Morgunblaðið - 07.01.2009, Síða 29

Morgunblaðið - 07.01.2009, Síða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2009 víkinga sem þar bjuggu. Þórunn var bæjarfulltrúi sósíalista og sat í framfærslunefnd Reykjavíkur. Á þeim vettvangi var hún ötull mál- svari lítilmagna. Auk þessa starfaði hún fyrir Mæðrafélagið og Mæðra- styrksnefnd. Við lok síðari heimsstyrjaldar varð til alþjóðleg hreyfing kvenna sem flestar komu úr andspyrnu- hreyfingunni og höfðu kynnst fangabúðum nasista. Þær ákváðu að virkja samtakmátt sinn. Þórunn hreifst mjög af þessum hugmynd- um og varð strax virk í Alþjóða- samtökum lýðsræðissinnaðra kvenna. Hún sat stofnfund samtak- anna í Kaupmannahöfn og hér heima var hún virkur félagi í Menningar- og friðarsamtökum ís- lenskra kvenna. Hún sat um árabil í stjórn MFÍK, sem formaður og í fleiri hlutverkum og sinnti auk þess ýmsum trúnaðarstörfum. Á aðalfundi MFÍK árið 2006 var Þór- unn gerð að heiðursfélaga. Komin yfir fertugt tók Þórunn upp þráð- inn þar sem frá var horfið námi og lauk fyrst kennara- og stúdents- prófi frá Kennaraháskólanum en tók síðan cand.mag. próf frá HÍ 1982. Þórunn ferðaðist víða innan lands og utan og á efri árum var hún enn óbangin við að leggja ein í langferðir hvort sem var til Kúbu eða Kína. Hún talaði tæpitungu- laust og lagði mikið upp úr því að kalla hluti sínu rétta nafni: Bragg- ar hétu herskálar og varnarlið var hernámslið og kvennafrí var kvennaverkfall. Stjórn Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK sendir börnum Þórunnar og fjölskyldum samúðarkveðjur. Minningin um heiðarlega hugsjónakonu verði okkur öllum hvati til að standa vörð um frið og jöfnuð. María S. Gunnarsdóttir, form. Menningar- og frið- arsamtakanna MFÍK. ✝ Innilegar þakkir fyrir hlýhug, vináttu og samúð við andlát og útför GUÐLAUGAR EINARSDÓTTUR, Víghólastíg 14, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á krabba- meinslækningadeild 11E á Landspítalanum og á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun og stuðning. Sveinbjörn Björnsson, Björn Már Sveinbjörnsson, Einar Örn Sveinbjörnsson, Guðrún Karlsdóttir, Hólmfríður Frostadóttir, Ísak Helgi Einarsson, Þorvaldur Bragason, Guðrún Jóhannsdóttir, Birna Þorvaldsdóttir, Bragi Þorvaldsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og vinur, ELÍN J. ÞÓRÐARDÓTTIR, Kópavogsbraut 1a, Kópavogi, lést fimmtudaginn 1. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 8. janúar kl. 15.00. Elín J. Jónsdóttir Richter, Reinhold Richter, Valgerður Þ. Jónsdóttir, Árni Þórarinsson, Arngunnur R. Jónsdóttir, Helgi Rúnar Rafnsson, Jón Þórir Ingimundarson, Elín Ingimundardóttir, Ingimundur Eyjólfsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur, afi og bróðir, ÞORSTEINN I. SIGURÐSSON húsasmíðameistari, Faxafeni 12, Reykjavík, varð bráðkvaddur laugardaginn 3. janúar. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 14. janúar kl. 13.00. Signý Rós Þorsteinsdóttir, Guðmundur Úlfar Jónsson, Sigurður Þorsteinsson, Ágústa Helga Vigfúsdóttir, barnabörn og systkini. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS MAGNÚSSON, Maggi í Dölum, Kirkjuvegi 31, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugar- daginn 3. janúar. Birna Rut Guðjónsdóttir, Aðalheiður Svanhvít Magnúsdóttir, Eggert Sveinsson, Gíslína Magnúsdóttir, Gísli Óskarsson, Magnea Ósk Magnúsdóttir, Daði Garðarsson, afabörn og langafabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MUNDA KRISTBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Sunnuvegi 7, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi sunnu- dagsins 4. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helgi Ólafsson, Guðmundur Óli Helgason, Guðrún Lára Helgadóttir, Christer Allanson, Þórólfur Örn Helgason, Hulda Hrönn M. Helgadóttir, Kjartan Orri Helgason, Guðlaug Erla Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTBJÖRG JAKOBSDÓTTIR, Sunnuvegi 9, Hafnarfirði, andaðist á Landspítala, Fossvogi mánudaginn 5. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jón Finnsson, Kristín Jónsdóttir, Ásbjörn Snorrason, Kristbjörg Tinna, Jón, Tindur Orri, Ylfa Hrönn, Styrmir Ási Kaiser. Lúlú varð tíðrætt um liðna tíð og um eiginmann sinn Guðjón Baldvin sem lést fyrir aldur fram 1993. Þau höfðu þekkst frá barnæsku og voru óaðskiljanleg alla tíð. Fráfall Badda, eins og Lúlú kallaði hann, var henni mikið áfall og hún varð aldrei söm. Lúlú var tíður gestur heima hjá okkur Bryndísi og hafði sérstakt lag og mikið dálæti á börnum okk- ar Bryndísar, Baldvini og Jóhönnu Vigdísi, og gætti þeirra oft og hafði gaman af. Baldvin er skírður í höf- uðið á öfum sínum og Lúlú þótti hann vera nákvæm eftirlíking af afa sínum Badda og var ekki leið- um að líkjast. Amma Lúlú, eins og krakkarnir kölluðu hana, var natin við þau, sýndi þeim hlýju og þeim fannst alltaf gaman að koma á Laugarásveginn til ömmu meðan ástand hennar leyfði. Lúlú fór með okkur fjölskyldunni í sumarfrí til Flórída tvö ár í röð fyrir nokkrum árum. Þá þegar var farið að bera töluvert á hennar sjúkdómi en engu að síður naut hún sín til hins ýtrasta. Ólafur Friðrik, fóstursonur minn, var alla tíð augasteinn ömmu sinnar og afa. Hann var tengda- mömmu stoð og stytta eftir fráfall Badda og hann naut þess að vera á Laugarásveginum. Milli þeirra ríkti einlægt og náið samband alla tíð. Lúlú var tíguleg kona og glæsi- leg og sómdi sér vel við hlið eig- inmanns síns. Þeim hjónum vegn- aði vel enda samstillt bæði og dugmikil, kappsöm og vel úr garði gerð. Tengdamamma var menntað- ur íþrótta- og teiknikennari en lengst af helgaði hún heimili og börnum starfskrafta sína. Í minningunni geymist mynd af þér, Lúlú, heima í Reynhlíðinni, kátri og glaðri að spjalla um liðna tíð yfir kaffibolla að gantast við börnin. Ég er þakklátur fyrir sam- fylgdina í gegnum árin, fyrir þá hlýju, alúð og ræktarsemi sem þú sýndir mér og öllum börnum okkar Bryndísar. Nú er amma Lúlú farin að hitta manninn sinn hjá Guði sögðu krakkarnir. Far þú í Guðs friði. Guðjón Baldursson. ✝ Hilmar Bieringfæddist í Reykjavík 23. des- ember 1927. Hann lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 22. desember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Moritz Biering, f. 10.6. 1877, d. 26.10. 1945, og Þorbjargar Sæmundsdóttur, f. 17.6. 1886, d. 29.12. 1973. Hann var yngstur átta systk- ina og látin eru Pétur Wilhelm, Emilía, Magnús, Lousie og Vil- helmína. Eftirlifandi systur hans eru Anna, f. 1912, og Hulda Ingibjörg, f. 1922. Hilmar kvæntist hinn 10.6. 1948 Helgu Pálsdóttur, f. 5.11. 1926. Foreldrar hennar voru Páll Friðriksson, d. 1935, og Sól- veig Danivalsdóttir, d. 1972. Börn Hilmars og Helgu eru 1) Hildur, f. 1949. Sonur hennar er Kjartan. 2) Páll, f. 1951. Börn hans eru Lóa Katrín og Garðar Helgi. Með Guðrúnu Árnadóttur átti Hilmar soninn Ara, f. 1954. Börn hans eru Selma, Jón Berg- ur, Steingrímur og Stefán. Hilmar hóf nám í Herberts- prenti 1943 og lauk sveinsprófi í setningu 1948. Vann við prent- verk til ársins 1952. Vann með hléum hjá Bandaríkjaher frá 1952 til 1968, síðast sem yfirmaður vöruflutninga. Árið 1970 hóf Hilmar störf hjá Reykjavík- urborg og vann hjá borginni til ársins 1993 þegar hann lét af störfum sökum aldurs. Framan af starfaði hann sem fulltrúi í hag- fræðideild og síðar var hann deild- arfulltrúi í fjár- mála- og