Morgunblaðið - 09.01.2009, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
7. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Samkvæmt könnun MMR um
traust fólks á aldrinum 18–67
ára til fjölmiðla, dagana
19.–23. des.
Óskorað
traust til
Morgunblaðsins
64,3% mikið traust
lítið traust
11,4%
41,2%
24,5%
Leikhúsin
í landinu >> 49
LISTIR
UNDARLEG ÞJÓÐ OG
EVRÓVISJÓNSJÚK
DAGLEGTLÍF
Munnurinn getur
ekki sagt orðin
Reuters
Barist um boltann Frank Lampard
og Franck Moussa í baráttunni.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
365 miðlar hf., sem reka Stöð 2 og
Stöð 2 Sport, standa nú í samn-
ingaviðræðum vegna sýningarrétt-
arins á enska boltanum við erlenda
birgja sína, eigendur sýningarrétt-
arins. „Við eigum í viðræðum við
rétthafana á þessu myndefni um
lækkun á innkaupsverðinu. Þeim
samningaviðræðum er ekki lokið,“
segir Ari Edwald, forstjóri 365
miðla.
Hann vill ekki nefna tölur um
það hver kostnaðurinn er af sýn-
ingu enska boltans á ári hverju, en
háar tölur hafa verið nefndar í því
samhengi, allt upp undir milljarð
króna. „Það var bankaábyrgð fyrir
hendi í gamla Landsbankanum fyr-
ir okkar greiðslum. Ég vil ekki tjá
mig um stöðu þess máls. Þetta er
allt í skoðun,“ segir hann og vill
ekki svara því hvort sú ábyrgð hafi
fallið niður við hrun bankans.
Hins vegar segir Ari ljóst að frá
því samningur var gerður um kaup
á efninu hafi hann orðið stórlega
óhagstæður félaginu. „Það er alveg
klárt að fall krónunnar hefur haft
mjög mikil áhrif á okkar rekstur.
Við höfum þó lokið samningum við
flesta okkar birgja. En enski bolt-
inn er auðvitað mjög stór biti,
langstærsti bitinn reyndar.“
Hann segir rétthafana vita um
og skilja þær aðstæður sem ríki á
Íslandi. „Þeir átta sig á því að það
er í þágu þeirra hagsmuna og
framtíðarviðskipta við þessa sjón-
varpsstöð að taka tillit til þessara
aðstæðna,“ segir Ari og kveðst
vona að enski boltinn verði áfram á
dagskrá Stöðvar 2.
365 miðlar hf. reyna að semja um lægra verð fyrir sýningarrétt á knattspyrnu
Varnarleikur með enska boltann
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
TÆPLEGA 3.500 fyrirtæki stefna í
þrot innan tólf mánaða sé miðað við
núverandi stöðu. Það sýna útreikn-
ingar fyrirtækisins Creditinfo á Ís-
landi. „Þegar ég segi þrot er ég að
tala um að þau verði gjaldþrota eða
gert verði í þeim árangurslaust fjár-
nám,“ segir Rakel Sveinsdóttir,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Hún segir fyrirtækin flest á höf-
uðborgarsvæðinu, þau séu í öllum
atvinnugreinum, lítil sem stór og í
fullri starfsemi. Mest áberandi séu
byggingarfyrirtæki og verslunar- og
þjónustufyrirtæki. „Ef við berum
þessa tölu saman við árin á undan
er þetta mikil aukning frá árinu
2008 og 200 prósenta aukning frá
árinu 2007.“ Fyrirtækin séu ekki í
hópi með þeim sem séu í alvarlegum
vanskilum, heldur við gjaldþrot
verði ekki gripið til róttækra að-
gerða.
Um 30 þúsund fyrirtæki eru í
landinu. „Hafa þarf í huga að inni í
þeirri tölu eru allar fyrirtækja-
kennitölur, hvort sem þær heyra
3.500 fyrirtæki í þrot?
Flest á höfuðborgarsvæði og oft í bygg-
ingarstarfsemi, verslun og þjónustu
eignarhaldsfélögum til eða svoköll-
uðum skúffufyrirtækjum. Eflaust á
það síðarnefnda við um einhver
þessara nær 3.500 fyrirtækja en upp
til hópa eru þetta ekki þau,“ leggur
Rakel áherslu á. Creditinfo á Íslandi
rannsakar nú hversu mörg þessara
þrjátíu þúsund fyrirtækja eru virk.
Útreikningana lagði Rakel fram á
fundi sjálfstæðismanna sem auð-
lindahópur Evrópunefndar Sjálf-
stæðisflokksins stóð fyrir í Valhöll í
gær.
Í HNOTSKURN
» Um 30.000 fyrirtæki eru ílandinu en umrædd 3.500
fyrirtæki, sem hugsanlega
munu fara í þrot, eru langflest
á höfuðborgarsvæðinu og
mörg í byggingarstarfsemi, í
verslun og ýmiss konar þjón-
ustu.
» Gangi þetta eftir er um aðræða mikla fjölgun gjald-
þrota frá síðasta ári og um
200% fjölgun frá árinu 2007.
HÁTT í 770 Palestínumenn, þ. á m. að minnsta kosti 257 börn, hafa beðið
bana í hernaði Ísraela á Gaza-svæðinu frá 27. desember, að sögn lækna í
gær. Yfir 3.100 manns hafa særst. Jórdönsk stúlka heldur hér á mynd af
einu palestínsku fórnarlambanna á fundi í Amman í gær. Hjálparstofnun
Sameinuðu þjóðanna stöðvaði í gær flutninga hjálpargagna á Gaza er mað-
ur beið bana og tveir særðust í árás á bílalest stofnunarinnar. | 8, 23
Minnst 257 börn hafa beðið bana á Gaza
Reuters
LJÓST er að ríkissjóður mun
tapa tugum milljarða króna, jafn-
vel yfir hundrað milljörðum, vegna
veðlána Seðlabanka Íslands til
fjármálafyrirtækja á síðasta ári.
Um áramótin tók ríkissjóður yf-
ir kröfur á smærri fjármálafyr-
irtæki og gömlu viðskiptabankana
vegna þessara skulda þeirra við
Seðlabankann. Nemur upphæðin
um 285 milljörðum króna, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins.
Ef þetta hefði ekki verið gert
væri fjárhagsleg staða Seðlabank-
ans óviðunandi í ljósi fyr-
irsjáanlegs taps á þessum lána-
viðskiptum.
Vegna rúmra reglna um veð-
lánaviðskipti gátu stóru viðskipta-
bankarnir nánast sótt ótakmarkað
fé í Seðlabankann. »22
Ríkið tapar milljörðum á
veðlánum Seðlabankans
KRISTJÁNI
Vigfússyni, sem
hefur um tíu ára
reynslu af vinnu í
sérfræðinefnd-
um og vinnuhóp-
um Evrópusam-
bandsins, kom á
óvart hve fram-
kvæmdastjórn
Evrópusambandsins er í raun lítil.
„En hér á landi er alltaf talað um
báknið í Brussel,“ segir hann.
Fjöldinn sem starfi þar sé ekki
meiri en starfi fyrir franska land-
búnaðarráðuneytið.
Gengi Ísland í Evrópusambandið
fengi landið þrjú atkvæði í ráð-
herraráðinu og fimm til sex á Evr-
ópuþinginu. Til að hafa áhrif þarf
að forgangsraða. »18-21
Kom á óvart hvað fram-
kvæmdastjórnin er lítil