Morgunblaðið - 07.01.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.01.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2009 STARFSMENN hverfastöðva borg- arinnar verða á ferðinni næstu daga og hirða upp flugeldarusl á opnum svæðum en ekki verður far- ið sérstaklega inn í húsagötur. Hvatt er þó til þess að íbúar leggist á eitt og hreinsi sjálfir flugeldarusl í sínu nánasta umhverfi. Mælt er með því að fólk setji ekki ruslið í ruslatunni heldur komi sjálft á endurvinnslustöðvar Sorpu. Morgunblaðið/Sverrir Flugeldum hent Á MORGUN, fimmtudag, mun Ólafur Stefáns- son handbolta- stjarna bjóða upp á samræður við foreldra og áhugafólk um líf- ið og uppeldis- mál í Hlégarði í Mosfellsbæ kl. 20.30. Ólafur er áhugamaður um kennslu- og uppeldismál og hefur viðað að sér þekkingu um árabil, bæði upp á eigin spýtur og með há- skólanámi í London, segir í tilkynn- ingu. Aðgangur er ókeypis. Handboltastjarna ræðir uppeldismál Ólafur Stefánsson LÖGREGLAN var kölluð að fjöl- býlishúsi í Kópavogi nokkru eftir miðnætti í fyrrinótt. Kvartað var undan hávaða og sá sem kvartaði sagðist ekki ná að festa svefn. Þeg- ar komið var á staðinn reyndist kvörtunin á rökum reist en heyra mátt óm af hljóðfæraleik út á stétt. Þegar málið var kannað frekar reyndist karl á fimmtugsaldri vera að spila á píanó. Lögreglan segir, að maðurinn hafi verið ölvaður og ekki í neinu standi til að spila á pí- anó eða önnur hljóðfæri. Gat ekki sofið vegna tónlistar HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur með nýrri reglugerð opnað fyrir möguleikann á útgáfu markaðs- leyfa fyrir lyf sem skortur er á og ekki hefur verið sótt um markaðs- leyfi fyrir. Þessar breytingarnar eru þó háð- ar því að almannaheilbrigði og al- mannahagsmunir búi að baki og að viðkomandi lyf hafi markaðsleyfi í öðru EES-ríki. Aðgangur að lyfjum FARÞEGAR Flugfélags Ís- lands í áætlun- arflugi í fyrra voru um 420.000 sem er 2% fækk- un frá árinu á undan. Þar af voru um 22.000 farþegar til Færeyja og Grænlands. Hlutfallslega fjölgaði farþegum mest á leiðinni milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, um 26%, og flugu um 29.000 farþegar þá leið. Á leið- inni til Akureyrar og Ísafjarðar stóð farþegafjöldinn í stað og var um 47.000 þúsund til Ísafjarðar og 200.000 til Akureyrar. Farþegar á leiðinni til Egilsstaða voru um 114.000 sem er 15% fækkun milli ára. Flugfarþegum fækkaði á árinu STUTT „AUÐVITAÐ myndum við gjarnan vilja losa okkur frá vísitölunni en við erum í sömu sporum og svo margir aðrir að okkar lán eru vísi- tölutengd,“ segir Sigurður Páll Harðarson, framkvæmdastjóri Byggingarfélags námsmanna. „Þetta hangir saman, við þurfum að borga af láni og ef við sleppum vísitölunni þá getum við ekki staðið í skilum, það er bara svo einfalt.“ Spurður hvort hann hafi áhyggjur af því að leigusamningum verði í aukn- um mæli sagt upp svarar Sigurður: „Auðvitað höfum við áhyggjur af því. Maður er náttúrlega hræddur um að ef það verður frekari veiking á krónu eða vísitalan hækkar óeðli- lega komi það fram í hærra leigu- verði. Við erum að skoða hvað við getum gert en það er ekki tímabært að upplýsa það eins og er.“ Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „LEIGAN var um 77 þúsund þegar við fluttum þarna inn, svo hækkaði hún um 15% í fyrra sem var ansi mik- ið en hefur svo haldið áfram að hækka um þúsundkall og þúsundkall síðan og fer bara að verða dýrasta leiga á höfuðborgarsvæðinu held ég,“ segir Eggert Ragnarsson sem leigir stúd- entaíbúð í Grafarholti af Bygginga- félagi námsmanna. Íbúðin, sem er 50,1 m² stór, kostar Eggert og konu hans, Amöndu Tyah- ur, nú 92 þúsund krónur á mánuði án rafmagns, og nálgast leiguverðið því að vera um 2.000 kr. á fermetrann. Það er í nokkru ósamræmi við al- mennt leiguverð sem hefur farið lækkandi eftir að hafa verið í hæstu hæðum síðustu ár, en ástæðuna er að finna í vísitölutengingu leigunnar. Íbúðir á almenn- um markaði hafa vart verið sam- keppnishæfar við stúdentaíbúðir, sem fram að þessu hafa verið hag- stæðasti kostur- inn, en það gæti nú verið að breyt- ast. Hræringar hafa verið á leigu- markaði undanfarið, framboð af hús- næði hefur aukist mjög enda hefur mikið verið byggt en jafnframt dregið úr fasteignaviðskiptum. Samkvæmt upplýsingum frá Hús- eigendafélaginu hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað að með- altali um 20-30% frá síðastliðnu sumri. Húseigendur grípa í auknum mæli til þess ráðs að aðskilja leiguna frá neysluvísitölunni til að halda í góða leigjendur þrátt fyrir að hagn- aður standi ekki undir láninu, frekar en að láta húsnæðið standa autt. Sjálfum bauðst Eggerti nýlega stærri íbúð, 80 m², sem er mun nær skólanum og á lægra leiguverði, 80 þúsund kr. á mánuði. Íbúðin hentar þeim hjónum því í alla staði betur en þau sjá sér ekki fært að flytja. „Upp- sagnarfresturinn á íbúðinni er þrír mánuðir frá mánaðamótum, svo að ef ég segi honum upp núna tekur það ekki gildi fyrr en í febrúar og ég gæti ekki flutt út fyrr en í maí.“ Þau þyrftu því að greiða tvöfalda leigu í hátt í 4 mánuði sem þau ráða ekki við. „Þannig að við þurfum bara að búa þarna áfram,“ segir Eggert. Hann segist hins vegar fullviss um að haldi verð á stúdentaíbúðunum, áfram að þróast í öfuga átt við leigu- verð á almennum markaði verði óum- flýjanlega brottflutningur þaðan. Breytingar á leigumarkaði Dæmi eru um að stúdentaíbúðir séu nú dýrari en sambæri- legar íbúðir á almennum markaði vegna vísitölutengingar Eggert Ragnarsson Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is FAXI RE-9 fann fyrstu loðnu ársins kl. 3.30 í gærmorgun. Hún var í Langaneskantinum norður og norð- austur af Langanesi. Börkur NK fann einnig loðnu undir kvöld. Skipið var þá statt um 60 sjómílur ANA af Langanesi. Lundey NS og hafrann- sóknaskipið Árni Friðriksson höfðu ekki fundið loðnu síðdegis í gær. „Við erum fyrst að sjá einhverja loðnu núna þegar við erum komnir 60 sjómílur austnorðaustur úr Langanesinu,“ sagði Sturla Þórðar- son, skipstjóri á Berki NK um kvöld- matarleytið í gær. Þeir voru þá á nyrsta leitarleggnum í sinni leitar- áætlun. Þá var verið að kasta trollinu til að fá sýni úr loðnunni. Sturla sagði að eitthvað hefði sést af loðnu í fiskileitartækjunum en lagði ekki mat á hve mikið það væri. Albert Sveinsson skipstjóri á Faxa RE sagði að fundist hefðu randir og flekkir af loðnu eftir að fyrsta torfan fannst í gærmorgun. Skipið sigldi eftir ákveðnum leggjum og fór ekki af stefnunni til að fylgja torfunum eftir. Þegar rætt var við Albert síð- degis í gær var Faxi búinn að sigla 36 sjómílur í norðaustur með kantinum frá því fyrsta torfan fannst og var enn að finna loðnu. Albert sagði að hún virtist halda sig á svipuðum stað