Morgunblaðið - 09.01.2009, Síða 25
Daglegt líf 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009
ÚTSALAN hefst í dag
M
b
l1
07
84
38
Síðumúla 3 · 108 Reykjavík · 553 7355
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
30-50% afsláttur af völdum vörum
Eftir Kristín Ágústsdóttir
Neskaupstaður | Árið 2008 var metár á fæðing-
ardeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað
(FSN). Sjötíu börn fæddust á árinu og þar með
var met árins 2006 jafnað.
Frá því fæðingardeildinni á Egilsstöðum var
lokað árið 2002 hafa um sextíu konur fætt í
Neskaupstað árlega. Konurnar koma alls stað-
ar að af Austurlandi og æ fleiri nýta sér þjón-
ustuna í heimabyggð. Þó er töluvert um að kon-
ur kjósi að fæða í Reykjavík eða á Akureyri.
Sjö börn fæddust yfir jólahátíðina, frá 24.
desember fram til 3 janúar.
Að sögn Jónínu Salnýjar Guðmundsdóttur,
ljósmóður á FSN, er mjög gott ár framundan.
„Ja, eða það sem við vitum enn sem komið er,“
segir hún með bros á vör. Ennþá gefst fólki
tími til að leggja sitt af mörkum og gera árgang
2009 myndarlegan.
Ný tæki
Jónína hefur starfað á fæðingardeild FSN
frá árinu 2007 og hefur tækjakosturinn sann-
arlega breyst til hins betra síðan hún tók til
starfa.
„Ég var ekki ánægð með tækjabúnaðinn sem
deildin bjó yfir þegar ég kom til starfa og lagði
mikla áherslu á að keypt væri hitaborð og hita-
kassi. Með aðstoð Hollvinasamtaka FSN og
góðra gjafa frá hinum ýmsu fyrirtækjum og fé-
lagasamtökum tókst okkur að fjármagna kaup
á þessum góðu öryggistækjum. Nú er ég sátt
við þann aðbúnað sem snýr að börnunum.
Næst langar mig að kaupa hjónarúm. Mig
langar að útbúa eina stofuna hérna þannig að
hún verði í líkingu við það sem boðið er upp á í
Hreiðrinu [á Landspítalanum],“ sagði Jónína
Salný.
Nemar styrktir
Jónína Salný er eina fastráðna ljósmóðirin
við deildina, en að öðru leyti er deildin mönn-
uð með afleysingaljósmæðrum frá Akureyri
og Reykjavík. Bjart er þó framundan því nú
eru tveir nemar á deildinni sem Heilbrigð-
isstofnun Austurlands styrkir til náms í ljós-
móðurfræðum. Styrkurinn fæst gegn þeirri
skuldbindingu að ljósmæðurnar starfi við
deildina í tvö og hálft ár að námi loknu. Oddný
Ösp Gísladóttir, annar nemanna, bendir á að
skuldbindingin sé á báða bóga: „Það skipti
kannski ekki miklu máli þegar ég skrifaði
undir samninginn að HSA væri skuldbundin
að ráða mig til starfa að námi loknu, en eins og
ástandið er í dag hefur það viðhorf gerbreyst.
Það er mikils virði að ganga að tryggri at-
vinnu að námi loknu.“
Fyrstu börn ársins
Þegar fréttaritara bar að var verið að út-
skrifa fyrsta barnið á árinu, sem þó var ekki
fyrsta barnið sem fæddist á deildinni. Það
voru nýbakaðir foreldrar, Guðfinna Harpa
Árnadóttir og Helgi Haukur Hauksson frá
Straumi í Fljótsdal, að leggja af stað heim með
frumburðinn, stúlku sem fæddist að kvöldi 2.
janúar.
Fyrsta barn ársins á fæðingardeild FSN var
stúlka sem kom í heiminn á hádegi 2. janúar,
frumburður þeirra Díönu Margrétar Símonar-
dóttur og Jóhanns Arasonar sem búa á Eski-
firði.
Fæðingar aldrei verið fleiri
Vilji til að útbúa
„hreiður“ á sjúkrahús-
inu líkt og á LSH
Hitakassi Jónína Salný Guðmundsdóttir er ánægð með nýjan tækjakost fæðingadeildar FSN.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Heimferð Nýbakaðir foreldrar, Guðfinna
Harpa Árnadóttir og Helgi Haukur Hauksson
frá Straumi í Fljótsdal mynda frumburðinn
dúðaðan í heimferðargallann.
Í HNOTSKURN
»Alls voru 70 fæðingar á fæðing-ardeild Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað árið 2008.
»Hollvinasamtök FSN eru sannarlegagóður bakhjarl sjúkrahússins og
hafa þau með aðstoð fyrirtækja og fé-
lagasamtaka betrumbætt tækjakost
sjúkrahússins svo um munar.