Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 18
18 Upprifjun
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Ábyrg umræða um Evrópustefnu Sjálfstæðisflokksins þar
sem þitt álit skiptir máli. Allir velkomnir!
Mánudagur 5. janúar kl. 16.00 - 18.00
Hvaða umboð á forysta
flokksins að fá í Evrópumálum?
Bjarni Benediktsson, alþingismaður, og Styrmir Gunnarsson,
fyrrverandi ritstjóri, ræða þær leiðir sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur
frammi fyrir í Evrópumálum á landsfundi flokksins í lok janúar á
opnum fundi í Valhöll. Auðlindahópur Evrópunefndarinnar stendur
fyrir fundinum og eru allir velkomnir.
Taktu þátt í að móta framtíðina
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
sendir bestu óskir um gleðilegt ár ásamt
innilegu þakklæti til allrar þeirra fjölmörgu
sem styrktu og studdu starf nefndarinnar
á síðastliðnu ári og sýndu þannig í verki hinn
sanna jólaanda.
Guð blessi ykkur öll.
Stjórnin.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
Mér finnst bæði hollt oggott í kringum áramótað líta aðeins um öxlog íhuga hvað hefur
gerst og hvernig hefur gengið. Ég
held það væri að bera í bakka-
fullan lækinn að líta til baka og
skoða hvað á daga okkar dreif á
nýliðnu herrans ári 2008, enda
voru þeir fjölmargir sem gerðu því
ógnarári skil.
Ég ákvað því bara að leyfa mér
stórstökk aftur í tímann og reyna
að skemmta ykkur lítillega, les-
endur góðir, og um leið að segja
smásögu, sem aldrei hefur áður
verið sögð á prenti.
Það gerðist stundum í gamla
daga að allt var á suðupunkti innra
með mér og ég beinlínis beit á
jaxlinn til þess að brúka ekki kjaft,
þegar ritstjórar mínir og mentorar,
þeir Matthías Johannessen og
Styrmir Gunnarsson, sögðu við
mig við ákveðin tækifæri, rólegir,
yfirvegaðir og umburðarlyndir:
„Agnes mín, þú þarft að skoða
málið í sögulegu samhengi og hafa
heildaryfirsýn, áður en þú dregur
ályktanir.“
Þetta fannst mér, ungum blaða-
manninum, sem fékk að njóta ná-
ins samstarfs og handleiðslu þeirra
Matthíasar (í 17 ár) og Styrmis (í
rúm 24 ár) sem ritstjóra Morg-
unblaðsins, oft óþolandi, enda hef
ég sjaldnast getað státað af því að
búa í ríkum mæli yfir dyggðinni
þolinmæði, þótt vissulega haldi ég
því fram að eitthvað hafi þol-
inmæði mín aukist með árunum.
Ég held að ég hafi aldrei brúkað
kjaft við Matthías en ég átti það til
að vera mjög frek, ósvífin og há-
vær í andsvörum mínum við
Styrmi og einhvern tíma var ég
jafnvel komin á fremsta hlunn með
að grýta einhverju í hann! Eða
grýtti ég einhverju?!
En auðvitað höfðu þeir báðir
rétt fyrir sér, alltaf þegar við tók-
umst á, hvort sem það var ein á
móti tveimur eða ein á móti einum.
Það hefur reynslan kennt mér. Ég
er fyrir margt löngu búin að sjá
það og viðurkenna þótt brussu-
gangur minn í þá daga sem gekk
út á að skúbba og skúbba hratt og
örugglega og hafa svo bara
áhyggjur af afleiðingum skúbbsins
næsta dag eða ekki hafi ekki leyft
slíkar játningar þá.
Besti skólinn
Það er í smiðju til þeirra Matt-
híasar og Styrmis sem ég leita til
þess að halda mér í því formi rétt-
látrar nálgunar og sögulegrar yf-
irsýnar sem nauðsynlegt er að búa
yfir þegar ákveðin mál eru reifuð.
Skólinn þeirra er sá allra besti
skóli sem ég hef gengið í og mér
er slétt sama hvað öfundartungur
undirmálsslefbera og hælbíta sem
aldrei hafa notið þess að starfa
með og undir ritstjórn Matthíasar
og Styrmis segja um þá og þeirra
ritstjórn á Morgunblaðinu.
