Árdís - 01.01.1935, Side 12
10
Aðallega miðuðu hreyfingar þessar, sem þegar hefir Terið
getið, í þekkingar áttina. Konan krafðist frelsis að mega læra. Á
“renaissance”-tímabilinu virðist sem dyr þekkingarinnar hafi
konurn verið opnaðar nieð lítilli fyrirstöðu. Á þeim tíma (á
fjórtándu öld) sá:;u konur á námsbekkju'm skólanna og kven-
kennara rnátti finna í háskólum á ítalíu, Spáni og í Frakklandi.
Kveniæknar voru einnig í öilurn þessum löndum, og auk þess
kvenrithöfundar, skáld og fleira.
En varanlegasti árangurinn af lærdómshreyfingu þessari,
kvenþjóðinni til handa, var sá, að þá spruttu upp víða u'm öll hin
latnesku lönd, nunnu-klaustur með skóla fyrir stúlkur. Voru
margar þessar nunnur (eða kennarar) mjög vel að sér.
Ömurlegt er aö þurfa að kannast við að kirkjan hafi verið sú
stofnun, sem mest ibarðist á móti frelsi kvenna. Ekki aðeins
hamlaði hún framför, heldur braut einnig á bak að miklu leyti Iþað
frelsi, sem fengið var. Kirkjan var voldug á þeim öldum, og
hafði mikil áhrif í stjórnmálum. Svo var það árið 1377, að háskól-
inn í Bologna á ítalíu, þar sem konur höfðu áður bæði lært og
kent, lét útganga ákveðið boð þess efnis, að aldrei framar skyldi
kvenmanni leyft þar inn fyrir dyr, hversu göfug og heiðvirð sem
væri. Eryti nokkur þetta boð, skyldi hún sæta þungri refsingu.
Aðrir fóru að dæmi þessa skóla og loks voru allir háskólar aftur
lokaðir kvenlþjóðinni.
Um lok fimtándu aldar, eða um það leyti er Columbus fann
Ameríku, var kvenfrelsisbaráttan komin í algleyming á Englandi.
Þeir, sem þaðan fluttu síðar til hinnar nýju heimsálfu, fluttu stríð-
ið með sér, því fulltrúar frá báðum hliðum fluttu' þangað. Naum-
as-t voru nýbyggjar þeir búnir að koma sér fyrir í bjálka-kofunum
fyrstu, þegar baráttan hófst á ný. Um hundrað ár var þrefað um
það, hvort stúlkur rnættu læra landafræði, og þegar það var loks
leyft, hvort sæmilegt væri fyrir stúlkur að nema eðlisfræði. Loks
var það borgin Boston. sem lét undan hinni einbeittu mentunar-
kröfu' kvenna, og stofnaði hinn fyrsta gagnfræðaskóla, þar sem
konur áttu' aðgang jafnt körlum, árið 1826, eða fyrir rúmum
hundrað árum síðan. En svo megnri móitspyrnu mætti hann, að
eftir tvö iár, var hann aftur lokaður fyrir stúlkum, og enginn skóli
leyfði stúlkum aðgang eftir það fyr en 1852, eða nærri þrjátíu
árum síðar. Ári seinna, 1853, var stofnaður fyrsti háskóli í heimi
síðan á renaissance-gullöldinni, sem veitti stúlkum aðgang jafnt
sem piltu'm.
Ekki þurfum við að seilast út fyrir okkar eigin þjóðflokk itil
að finna sömu sögu. Fáar af mæðrum okkar og ömmum áttu
kost á að koma inn fyrir skóladyr. Fæstar þeirra höfðu tóm tii
að auðga anda sinn með miklum lestri. Jafnvel þar sem kringum-
stæður voru þannig. á gamla landinu, að sonunum var komið tii
menta, mátti dcttirin sitja heima, og þóttist góð, þegar hún fékk