Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Síða 66
leg, stíluð til stjórnarinnar og miðast við 1. janúar. Félagið
getur á aðalfundi sínum kosið lieiðursfélaga (og styrktarfélaga).
ef % atkvæða eru því samþykkir. Heiðursfélagar greiða ekki
félagsgjöld.
4. gr.
Stjórn félagsins skipa 5 meðlimir kosnir á aðalfundi: For-
maður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi.
5. gr.
Félagsfundir eru lögmætir ef % gjaldskyldra félagsmanna
eru mættir Nú reynist fundur ekki lögmætur, má þá boða nýj-
an fund skriflega með viku fyrirvara, og er sá fundur lögmæt-
ur án tillits til hve margir mæta. Stjórnin er skyldug til að
kalla saman fund, af 5 félagsmenn krefjast þess.
6. gr.
Aðalfundur skal haldinn á tímabilinu 1. apríl til 1. júlí ár
hvert, getur fundur þó breytt aðalfundartíma, ef sérstaklega
stendur á. Til aðalfundar skal boðað skriflega með 3ja vikua
fyrirvara. Fundurinn er lögmætur, ef /4 skuldlausra félags-
manna eru mættir. Á aðalfundi skal kjósa í stjórn félagsins.
Kosning skal vera skrifleg. Formaður er kosinn til 2ja ára og
má ekki endurkjósast sem formaður næstu 2 ár. Aðrir stjórnar-
menn séu einnig kosnir til 2ja ára og má ekki kjósa 2 þeirra í
stjórn næstu 2 ár. Hlutkesti ræður hverjir 2 séu ekki kjörgeng-
ir aftur í stjórn 2 árum eftir að ný stjórn er kosin. Kjósa má
mann, er gengur úr stjórn sem formann. Fyrst skal kjósa for-
mann, þá varaformann, þá ritara, þá gjaldkera og loks með-
stjórnanda. Fái enginn meira en helming greiddra atkvæða,
skal kosið aftur um þá, er flest atkvæð i hlutu og ræður þá ein-
faldur meirihluti. Iílutkesti ræður, ef atkvæði eru jöfn. Aðal-
fundur getur sett stjórnina af í heild með vantrausttillögu
og þarf illagan % atkvæða fundarmanna á aðalfundi. Bndur-
skoðaðir reikningar félagsins og félagssjóða skulu lagðir fram.
64