Morgunblaðið - 07.01.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 07.01.2009, Síða 34
34 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2009 Svo er það nú líka svo að það að þegja segir meira en mörg orð. 37 » BEDROOM Community hefur undanfarið staðið fyrir tón- leikum á Kaffibarnum fyrsta miðvikudagskvöld hvers mán- aðar. Útgáfan heldur upp- teknum hætti og fagnar nýju ári með tónleikum í kvöld kl. 21. Fram koma þeir Nico Muhly, Helgi Hrafn Jónsson og Matthew Collings, sem allir munu flytja nýtt efni og leika hver með öðrum. Nico Muhly, tónskáld og píanó- leikari, lærði tónsmíðar í Juilliard í New York, Helgi Hrafn Jónsson er söngvari og básúnuleikari og Matthew Collings er breskur tónlistarmaður búsettur á Íslandi. Allir gefa þeir tónlist sína út hjá Bedroom Community. Tónlist Svefnherbergis- samfélagið spilar Nico Muhly START Art listamannahús opnar fyrstu sýningar nýs árs á morgun kl. 17. Árni Bartels sýnir verk á báðum hæðum og Sveinbjörg Jónsdóttir sýnir í Vestursal á neðri hæðinni. Listamenn Start Art sýna einnig valin verk. Verkin sem Árni sýnir eru abstrakt- málverk unnin með olíu, en Sveinbjörg sýnir verk sem hún kallar Kennimyndir. Í þeim birtast svipmyndir frá slóðum forfeðra, svipmyndir sem hafa á einhvern hátt markað líf þeirra eða verið hluti af lífshlaupi þeirra. Látrabjargið sem hefur tekið ótal mannslíf – vitinn sem hefur bjargað ótal mannslífum. Start art er að Laugavegi 12b. Myndlist Árni og Sveinbjörg sýna í Start Art Start Art LÍTA listaverk eins út þegar þau hanga innan um föt eða samlokur? Er auglýsingaskilti á safni orðið að listaverki? Leitað verður svara við spurn- ingunum í listaverkagöngu annað kvöld kl. 20, þar sem Alma Dís Kristinsdóttir fræðslufulltrúi Listasafns Reykjavíkur leiðir fólk að lista- verkum í nýju ljósi. Ferðin hefst í A-sal Hafnarhússins og færist svo út fyrir veggi safnsins. Tilgangurinn er að skoðað lista- verk safnsins sem komið hefur verið upp hjá verslunum í miðborginni og hluti sem sömu fyr- irtæki lánuðu safninu á sýningu í Hafnarhúsinu. Hlynur Hallsson er sýningarstjóri. Myndlist Hvar eiga lista- verk heima? Hlynur Hallsson Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HANN var kallaður Villi og gat spilað á fiðlu og stjórnað hljómsveit um leið. Ár eftir ár kom hann með nýja árið inn í stofu, og þegar hann kom og spilaði vissi maður að það var bjart framundan. Betri helmingur ársins var í augsýn, handan við fáein hret, en hann var fyrirboðinn. Hann hét reyndar Willi Boskovsky og var Austurrík- ismaður; konsertmeistari Fílharmóníusveitarinnar í Vín- arborg. Hann var síbrosandi og virtist óendanlega glaður í hlutskipti sínu. Samt var hann ekki stjórnandinn, en þessum tónleikum, nýárstónleikum hljómsveitarinnar í sal Tónlistarfélagsins í Vínarborg – Musikverein, stjórnaði hann alla mína bernsku eftir að sjónvarpið fór að miðla list hans heim í stofu um áramót. Villi hafði þann hæfi- leika að miðla gleði. Vínartónlistin var kannski ekki svo skemmtileg, og ekki minnist ég þess að mig hafi langað að hlusta á hana – nema þegar dagur Villa rann upp í árs- byrjun. Svo var beðið eftir dönsunum sem komu í sumum lögunum, og þeir voru flottir. Milljarður manna horfir á nýárstónleika frá Vín Í