Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Qupperneq 41
lausum útvarpshlustendum. Samt sem
áður hljóta hlustendur að álíta, að þeir
sem þessum málum ráða, verði að gera
einhverjar lágmarkskröfur um hæfni
þess fólks, sem þeir hleypa að hljóð-
nemanum.
, , En svo aftur sé vikið að
Vel lieppn-
að íeikrita- dagskránni það sem af er
val. þessa vetrar, er flest gott
um hana að segja og margt ágætt. Laug-
ardagsleikritin síðustu hafa verið hvert
öðru skemmtilegra og vel flutt. Leikrit
Oscars’ Wilde naut sín raunar ekki til
fulls, en þess ber að gæta, að mjög erf-
itt hlýtur að vera að þýða orðaleiki og
fyndni þá, sem svo mjög krydda leikrit-
ið „The Importance of being Earnest“
sem er „farce“, svo að njóti sín til fulls.
„Fílasagan", sem Lárus Pálsson hafði
þýtt og annaðist einnig leikstjórn á, var
skemmtileg og fjörleg lýsing á ofsjón-
um tveggja drykkjumanna- Gerðu leik-
endurnir því hin beztu skil.
BÓKAMIÐLUN
(Jón úr Vör)
Varðarhúsið — Reykjavík
Ef yður vantar einhverja bók, nýja eða
gamla, þá spyrjist fyrir um hvort við get-
um útvegað hana. Takið fram, hvort hún
má vera lesin. Við Iátum yður vita um
vcrðið. Ef þér hafið ekki fengið útsölu-
bókaskrá Bóksalafélagsins, þá látið okk-
ur vita. Verðið gildir til næstu áramóta, þá
verður verð margra bókanna hækkað aft-
ur, en aðrar munu hverfa af bókamark-
aði og verða c. t. v. ófáanlegar næsta ára-
tug. Verð bókanna er ótrúlega lágt. —
Lcstrarfélög og bókamcnn ættu ekki að
láta þetta tækifæri ónotað .
BÓKAMIÐLUN
(Jón úr Vör)
Varðarhúsinu — Reykjavík
Ríkisútvarpið
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunar-
verk er að ná til allra þegna landsins með
hvers konar fræðslu og skemmtun, sem
því er unnt að veita.
Aðalskrifstofa útvarpsins annast um af-
greiðslu, fjárhald, útborganir, samninga-
gerðir o. s. frv. Útvarpsstjóri er venjulega
til viðtals kl. 2—4 síðdegis. Sími skrif-
stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra
4990.
Innheimtu afnotagjalda annast sérstök
skrifstofa. Sími 4998.
Útvarpsráðið (Dagskrárstjórnin) hefur
yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi
og velur útvarpsefni. Skrifstofan er opin
til viðtals og afgreiðslu frá kl. 2—4 síð-
degis. Sími 4991.
Fréttastofan annast um fréttasöfnun
innanlands og frá útlöndum. Fréttaritarar
eru í hverju héraði og kaupstað landsins.
Sími fréttastofu: 4994. Sími fréttastjóra:
4845.
Auglýsingar. Útvarpið flytur auglýsing-
ar og tilkynningar til landsmanna með
skjótum, áhrifaríkum hætti. Þeir, sem
reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar á-
hrifamestar allra auglýsinga. — Auglýs-
ingasími 1095.
Verkfræðingur útvarpsins hefur dag-
lega umsjón með útvarpsstöðinni, magn-
arasal og viðgerðastofu. Sími verkfræð-
ings er 4992.
Viðgerðarstofan annast um hvers konar
viðgerðir og breytingar viðtækja, veitir
leiðbeiningar og fræðslu um not og við-
gerðir viðtækja. Sími viðgerðarstofunnar
4995.
Takmarkið cr: Útvarp inn á hvert heim-
ili! Allir landsmenn þurfa að eiga kost
á því að hlusta á æðaslög þjóðlífsins;
hjartaslög heimsins.
Ríkisúlvarpið.
ÚTVARPSTÍÐINDX
41