Morgunblaðið - 07.01.2009, Side 40

Morgunblaðið - 07.01.2009, Side 40
Geggjað Lady Gaga veit sem er að poppið þarf að stílísera. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Ekki er hægt að segja annað enað þéttingsfast sé haldið umspaðana í hinu háa breska ríkisútvarpi, BBC. Und- anfarin ár hefur miðillinn staðið fyrir íburðarmikilli forspá fyrir tónlistarárið og eru yfir 130 málsmetandi aðilar úr öllum öngum poppmúsíkur fengnir til að leggja lóð sín á spádómsvogarskálarnar. Þessi forspá hefur reynst lygilega rétt síðan hún hófst árið 2003 sem sýnir líklega meira hversu mikil áhrif BBC hefur á hlustunarmynstur þjóðarinnar (og þá um leið, restina af poppheimi). Þegar hefur listi yfir fimmtán tónlist- armenn og hljómsveitir verið birtur og nú stendur yfir niðurtalning á fimm efstu sætunum. Sigurvegarinn verður tilkynntur nú á föstudaginn. Söngkon- urnar Adele og Duffy voru áberandi á síðasta ári, auk hefðbundins skammts af gítarrokki. Í ár er hins vegar veðjað á lit- ríkt svuntuþeysaralegið tölvupopp að hætti níunda áratugarins. Rennum að- eins yfir nöfnin fimmtán: **COLR**The Big Pink Dúett frá London sem leikur sér með talsvert víraðan hljóðheim; sömpl og alls kyns torkennileg hljóð mynda furðuleg, en um leið nett aðgengileg lög. Ekki furða að sveitin hefur verið að spila nokkuð með TV On the Radio. Empire of the Sun Sýruskotið rafpopp frá Ástralíu og bara giska smellið. Um er að ræða dúett og koma meðlimir hvor úr sinni sveit- inni, danssveitinni Pnau og rokksveit- inni The Sleepy Jackson. Stór plata, Walking on a Dream, kom út síðasta haust. Kid Cudi Rappgiskið í ár. Tuttugu og þriggja ára gamall skjólstæðingur Kanye West, kemur frá Cleveland Ohio af öllum stöð- um og leikur sér að sambræðslu rapps og danstónlistar. Little Boots Little Boots er listamannsnafn Victo- riu nokkurrar Hesketh. Hún hefur verið að vinna með Joe Goddard úr Hot Chip og hennar aðall er torkennilegt japanskt hljóðfæri sem kallast tenorion. Und- arlegt ... en svínvirkar! Passion Pit Skringileg – en grípandi – raftónlist er greinilega málið samkvæmt BBC. Ímyndið ykkur blöndu af MGMT og Hot Chip og þá eruð þið komin ansi nálægt. Dan Black Kauði var eitt sinn í annarar deildar ný- rokkssveitinni The Servant en hefur end- urskapað sig sem nokkurs konar tölvu- og danstónlistartrúbadúr. Justin Timberlake á sýru. Florence and the Machine Duttlungarfull díva a la Björk, PJ Har- vey og Kate Bush. James Ford úr Simian Mobile Disco/The Last Shadow Puppets er að vinna að fyrstu stóru plötu hennar. Spennandi. La Roux Hmmm...dúett sem vinnur með hljóð- gervlapopp frá níunda áratugnum. Kunn- uglegt? „Við hlustum bara á eitístónlist,“ segir söngkonan. Svo einfalt er nú það. Master Shortie Helsta von Bretans í hipp hoppi. Mast- er Shortie er ekki nema nítján ára en blandar saman „grime“, hipp hoppi, poppi og nýbylgju eins og ekkert sé. The Temper Trap Rokksveit frá Melbourne, og það frem- ur hefðbundin bara. Dramatískt og stórt rokk að hætti U2/Coldplay með fals- ettusöng og öllu. VV Brown Söngkonan kallaði sig áður Vanessu Brown og reyndi sig þá við fremur venju- legt „R&B“ popp. Nú setur hún hins veg- ar sniðugan snúning á fortíðarskotið sál- arpopp Amy Winehouse et al. Gæti hugsanlega slegið massíft í gegn... Frankmusic Vincent Frank