Í mínum huga eru þeir risar sem
ég get alltaf litið upp til og leitað
til. Og ég er síður en svo ein um
slíkt viðhorf hér á ritstjórn Morg-
unblaðsins. Og hana nú!
Þennan formála varð ég að hafa
að því sem mig langar nú að fjalla
um en það er enginn annar er Þor-
steinn Pálsson sem einu sinni var
þingfréttaritari Morgunblaðsins og
Staksteinahöfundur, ritstjóri Vísis,
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands Íslands, þingmaður
Reykvíkinga og Sunnlendinga, for-
maður Sjálfstæðisflokksins í 7 ár
og fimm mánuði, og á þeim tíma
forsætisráðherra í eitthvað rúmt
ár.
Loks varð hann ráðherra í
tveimur ríkisstjórnum Sjálfstæð-
isflokksins, 1991-1995 og 1995-
1999, þar sem arftaki hans á for-
mannsstól, Davíð Oddsson, var for-
sætisráðherra. Eftir það hætti
Þorsteinn pólitískum afskiptum, en
þáði það úr hendi ríkisstjórnar
Davíðs Oddssonar að verða sendi-
herra Íslands, fyrst í London í
fjögur ár og svo í Kaupmannahöfn,
mig minnir í þrjú ár. Þetta var inn-
gangur, nauðsynlegur í sögulega
samhenginu þeirra Styrmis og
Matthíasar.
Þjóðarsátt í húfi
Í desember 1990 hafði Þorsteinn
Pálsson verið formaður Sjálfstæð-
isflokksins í rúm sjö ár, eða frá
haustinu 1983. Þarna á jólaföstu,
var Sjálfstæðisflokkurinn í stjórn-
arandstöðu. Framsóknarflokkur,
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
voru í ríkisstjórn undir forsæti
Steingríms Hermannssonar. Ég
var uppfull af áhuga á þjóðmálum
og stjórnmálum og skrifaði mikið
hér í Morgunblaðið af pólitískum
fréttaskýringum og fréttum.
Þjóðarsátt þeirra Einars Odds
Kristjánssonar, Guðmundar J.
Guðmundssonar og Ásmundar
Stefánssonar var kornung þegar
þetta var, ekki einu sinni orðin árs-
gömul og samt var hún í miklu
uppnámi, því við blasti að Stein-
grímur Hermannsson myndi nýta
sér heimild til þingrofs, þar sem
svo virtist í desemberbyrjun, að
ekki væri þingmeirihluti fyrir stað-
festingu bráðabirgðalaganna sem
sett voru á kjarasamning Ólafs
Ragnars Grímssonar fjár-
málaráðherra við BHMR sumarið
1990, sem hefði kollvarpað allri
þjóðarsátt, ef hann hefði ekki verið
gerður ógildur.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði alls
ekki að veita frumvarpinu um stað-
festingu bráðabirgðalaganna braut-
argengi, Hjörleifur Guttormsson,
var sömuleiðis ekki á þeim bux-
unum og þar með hefði ekki verið
þingmeirihluti fyrir frumvarpinu
og ríkisstjórnin þar af leiðandi fall-
in.
Sjálfstæðisflokkurinn, undir for-
ystu Þorsteins Pálssonar, var harð-
lega gagnrýndur af forystumönn-
um Vinnuveitendasambands
Íslands, ekki síst af vini mínum
Einari Oddi Kristjánssyni heitnum,
formanni Vinnuveitendasambands
Viðtalið sem aldrei
Morgunblaðið/RAX
Myndin Þessi mynd af Þorsteini Pálssyni formanni Sjálfstæðisflokksins var tekin á skrifstofu hans í Valhöll fyrir
viðtalið sem aldrei birtist í Morgunblaðinu, en það var tekið á sama stað.
KANNSKI ER ÞORSTEINN PÁLSSON MUN LANGRÆKNARI OG HEFNIGJARNARI EN DAVÍÐ ODDSSON
Fáðu úrslitin
send í símann þinn