Morgunblaðið - 07.01.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.01.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2009 MENNINGARHÚSIÐ á Dalvík, sem Sparisjóð- ur Svarfdæla er að láta reisa og ætlar að færa sveitarfélaginu að gjöf, verður tekið í notkun á þessu ári. „Þetta er glæsilegt hús og verður notadrjúgt, þarna verður meðal annars bókasafn bæjarins þannig að húsið verður í daglegri notk- un,“ sagði Jóhann Antonsson, formaður stjórnar sparisjóðsins, við Morgunblaðið. Fjölnota salur verður einnig tilbúinn til notkunar í ár. Eins og nærri má geta bíða Dalvíkingar mjög spenntir eftir því að starfsemi hefjist í húsinu, að sögn Jóhanns. Húsið, sem er 700 fermetrar að flatarmáli, er sérstakt og mun setja mikinn svip á bæinn, en það stendur aðeins steinsnar frá Ráðhúsinu í miðjum bænum. Stjórn sparisjóðsins ákvað fyrir fáeinum miss- erum, í ljósi góðrar afkomu sjóðsins, að gefa byggðarlaginu umrætt hús. Var slíkt for- dæmalaust og vakti mikla athygli. Veður hafa skjótt skipast í lofti og margar fjármálastofnanir eru í vandræðum en Jóhann segir að fé hafi verið tekið frá fyrir byggingunni áður en hamfarirnar á fjármálamarkaðnum dundu yfir í haust. Um 300 milljónir króna höfðu verið teknar til hliðar vegna verkefnisins, og segir Jóhann það duga fyrir nánast öllum kostn- aði. Unnið er á fullu við húsið um þessar mundir. Ekki hefur verið ákveðið hvenær það verður tek- ið í notkun, en það verður líklega að mestu leyti tilbúið um mitt ár. skapti@mbl.is Menningarhúsið í notkun á árinu  Sparisjóður Svarfdæla ákvað í ljósi góðrar afkomu 2006 að gefa íbúum sveitarfélagsins glæsi- legt menningarhús  Búið var að taka frá fé fyrir framkvæmdum fyrir bankahrunið í haust Í HNOTSKURN »Stjórn Sparisjóðs Svarf-dæla ákvað, í ljósi góðr- ar afkomu sjóðsins 2006, að kosta byggingu menningar- húss á Dalvík. Tilkynnt var um göfina í febrúar 2007. »Arkitekt hússins erFanney Hauksdóttir og verktaki við húsið er fyr- irtækið Tréverk á Dalvík. » Í menningarhúsinu verð-ur m.a. fjölnota salur, bókasafn, kaffihús og upp- lýsingamiðstöð og mun Dal- víkurbyggð taka við rekstri hússins að byggingu lok- inni. Glæsilegt Menningarhúsið í miðbæ Dalvíkur verður áberandi. Arkitekt er Fanney Hauksdóttir. FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „OKKUR finnst það alveg skelfilegt að taka svona há komugjöld. Það er ekkert óeðlilegt við að hækka þau pínulítið, en að nota þetta sem fé- þúfu, það finnst mér ekki í lagi,“ seg- ir Helgi K. Hjálmarsson, formaður Landssambands eldri borgara. Um áramótin tók gildi ný reglu- gerð um hlutdeild sjúklings í kostn- aði vegna heilbrigðisþjónustu og er þar í fyrsta skipti tekið upp komu- gjald vegna innlagnar á sjúkrahús, utan fæðingardeildar. Helgi segir að þarna sé eins og endranær verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og komugjöldin komi mjög illa við eldri borgara. „Þetta verður þess valdandi að fólk sem á erfitt með að standa undir þessu dregur það að fara til læknis. Það eru ekki allir sem draga beint úr vasa sínum þennan stóra pening, fólk sem á ekki til hnífs og skeiðar.“ Þegar heilbrigðisnefnd samþykkti gjaldtökuna var að sögn miðað við að upphæðin yrði sambærileg komu- gjöldum á slysadeild og bráða- móttöku, sem eru 4.600 kr., en það reyndist á endanum verða talsvert hærra og greiðir almenningur nú 6.000 kr. fyrir að leggjast inn á sjúkrahús frá og með 1. janúar. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða helm- ingi minna, 3.000 krónur. Sjúkrakostnaður hækkar því tals- vert fyrir hinn almenna borgara því auk hinna nýju innlagningagjalda hækka líka komugjöld á heilsu- gæslustöð og gjöld vegna læknavitj- ana, hvort um sig um 400 kr., auk hækkana á ýmsum bólusetn- ingagjöldum. Þá hefur kostnaður við flutning með sjúkrabíl í veikindum hækkað ár frá ári og er nú 4.700 kr. fyrir sjúkratryggða, en var til sam- anburðar 3.500 kr. samkvæmt reglu- gerð árið 2006. Sjúklingur sem þarf á bráðri sjúkrahúsinnlögn að halda og er sóttur á sjúkrabíl þarf því að greiða samtals 10.700 kr. nú, en hefði aðeins þurft að greiða 3.500 kr. fyrir tveimur árum. Ellilífeyris- eða örorkuþegi í sömu sporum þarf þá að greiða 7.700 kr. samtals. Halldór Sævar Guðbergsson, for- maður Öryrkjabandalags Íslands, segir að hækkunin komi ekki aðeins illa við þá sem lifi á strípuðum ör- orkubótum heldur ekki síður þá sem nú lifa af atvinnuleysisbótum. „Við hefðum viljað sjá ríkisstjórnina reyna að ná tekjum með öðrum leið- um, eins og að hækka hátekuskatt eða fjármagnstekjuskatt.“ Hann óttast að þótt gjöldunum sé komið á í skjóli kreppu verði erfitt að losna við þau í framtíðinni, þau muni frekar hækka með tímanum en vera felld niður. „Ég hugsa að þetta sé þá komið til að vera, því miður. Þetta var ekki það sem við von- uðumst eftir að fá í nýársgjöf.“ Morgunblaðið/ÞÖK Á móti Landssamband eldri borgara og Öryrkjabandalagið gagnrýna upptöku komugjalda á sjúkrahús og segja ráðist á garðinn þar sem hann sé lægstur. Komugjöldin slæm þróun  Kostnaður við sjúkraflutning og sjúkrahúsinnlögn í veikindum hefur hækkað um 7.200 kr. á þremur árum  Nýtt gjald kemur illa við eldri borgara og öryrkja HAFÍSINN var víðsfjarri strönd- um Íslands yfir hátíðarnar, sam- kvæmt upplýs- ingum Veð- urstofunnar. Á gervi- hnattamynd sem tekin var í byrjun vikunnar má sjá að hafísjaðarinn var næst landi um það bil 75 sjómíl- ur norðvestur af Vestfjörðum. Að venju má reikna með stökum jökum og röstum nær landi og bið- ur Veðurstofan sjófarendur að fara að öllu með gát. Ekki er útlit fyrir að ísinn færist nær landi næstu daga þar sem vindátt mun að mestu verða af suðri og norðaustri. sisi@mbl.is Hafísinn er víðsfjarri landinu SKIPAKOMUR á Grundartanga ár- ið 2008 voru fleiri en nokkru sinni fyrr. Flutningar um höfnina eru um 1,3 milljón tonn, en fjöldi skipa á árinu var 271, sem er nokkur aukn- ing frá því sem best þekktist áður. Elkem hefur m.a. verið að breyta framleiðslu sinni, sem kallar á meiri umsvif, en einnig hefur fram- leiðsla Norðuráls aukist á síðustu árum. Í auglýsingu er nýtt deiliskipulag fyrir Klafastaðahluta Grund- artanga þar sem til verða yfir 100 iðnaðarlóðir. Nokkrir aðilar hafa verið að spyrjast fyrir um lóðir seg- ir á vef Faxaflóahafna. sisi@mbl.is Mörg skip á Grundartanga NÝSKRÁNINGUM ökutækja fækk- aði um 42% milli áranna 2007 og 2008 eða úr 30.034 fyrra árið í 17.509 árið í fyrra. Eigendaskipti ökutækja á síðasta ári voru 83.589 en þau voru 105.545 á árinu á und- an. Hlutfallsleg fækkun eig- endaskipta nemur því 20,8% milli ára, samkvæmt upplýsingum Um- ferðarstofu. Í janúar 2008 voru u.þ.b. 64% fleiri ökutæki nýskráð en í janúar 2007. Síðan urðu mikil umskipti og í desember 2008 voru nýskráningar aðeins 7,8% af nýskráningum des- embermánaðar ársins á undan en það jafngildir 92,2% fækkun. Mun færri ný ökutæki Tíðkast að rukka komugjöld á sjúkrahús í öðrum löndum? Bent hefur verið á að sambærileg komugjöld við sjúkrahúsinnlögn hafi lengi verið við lýði í Finnlandi og Sví- þjóð. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst státar Ísland þó af því nú að innheimta hæstu gjöldin, 6.000 kr. Í Finnlandi er komugjaldið svipað en ögn lægra, þ.e. 30,3 evrur sem nemur 5.139 ISK. Sambærileg gjöld í Svíþjóð eru ekki ákveðin mið- lægt heldur af hverju héraði fyrir sig, og eru almennt um 80 SEK, sem nemur 1.254 ISK. Ungmenni undir 20 ára aldri eru almennt undanskilin og aldraðir greiða lægri upphæð. Hvernig er gjaldið innheimt? Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun hefur ekki verið ákveðið hvernig standa á að inn- heimtu komugjaldsins, þ.e. hvort sendur verður gíróseðill eða hvort greitt verði á sjúkrahúsinu sjálfu. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.