heitir pilturinn sem stendur að baki þessu verkefni. Hann hef- ur að mestu verið að fást við endur- hljóðblandanir fyrir aðra en stígur nú fram sem sólólistamaður. Justin Timber- lake, á heldur minni sýru. Lady GaGa Þessi New York „hippster“ gerði það harla gott í fyrra með laginu „Just Dance“ og er þegar búin að gefa út stóra plötu, The Fame. Skærbleik og -blá endur- vinnsla, það er það sem gildir í dag. Mumford & Sons Eitthvað allt annað, loksins. þjóðlaga- sveit, partur af Londonsenunni (Noah and the Whale, Laura Marling). Banjó og líf- ræn hljóðfæri. Gangi þeim vel blessuðum. White Lies Síð-síðpönk a la Editors og Interpol. Svartar skyrtur, mjó bindi, djúpur bari- tónn ... þið þekkið þetta. Næsta Amy Winehouse? VV Brown vinnur skemmtilega með þátíðarpoppið og gæti hugsanlega slegið „massívt“ í gegn. Svona hljómar árið 2009  BBC birtir lista yfir helstu vonarstjörnur þessa árs í tónlistinni  Listinn hefur reynst furðu sannspár hin síðustu ár Sýra Empire of the Sun leika grillað gæðapopp. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2009 / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA TWILIGHT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára CITY OF EMBER kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára BODY OF LIES kl. 10:20 B.i. 16 ára YES MAN kl. 6D - 8:10D - 10:30D B.i. 7 ára DIGITAL THE SPIRIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára BOLT m/ísl. tali kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL BOLT m/ensku tali kl. 8:103D LEYFÐ 3D - DIGITAL TWILIGHT kl. 10:20 B.i. 12 ára “JIM CARREY KEMUR LOKS INN Í GRÍNIÐ AFTUR EFTIR FULLLANGA FJARVERU, OG HANN VELDUR ALLS EKKI VONBRIGÐUM!” TOMMI - KVIKMYNDIR.IS VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA V.J.V TOPP5.IS FILMCRITIC.COM SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKASVALASTA MYND ÁRSINSSÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI YES MAN kl. 6 - 8D - 8:20 - 10:20D - 10:40 B.i. 7 ára DIGITAL YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára LÚXUS VIP THE SPIRIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára BOLT m/ísl. tali kl. 5:503D LEYFÐ 3D DIGITAL MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREY BBC hóf að vinna þessa rækilegu spá sína árið 2003. Hér fer listi yfir sigurvegara síðustu ára og fleiri listamenn sem náðu að „meika“ það fyrir tilstuðlan breska ríkisútvarps- ins 2003 50 Cent, The Thrills, Interpol 2004 Keane, Franz Ferdinand. Joss Stone 2005 The Bravery, Bloc Party, Kaiser Chiefs 2006 Corinne Bailey Rae, Guillemots, Clap Your Hands Say Yeah 2007 Mika, Klaxons, Cold War Kids 2008 Adele, Duffy, Glasvegas, Sjóðheitir listamenn síðustu ára Fleiri málsmetandi miðlar hafa sett saman spádóma fyrir nýhafið popp- ár: The Times La Roux, Broken Records, Emoire of the Sun, White Lies, Pumeza Matshikiza. The Guardian VV Brown, La Roux, Telepathe, Jo- nathan Jeremiah, Mirrors The Independent Daniel Merriweather, Empire Of The Sun, Wounded Knee, Skint & Demor- alised, Little Boots NME Florence and the Machine, Kid Cudi, Empire of the Sun, Red Light Comp- any, The Virgins Drowned in Sound Grammatics, Catherine A.D., It Hugs Back, Mumford And Sons, Sky Larkin Hvað segja aðrir miðlar?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.