Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
347. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR
SYNGUR SAMBA Á
PORTÚGÖLSKU
KNATTSPYRNULANDSLIÐIÐ KARLA
Hefur ekki staðið
betur í fimm ár
Leikhúsin
í landinu >> 41
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
ÚTLIT er fyrir að um 150 milljarðar
króna falli á íslenska skattgreiðend-
ur vegna uppgjörs þrotabús Lands-
bankans. Kröfuhafar á bankann, aðr-
ir en innstæðueigendur, geta ekki
búist við að fá greitt. Þetta var op-
inberað nýlega á fundi skilanefndar
bankans með 8-10 hópum kröfuhafa.
Takist ekki að selja eignir fyrir
innlánum bankans munu íslenska
ríkið, Holland og Bretland tapa fé
vegna trygginga á innistæðum á Ice-
save-reikningunum í útibúum bank-
ans. Munurinn gæti numið ríflega
þrjú hundruð milljörðum króna og
áðurnefndir 150 milljarðar lenda þá
á íslenska ríkinu. Þetta staðfestir
Lárus Finnbogason, formaður skila-
nefndar Landsbankans, en segir töl-
urnar þó óljósar. „Sérstaklega þegar
litið er til eignanna. Við höfum sett
upp áætlanir. Seldum við allt á
brunasölu núna fengjust sennilega
innan við 50% af því sem hugsanlega
fengist biðum við í fimm ár.“
Hann vill ekki fara nákvæmlega
yfir þær tölur sem nefndar voru á
fundinum með kröfuhöfum. „Við
báðum kröfuhafana að skrifa undir
yfirlýsingu um að upplýsingarnar
væru í trúnaði. Við verðum að halda
þann trúnað.“
Vilja neyðarlögunum hnekkt
Lárus segir viðbúið að kröfuhafar
fari í mál við ríkið til þess að hnekkja
neyðarlögunum sem sett voru í októ-
ber. Þau færðu þá aftar innlánseig-
endum; þ.e. innstæðutryggingasjóð-
um landanna þriggja, í forgangs-
röðinni að fjármununum í
bönkunum. „Þeir hafa ekki hótað því
ennþá, nei,“ segir hann. „Það mun
örugglega verða síðar.“
Hann segir að kröfuhöfum hafi átt
að vera ljóst í hvað stefndi. Í skýrslu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, frá
því í nóvemberlok hafi staðið skýrum
stöfum að ekki væru líkur á að eignir
Landsbankans dygðu fyrir innstæð-
um. „Hafi þeir lesið skýrsluna, sem
þeir hafa örugglega gert, átti þeim
að vera þetta ljóst.“
Næsti fundur með kröfuhöfum
verður seinni hluta janúarmánaðar.
Um 150 milljarða
bakreikningur
Kröfuhöfum Landsbanka skýrt frá að þeir fái sitt ekki
greitt Talið að um 300 milljarða vanti upp á Icesave-skuldir
Morgunblaðið/Golli
Í HNOTSKURN
»Allt að fjörutíu manns sátufund kröfuhafanna tíu með
skilanefnd Landsbankans.
Þeir funda aftur með nefnd-
inni um miðjan janúar.
»Kröfur breska, hollenskaog íslenska innstæðu-
tryggingasjóðsins auk inn-
stæðueigenda í Bretlandi sem
áttu meira en 50 þúsund pund
tilheyra forgangskröfum á
Landsbankann.
LÍFLEGT var í miðborginni í gærkvöldi en jóla-
verslunin hefur gengið ágætlega þrátt fyrir
kreppuna, að sögn kaupmanna. Í Kringlunni er
aðsókn svipuð og í fyrra og segja kaupmenn sölu
ganga ágætlega. Sömu sögu er að segja úr
Smáralind. „Við erum að fá það sem við köllum
Hennes & Mauritz-áhrifin, þau eru öll hér á landi
núna,“ segir Henning Freyr Henningsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, og vísar í að jóla-
verslun landans hafi nú færst heim. Að kaupa ís-
lenskt virðist líka vera mörgum ofarlega í huga
og verður starfsfólk hönnunarverslunarinnar
Kraum vel vart við slíkt. Gilbert Ó. Guðjónsson
úrsmiður segir sömu sögu, en hjá honum er það
íslensk úrahönnun sem heillar ferðamenn.
Íslensku jólagjafirnar á uppleið
Morgunblaðið/Golli
Margir telja sig vita að of mikil
sykurneysla geti valdið óeirð í
krökkum, þau fái jafnvel ofvirkni-
kast. En að sögn British Medical Jo-
urnal er um hugarburð að ræða.
Gerðar voru alls 12 tilraunir und-
ir eftirliti vísindamanna. Ekki
mældist neinn munur á hegðun
barna sem fengu sykur og hinna
sem engan fengu, ekki heldur í til-
raunum þar sem ofvirk börn voru
meðal þátttakenda.
En ef barnið fékk drykk sem sagt
var að væri mjög sykraður en var í
raun sykurlaus töldu foreldrarnir
samt að barnið sýndi meiri óeirð en
eðlilegt væri. kjon@mbl.is
Meira súkkulaði, elsku
stubburinn minn?
Poul M. Thom-
sen, hagfræð-
ingur hjá
Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum,
segist sjá „já-
kvæð merki
þess“ að áætlun
sem sjóðurinn
vinnur eftir
ásamt íslenskum stjórnvöldum, við
endurreisn íslenska hagkerfisins,
geri gagn. Meiri stöðugleiki ein-
kenni gjaldeyrismarkað. Thomsen
segir að aðgerðirnar nú, skömmu
eftir hrun bankakerfisins, taki mið
af því að vera viðbrögð við „bráðri
neyð“ í efnahagslegu tilliti. Gjald-
eyrishöft og háir stýrivextir séu ill
nauðsyn á fyrstu stigum end-
urreisnarinnar. Þrátt fyrir jákvæð
merki um virkni einstakra aðgerða
sé enn langt í land. Thomsen hefur
verið staddur hér á landi til að
ræða við ýmsa aðila. »16
Aðgerðir Íslendinga við-
brögð við „bráðri neyð“
ÁKÆRA á hendur Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni, Kristínu Jóhannes-
dóttur systur hans, Tryggva Jóns-
syni, Baugi Group og fjárfestingar-
félaginu Gaumi fyrir meiri háttar
brot gegn skattalögum á árunum
1998 til 2002 var birt í gær. Jón Ás-
geir og Kristín eru ásamt foreldrum
sínum eigendur Gaums, sem er aðal-
eigandi Baugs. Jón Ásgeir er ósátt-
ur. „Það lítur út fyrir að ekki sé
sama hver á í hlut þegar gefin er út
ákæra,“ segir Jón og bendir á að
þeir sem sakaðir voru um að skulda
meiri skatta en hann og komu að
málum sem hann er ákærður fyrir
sleppi.
Tryggvi segir að ný ákæra í
Baugsmálinu hafi ekkert með það að
gera að hann hafi sagt upp störfum
hjá Landsbankanum í gær.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ný ákæra
gefin út í
Baugsmáli
Ákært fyrir skattsvik | 4