Lindin - 01.01.1929, Blaðsíða 50
48
L I N D I N
sinnulausir. Því að niðdimm nótt trúleysis og siðleys-
is hvíldi yfir jörðinni. Tómleiki eða óvissa ríkti í sál-
um margra. Gömlu hugsjónirnar voru týndar. Menn
leituðu að nýjum og fundu ekki. Trúin á gömlu goðin
var að deyja út í hjörtunum. Gömlu trúarbrögðin voru
búin að missa tökin á hugunum og þau fullnægðu ekki
lengur trúarþörf manna. Menn leituðu til annara guða,
sem þeim voru ókunnir. Þeir sneru sjer að útlendum
trúarbrögðum til þess að svala þeirri þrá, sem með
öllum mönnum hefir ávalt búið, þeirri þrá og þörf að
styðjast við æðri eilíf öfl. Aðfengnu trúarhugmyo.dirn-
ar voru flestum óljósar og á reiki; Þær skorti líf og
afl til þess að gagntaka hugi manna alment. Sumir
leituðu sjer svölunar í heimspeki, en fundu ekki þar
hin eilífu sannindi. Heimspekin gat litla gleði og hugg-
un veitt, nema þá helst einstöku mönnum, sem lærð-
astir vo.ru og vitrastir. En allur almenningur, smæl-
ingjarnir og þeir, sem fáfróðastir voru, fengu ekki
notið hennar.
Á þessum svartnættistímum mátti miskunnsemi og
bróðurkærleiki sín ekki mikils. Ljósastur vottur þess
er sú staðreynd, að með mikinn fjölda manna var far-
ið, eins og væri þeir skynlausar skepnur. Siðleysið var
á háu stigi en ofbeldi og óstjórn áttu góða daga. Menn
hrifsuðu til sín af þessa heims gæðum sem mest þeir
máttu, af því að þeir komu ekki auga á æðstu gæði
lífsins. Ljettúð og trúleysi hrósuðu sigri í sálum
manna og óvissa og kvíði lá eins og rnara á þeim og
varnaði þeim flugsins upp á við. — En þrátt fyrir alla
þessa eymd, vakti þrá í hjörtum margra og eftirvænt-
ingin greip hugi manna því sterkari tökum, sem út-
litið virtist versna. Gamli andlegi heimurinn var að
kveðja en hinn nýi heimur að fæðast. Og þeir, sem
þráðu og' væntu hjálpar og ljóss, urðu ekki fyrir von-
brigðum. Því að hið sanna ljós, sem upplýsir hvern
mann, var að koma í heiminn. Birta guðsþekkingar-