hag- sýsludeild. Hann sat í kjörstjórn í öllum kosningum í Reykjavík frá 1970 til 1994 og í 15 ár sá hann um útgáfu Árbókar Reykjavíkur. Árið 1990 var hann skipaður af heilbrigðisráðherra í stjórn Heyrnar- og talmeina- stöðvar Íslands þar sem hann sat til ársins 1994. Hilmar var mjög ritfær maður og á yngri árum gaf hann út tvö tímarit, Víðsjá og Myndablaðið. Hann ritaði fjölda greina í Morgunblaðið og þá aðallega um Reykjavík. Borgin og saga henn- ar var honum alla tíð afar hug- leikin og á efri árum setti hann saman rit sem hefur að geyma margháttaðan fróðleik um sögu Reykjavíkur. Útför Hilmars fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Hilmar móðurbróðir minn lést að morgni 22. desember. Hann fædd- ist í Reykjavík 23. desember. Þessi afmælisdagur er mér eins og mörgum í fjölskyldunni minnis- stæður af því að á þessum degi hittumst við systkinabörnin með foreldrum okkar í afmælisboði frænda. Þetta var afar kærkomið yngri kynslóðinni þar sem það stytti biðina eftir sjálfum jólunum. Hilmar var yngstur í hópi átta systkina. Af þessum systkinahópi eru nú aðeins tvær systur á lífi, önnur þeirra er móðir mín. Mörgum hlýjum minningum um hann deildi hún með okkur börnum sínum þegar við komumst til vits og ára. Meðal þeirra eru minningar hennar um Hilmar á æskuheimili þeirra á Laugavegi 6. Líklega hef- ur að mati móður minnar ekki fæðst fallegri drengur í Reykjavík á þessum tíma en Hilmar, og það þrátt fyrir að stóru systur hans fyndist það nánast óviðeigandi að vera að eignast lítinn bróður þá orðin 15 ára. Uppi varð fótur og fit hjá systrum Hilmars þegar afi tók á sig rögg og lét klippa strákinn, sem var með axlasítt hár allt í slöngulokkum, og áttu þær erfitt með að fyrirgefa honum framtakið. Þegar Hilmar komst á fullorð- insár bjó hann hjá foreldrum sín- um ásamt Mínu systur sinni þar til hann kvæntist. Þegar afi dó 1945 hafði hann legið banaleguna heima. Húsnæðið var ekki stórt, aðeins herbergi og stofa. Mamma mín bjó á þessum tíma með tvo elstu bræð- ur mína í sumarbústað í Kópavogi við erfiðar aðstæður þar sem pabbi var á þessum tíma veikur á sjúkra- húsi. Það stóð ekki á því hjá ömmu og systkinum mömmu að bjóða henni að flytja til þeirra með drengina, þar sem þau bjuggu þar til rættist úr húsnæðismálum fjöl- skyldunnar. Alla tíð var mjög kært með Hilmari og systkinum hans og fylgdust þau náið hvert með öðru í gleði og sorg. Einn af eftirminni- legustu dögunum í fjölskyldunni var þegar Hilmar gekk að eiga Helgu. Hún varð mikilvægur hluti af fjölskyldunni og var ævinlega kölluð Helga mágkona. Helga og Hilmar fögnuðu á síðastliðnu ári 60 ára hjúskaparafmæli sínu. Ég minnist frænda míns sem manns sem þótti vænt um fjöl- skyldu sína og hafði áhuga á hvernig henni farnaðist. Það var ljúft að setjast niður með þeim hjónum því bæði voru þau víðlesin, skemmtileg og miðluðu af miklum fróðleik. Hilmar hafði fylgst með vexti og viðgangi miðbæjarins, og lét sér annt um sögu hans. Hann aflaði sér mikilla upplýsinga um uppbyggingu Reykjavíkur, var manna fróðastur um þá þætti og var búinn að skrifa talsvert um sögu borgarinnar. Hilmar bar menningarbrag Reykjavíkur frá fyrri hluta síðustu aldar gott vitni. Viðmót hans einkenndist af kurt- eisi og hlýju. Kærastar eru mér endurminningarnar um allar þær yndislegu stundir sem við mamma sátum í stofunni hjá Hilmari og Helgu á Flyðrugrandanum og þau umvöfðu okkur með kærleik sínum og hlýju. Bestu þakkir fyrir allt. Megi minningar um góðan mann verða Helgu, Hildi, Palla, fjölskyld- um þeirra og vinum styrkur í sorg þeirra. Auður Sigurðardóttir. Hilmar Biering

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.