miðað við kantinn. „Það er loðna hérna og lítur út eins og hún hefur gert undanfarin ár, eins og mér finnst þetta vera,“ sagði Albert. Áhöfnin á Faxa hafði tekið tvö sýni úr torfunum og sagði Albert að þetta væri fínasta loðna. „Svæðið sem við erum að skanna er þetta hefðbundna loðnusvæði akkúrat á þessum árstíma,“ sagði Albert. Loðnufundur kom ekki á óvart Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsókna- stofnunarinnar, sagði að búist hefði verið við því að loðna gæti fundist á því svæði sem Faxi var á í gær og eins þar sem Börkur var kominn í gærkvöldi. „Við vitum ekki enn hversu víð- áttumikið þetta er. Þetta var líklegur staður fyrir þá loðnu sem var mæld í desember. Við vonum að þetta haldi áfram,“ sagði Þorsteinn. „Við erum að safna í sarpinn til að geta séð flat- armálið og útbreiðsluna til að geta metið þetta.“ Þorsteinn sagði að ólíklegt hefði verið talið að Árni Friðriksson myndi finna loðnu í þessari leit. Hins vegar voru vonir bundnar við að Lundey myndi finna loðnu, en Þor- steinn sagði það ekki óeðlilegt þótt ekkert fyndist á hennar slóðum. Lundey mun leita austur fyrir Kol- beinseyjarhrygg áður en leit hennar lýkur. Um borð í fiskiskipunum er tækja- búnaður sem hefur verið kvarðaður í samræmi við tæki hafrannsókna- skipanna. Þannig er samsvörun á milli mælinga þeirra. Niðurstöður mælinga fiskiskipanna nýtast því beint við mat á stærð loðnustofnsins. Þorsteinn sagði að gögnunum frá skipunum væri hlaðið niður hjá Haf- rannsóknastofnuninni dag og nótt. Í leiðangri Hafrannsóknastofnun- arinnar seint í fyrra mældust aðeins 270 þúsund tonn af hrygningarloðnu. Aflaregla í loðnu gerir ráð fyrir því að skilin séu eftir í sjónum 400 þús- und tonn af loðnu til hrygningar. Þorsteinn sagði að ef niðurstaða loðnuleitar nú yrði svipuð og í des- ember s.l. þá yrði engin tillaga um veiðikvóta lögð fram. Fyrsta loðnan fannst í Langaneskantinum Faxi RE og Börkur NK voru báðir búnir að finna loðnu í gærkvöldi Morgunblaðið/Kristinn Á milli steins og sleggju LOÐNUSKIPIN Faxi RE, Börkur NK og Lundey NS hafa verið við loðnuleit ásamt hafrannsóknaskip- inu Árna Friðrikssyni. Skipin fóru til leitarinnar síðastliðinn sunnu- dag. Skipin hafa siglt eftir ákveðnum leiðarlínum sem spanna loðnumiðin fyrir norður- og austur- landi. Börkur NK átti að ljúka sinni leit í gærkvöldi eða í nótt. Þá var búist við að Lundey NS og Faxi RE lykju leitinni í dag eða á morgun. Mælinganiðurstöður frá skip- unum eru sendar um gervitungl og er unnið úr þeim hjá Hafrann- sóknastofnuninni.      $%&' $(& $)& $*& $+& $$& ,-&,)& )& . !" / 0  1   .           Loðnu leitað eftir línum Hvað er loðna? Loðnan er smávaxinn fiskur af loðsílaætt. Hún er svonefndur uppsjávarfiskur og heldur sig í torfum nálægt yfirborði sjávar. Hún hrygnir 2-6 ára gömul og drepst oftast að hrygningu lok- inni. Hvernig er loðnan veidd? Loðna hefur verið veidd í hringnót og einnig í flotvörpu. Loðnuveiðar íslenskra skipa náðu hámarki árið 1997 þegar veiddar voru rúmlega 1,3 milljónir tonna. Loðnan hefur aðallega veiðst fyrstu þrjá mánuði ársins. Hve mikið er veitt? Loðnuveiðar sveiflast mjög milli ára. Á síðasta fiskveiðiári var leyfð veiði á rúmlega 157 þúsund tonn- um. Aflinn á fiskveiðiárinu 2007/ 2008 var um 160 þúsund tonnum minni en á fyrra fiskveiðiári. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.