tek-
ist, eins og kemur glöggt fram í gagn-
rýni sumra dagblaðanna. En gagnrýn-
endur útvarpsins ættu þó í skrifum sín-
um að taka meira tillit til þeirra stað-
reynda, sem núverandi útvarpsstjóri
skýrði mjög glöggt í haust, þegar hann
ræddi við blaðamenn um starfsemina í
vetur, nefnilega erfiðleikana á að út-
vega nógu fjölbreytt dagskrárefni í okk-
ar fámenna þjóðfélagi.
Það hefur aldrei verið ætlun þessa
blaðs að amast við réttlátri gagnrýni á
útvarpið, þótt það hins vegar telji að því
aðeins geti gagnrýni komið að notum,
að hún sé byggð á fullum rökum.
Of mikii Útvarp.1gagnrýnandi sem
gestrisni. nefnir sig Almar, skrifar
vikulega í Morgunblaðið athyglisverð-
ar greinar um dagskrá útvarpsins, þótt
hann hins vegar verði að sleppa að
minnast á marga dagskrárliði af þeirri
ástæðu, að hann hafði ekki tækifæri til
að hlusta á þá, eins og hann segir sjálf-
ur. Um daginn minnist hann á gestrisni
útvarpsins er hann telur á stundum
ganga fulllangt og það með réttu. Hann
segir t. d. svo um kvæðalestur Sigfúsar
Elíassonar hinn 3. nóv. s.l.: „Kvæði þau,
sem hann las upp voru öll ósköp lág-
ÚTVARPSTÍÐINDI
39