aldarfjórðung, frá 1955-1979 stjórnaði Willi Bosk- ovsky nýárstónleikum Vínarfílharmóníunnar og gerði þetta fyrirbæri – Vínartónleikana – að slíkum viðburði að víðast hvar í hinum vestræna heimi eru nú haldnir Vín- artónleikar af ýmsum gerðum í byrjun árs. Áætlað er að milljarður manna horfi á tónleikana ár hvert, en þeim er sjónvarpað til tæplega 50 landa, þar af til átta Afr- íkuríkja. En Willi Boskovsky var ekki upphafsmaður hefð- arinnar. Clemens Krauss hét stjórnandinn sem fyrstur efndi til árlegra tónleika Vínarfílharmóníunnar, með tón- list eftir Strauss-feðga og samtímamenn hans. Það var ár- ið 1929. Hann tók upp þráðinn þar sem höfuðtónskáld vín- arvalsanna, Jóhann Strauss yngri, skildi hann eftir við andlát sitt árið 1899; tilgangurinn var að gleðja með glað- legri tónlist sem höfðaði til alþýðu manna. Vínartónleikarnir hafa margir verið minnisstæðir, ekki síst þeir sem Austurríkismaðurinn Herbert von Karajan stjórnaði 1987, eftir að hafa verið í hálfgerðri músíkútlegð frá föðurlandinu og Vínarvölsunum um árabil, þar sem hann var sagður hafa verið hallur undir nasistaflokkinn í Þýskalandi þar sem hann bjó og starfaði. Þar gerði hann Fílharmóníusveitina í Berlín að stórveldi meðal hljóm- sveita. Nýárstónleikarnir í ár, með Daniel Barenboim, eiga líka eftir að lifa lengi í minninu. Barenboim er mikill listamaður; kom eins og ferskur andvari inn í hið aldna vígi Musikverein og stjórnaði af meiri snerpu og listfengi en heyrst hefur þar mörg undanfarin ár. Villi gerði þá að viðburði  Milljarður manns horfir á útsendingar frá nýárstónleikum Fílharmóníu- sveitarinnar í Vín  Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur ferna Vínartónleika í ár Musikverein Salur Tónlistarfélags Vínarborgar þar sem Nýárstónleikarnir eru haldnir. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞETTA er mjög skemmtileg bók, og það sem mér finnst svo frábært við hana, er að hún verður gefin út í þremur heimshornum, og á því eftir að fara víða,“ segir Kristín Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Hönn- unarmiðstöð Íslands, um bókina Nordic Architects, sem er nýútkomin hjá Arvinius- forlaginu í Stokkhólmi. Þar er fjallað um 70 framsæknar arkitektastofur í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð og vakin athygli á nýlegum verkum reyndra arkitekta og hæfileikafólks á uppleið í greininni. Bókin gefur jafnframt glögga mynd af norrænni arkitekt- úrstarfsemi í upphafi 21. aldar. Arkitektar segja sjálfir frá í bókinni og ræða um þau tækifæri og þá ögrun sem felst í því að starfa í umhverfi með sterkri hönnunarhefð og jafnframt það að gera uppreisn gegn henni. Arkitektarnir og verk þeirra gefa jafn- framt innlit í tækni- og alþjóðavæðinguna, hraða upplýsingasamfélagsins svo og vax- andi vinsældir hönnunar og samsvarandi aukningu þverfaglegrar stafsemi. Íslensku arkitektastofunni Arkitektar Hjördís & Dennis var boðið að vera með í bókinni og er þar fjallað um Sendiherrabú- staðinn í Berlín, sem lokið var við að byggja árið 2006 samkvæmt verðlaunatillögu þeirra. Höfundur bókarinnar er David Sokol í New York. Bókin er vönduð að allri gerð, 448 síður með 350 ljósmyndum. Hún er einnig gefin út hjá Dom Publisher í Berlín fyrir Þýskalandsmarkað og