Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 16
Um áramótin lokaði Sjúkrahúsið á Akureyri hjúkrunardeildinni í Seli. Aldraðir íbúar Sels voru fluttir nauðugir úr sérherbergjum sínum þar í fjölbýli á deildum sjúkrahússins í Kristnesi. Fyrir alþingiskosningarnar 2007 lögðu formenn stjórnarflokkanna áherslu á grundvallarbreytingar á málum aldraðra sem ekki hefðu tíma til að bíða lengur eftir úrbótum í húsnæðis- og lífeyrismálum. Báðir flokkar lýstu vilja til að fjölga hjúkrunarrýmum með því markmiði að afnema fjölbýli og auka framboð einbýlis á hjúkrunarheimilum. Félags- og tryggingamálaráðherra hefur þar að auki ítrekað lýst því yfir að velferð aldraðra gangi fyrir og niðurskurður muni ekki snerta málefni þeirra. Á Akureyri gerðist það nú samt. Samkvæmt Gallup könnun, sem unnin var af Capacent á mínum vegum, eru 70,8% þjóðarinnar hlynnt því að lífeyrissjóðirnir byggi og reki húsnæði fyrir eldri borgara sem greitt hafa í sjóðina. Af þeim sem svöruðu spurningunni játandi eru 76,6% hlynnt því þrátt fyrir að það kunni að hafa í för með sér kostnað fyrir sjóðinn og rýra höfuðstól hans. Stjórnendur lífeyrissjóðanna hafa sagt að slíkt húsnæði gæti orðið að veruleika með lagasetningu sem heimilar sjóðunum að fjárfesta fyrir hluta innkomu þeirra til byggingar hagkvæms leiguhúsnæðis fyrir aldraða. Lífeyrissjóðirnir ættu að geta staðið undir framkvæmdunum þar sem aðeins þarf árslaun fjögurra forstjóra lífeyrissjóðanna til byggingar fimmtán 40 m2 íbúða fyrir aldraða. Jóhanna Sigurðardóttir, næsta skóflustunga sem þú tekur ætti að vera að íbúðarhúsnæði fyrir aldraða. Eldri borgara á ekki að flytja gripaflutningum! Viðhorf til þess að lífeyrissjóðurinn byggi eða reki húsnæði. Hlynnt(ur) 70,8% Já 76,6% Nei 23,4% Andvíg(ur) 22,6% Hvorki né 6,6% Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að lífeyrissjóðurinn þinn byggi og reki húsnæði fyrir þá eldri borgara sem greitt hafa í sjóðina? Ertu hlynnt(ur) því þó að það geti haft kostnað í för með sér fyrir sjóðinn og rýrt höfuðstól hans? Breyting á viðhorfi ef kostnaður sjóðsins gæti rýrt höfuðstól hans. Skv. könnun Capacent Gallup. íslenskur ríkisborgari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.