Morgunblaðið - 19.12.2008, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
JÓLABARNIÐ blundar í okkur öll-
um, en augljóslega er misdjúpt á
því. Á meðan sumir láta nægja
að hrífast af jólaljósum ná-
grannanna og bíða fram á að-
fangadag með að setja jóla-
tréð upp eru aðrir sem
hreinlega tapa sér í jóla-
gleðinni og vilja hvergi vera
án þess að vera minntir á
hátíðirnar fram undan.
Þeir allra skreyt-
ingaglöðustu láta
ekki nægja að
hengja upp greni-
greinar, jólakúlur,
ljósaseríur, jólasveina
og aðrar jólafígúrur á
heimili sínu heldur
gera þeir slíkt hið sama
á vinnustaðnum svo að
þeir þurfi hvergi að fara
á mis við jólagleðina.
Þá er vandamálið að
koma sér á milli þessara
tveggja staða en jóla-
skrautsframleiðendur hafa
aldeilis séð við því. Þannig
á enginn sem þyrstir í jóla-
legt umhverfi að þurfa að sitja í einkabílnum óskreyttum. Víða á
bensínstöðvum má fá ýmiskonar jólaskraut sem er sérhannað fyr-
ir farartæki heimilisins eins og stuttleg könnun Morgunblaðsins
leiddi í ljós. Raunar var víða orðið lítið eftir af slíku fínerí en á
Shellstöðinni við Vesturlandsveg mátti þó í vikunni finna nokkurt
úrval skrautmuna fyrir mælaborðið og framrúðuspegilinn, sem
hér gefur að líta.
Þá má ekki gleyma að minnsta mál er að nýta heimilisskrautið
með þessum hætti; hver segir t.d. að ekki megi hengja upp venu-
legar jólakúlur eða sveinka í stað ilmspjaldsins á framrúðunni eða
leyfa tuskuhreindýrinu Rúdolf að hvíla á hillunni afturí? Þá
herma þeir sem til þekkja að útséðir ökumenn nýti gjarnan jóla-
seríur sem ganga fyrir venjulegum rafhlöðum í afturglugga bif-
reiða sinna. ben@mbl.is
Skyld’ að
vera jólabíll?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mælaborðsgreni Lítið upplýst jólatré sem
hægt er að láta standa, hanga eða liggja að
vild. Krónur 695.
Aðventuljós Eiginlega að verða klassísk í
umferðinni. Kosta 899 krónur.
Brosa svo Smiley í jólabúningi. Gefur einnig
ilm og er góður að kreista ef jólastressið er að
taka bílstjórann á tauginni. Kostar 954 krónur.
Bráðnar ekki Gefur góða lykt og
hnapparnir og augun lýsa alla jafna.
Kostar 850 krónur.
Fjölmargt er hægt að gera sér til skemmtunar og fróðleiks í
aðdraganda jóla og mögulegt að næra skilningarvitin með ýms-
um hætti. Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um ein-
hverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um
landið.
5 dagar til jóla
Borgarnes | Jólamarkaður er haldinn í 25.
sinn í Borgarnesi en það eru jólasveinar og
-meyjar í handverkshópi sem halda hann.
Um tuttugu aðilar selja vörur sínar og kenn-
ir margra grasa, allt frá smákökum og rab-
arbarasultu til ýmissar handunninnar vöru.
Bæði er um að ræða ýmsar jólavörur svo og
sígildar vörur, t.d. útprjónaða vettlinga og
leista. Þórunn Árnadóttir stendur vaktina í
gamla Bónushúsnæðinu og segir rennerí
vera þónokkurt. „Borgfirðingar ættu nú að vera farnir að vita að jólamark-
aðurinn er haldinn á hverju ári, bara í mismunandi húsnæði.“ Hún segir
ánægjulegt að í ár þurfi handverkshópurinn ekki að borga fyrir aðstöðuna,
þar sem eigandi hússins sagði lán á húsnæðinu vera framlag til menningar-
mála í Borgarfirði. Þórunn hefur opið alla daga nema sunnudaga til klukk-
an 18 og vonast til að hitta sem flesta. „Það kemur mér í jólaskapið,“ segir
hún brosandi.