hjá Page One Publishing í Singapúr fyrir Asíumarkað. „Bókin er athyglisverð og það er mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa íslenska arki- tekta þarna á meðal,“ segir Kristín. Kristín kveðst hafa það sterklega á til- finningunni að mun minna sé gefið út á Ís- landi af bókum um arkitektúr en erlendis. Því sé bók um norrænan arkitektúr, þar sem íslenskir arkitektar séu með, mikils verð. Arkitektúr á bók  Bók um norrænan arkitektúr gefin út í þremur löndum  Íslenskir arkitektar meðal þeirra sem fjallað er um Hús Sendiherrabústaðurinn í Berlín. DÓMSTÓLL í Nashville, Tennes- see, hefur fellt þann dóm að Fisk- háskólinn þar í borg skuli opna aftur sýningarsali sína þar sem verk eftir myndlistarkonuna Georgiu O’Keeffe og fleiri fræga listamenn hafa verið til sýnis lengi. Háskólinn berst hins vegar fyrir því að fá að selja verkin en þau voru gjöf frá listakonunni. Úrskurður dómsins kvað á um það að ef skólinn opnaði ekki sýninguna undir eins, yrði gjöfin gerð upptæk og skilað til erfingja listakonunnar. Áfrýjunardómstóll tekur málið til meðferðar nú í vikunni. Fisk-háskólinn var upphaflega há- skóli fyrir blökkumenn, og O’Keeffe gaf skólanum listaverkagjöfina vegna þess að á þeim tíma, árið 1949, voru velflest söfn lokuð blökku- mönnum vegna kynþáttaaðskiln- aðar. Verkin voru úr safni látins eig- inmanns hennar, ljósmyndarans Alfreðs Stieglitz. Í gjöfinni voru ekki bara verðmæt verk eftir O’Keeffe sjálfa, heldur einnig eftir meistara á borð við Picasso, Renoir, Cézanne og Diego Rivera. Má ekki selja O’Keeffe Fisk-háskólanum ber að virða gjöf listakonunnar O’Keeffe Þessi fræga mynd, Rad- iator Building – Night, New York er meðal verka listakonunnar. SEBASTIAN Barry hreppir Costa- bókaverðlaunin í ár fyrir skáldsögu sína The Secret Scripture. Diana Athill, 91 árs, fær verðlaun fyrir bestu ævisöguna Somewhere Tow- ards the End. Besta byrj- andaskáldsagan var valin The Out- cast eftir Sadie Jones og ljóðaverðlaun Costa fær Adam Foulds fyrir bókina The Broken Word. Michelle Magorian fær barnabókaverðlaunin fyrir Just Henry. Costa-verðlaun Á Íslandi heldur Sinfóníuhljómsveit Ís- lands árlega Vínartónleika, ferna í þetta sinn, í kvöld og þrjú næstu kvöld kl. 19.30 í Háskólabíói. Á Vínartónleikum Sinfón- íuhljómsveitarinnar er hefð fyrir því að einsöngvarar séu gestir hljómsveit- arinnar, og að þessu sinni er það Dísella Lárusdóttir, sem hefur gert garðinn fag- urgrænan í Bandaríkjunum, þar sem hún hefur unnið til viðurkenninga og verð- launa fyrir söng sinn. Heimildir herma að á Vínartónleikunum syngi hún bæði „Viljuljóðið“ úr Kátu ekkjunni, „Dein ist mein ganzes Herz“ úr Brosandi landi, „Mein Herr Marquis“ úr Leðurblökunni og „Glitter and be Gay“ úr Candide og jafnvel fleiri klassískar óperettu- og söng- leikjaperlur. Hljómsveitin leikur hefðbundna Vínar- smelli og óperettuforleiki. Hljómsveit- arstjóri Vínartónleikanna í ár er for- vitnilegur. Hann er þýskur, heitir Markus Poschner og er einn af nemendum hljóm- sveitarstjórafabrikkunnar frábæru, Jorma Panula í Finnlandi, og sir Colins Davis. Hann starfar nú við Komische Oper í Berlín. Dísella syngur með Sinfóníunni Dísella Syngur aríur úr óperettum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.