Jólamarkaður í 25. sinn
Á morgun, laug-
ardag, kl. 13
heldur dr. Terry
Gunnell erindi í
fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns
Íslands.
Í erindinu
fjallar hann um
trú og siði í
kringum ís-
lensku jólin í
aldanna rás, frá heiðnum goðum,
tröllum og álfum til gárunga og
hrekkjóttra íslenskra jólasveina.
Fyrirlesturinn er á ensku og er
aðgangur ókeypis.
Terry Gunnell er dósent í þjóð-
fræði við Háskóla Íslands og býr
ekki aðeins yfir mikilli þekkingu
heldur einstakri frásagnargáfu.
Fyrirlestur um
íslenska jólasiðiÁ morgun, laugardag, kl. 13 fer hið
árlega jólapakkaskákmót Hellis
fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Gera
má ráð fyrir að um 150-250 krakk-
ar á bilinu 5-16 ára, bæði strákar og
stelpur taki þátt í þessu móti sem
hefur farið fram árlega síðan 1996.
öllum krökkum er velkomið að
taka þátt og er skráning á heima-
síðu Hellis, www.hellir.blog.is.
Jólaskákmót
Á morgun, laugardag, verður Ný-
lenduvöruverslun Hemma og Valda
með styrktardag fyrir samtökin
Blátt áfram.
Stelpurnar í 3 röddum og
Sprengjuhöllin verða á svæðinu og
flytja nokkur lög, auk þess sem
Bogomil og félagar flytja nokkur
hinsegin jólalög.
Styrktarkvöld
STUTT
Davíð Hjálmar Haraldssonsettist við laufabrauðsgerð
eins og margir Íslendingar, en
upplifun hans braust út í bundnu
máli:
Er vetrarbáran skreytir sker
og skrýðist landið frera,
löngum mér þá ljúfast er
laufabrauð að gera.
Ég brölti heim við bis og rog
með bakstursvörur fínar
í fjögur hundruð fimmtíu og
fjórar kökur mínar.
Hráefnin ég vó á vog.
Um vit mér svitinn freyddi
er fjögur hundruð fimmtíu og
fjórar kökur breiddi.
Ég hamaðist uns fékk ég flog
en fréttirnar þó bar út:
Ég fjögur hundruð fimmtíu og
fjórar kökur skar út.
Ég tengdi háf með trekk og sog
því tólgin sauð og reykti
og fjögur hundruð fimmtíu og
fjórar kökur steikti.
Við kliðmjúk vers og kertalog
ég klæddi mig og skæddi
og fjögur hundruð fimmtíu og
fjórar kökur snæddi.
Nú sífrandi ég sit með trog,
sáran græt og væli
og fjögur hundruð fimmtíu og
fjórum kökum æli.
Davíð Hjálmar gaf nýverið út
Þriðju Davíðsbók sem hefur að
geyma kvæði af ýmsu tilefni.
Friðrik Steingrímsson las
laufabrauðsbraginn, fannst eitt
erindi vanta og orti í léttum dúr:
Saddur Dabbi sat við trog
samviskan þá beit’ann,
fjögur hundruð fimmtíu og
fjórum kökum skeit’ann.
Loks Hallmundur Kristinsson:
Einn með tár og ekkasog
alla daga og nætur
fjögur hundruð fimmtíu og
fjórar kökur grætur.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af laufabrauði
og Davíðsbók
HRÍFANDI BÓK
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Ljúfsár ... hrífandi
... dramatísk og
einlæg.
Einar Falur Ingólfsson,
Lesb. Mbl.
Unaðslegt að lesa
þetta ... virkilega
góð bók.
Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kiljan
AÐ DREPA MANN ...
ÆVISAGA DAGS
ÖRLAGASÖGUR
Mögnuð
skáldsaga um
glæframenni
og glæpi
þeirra.
„Glæpasaga handa
hugsandi fólki.“
Katrín Jakobsdóttir,
Mannamál.
Ævisaga Dags
Sigurðarsonar
eins umdeildasta
listamanns
þjóðarinnar
á 20. öld
fær frábæra dóma
gagnrýnenda.
Áhrifamiklar
frásagnir
íslenskra kvenna
af örlagaríkum
atburðum í lífi
þeirra.
Ógleymanleg
bók.