Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 28
28 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 HEILBRIGÐ- ISRÁÐHERRA ætlar að leggja niður starf- semi St. Jósefsspítala og gera hann að öldr- unarstofnun. Aðdrag- andi þessarar ákvörð- unar hefur verið mjög ósmekklegur og ósvífinn og sýnt starfsemi St. Jósefsspítala og starfsfólki mikla van- virðingu. Af hverju á að leggja niður stofnun sem er vel rekin og sinnir hlut- verki sínu með sóma. Spítalinn hefur verið rekinn í 82 ár og það hefur tekið áratugi að byggja upp það góða starf sem þar er framkvæmt. Spítalinn er rekinn innan fjárlaga og með tekju- afgangi á síðasta ári. Rekstrarkostn- aður er aðeins 1,5 milljarðar sem eru litlir peningar til samanburðar við það sem bankastjórar hafa verið að fá í laun og kaupréttarsamninga. Kannski rekstrarkostnaður 1-2 sendiráða? En hvað er gert á St. Jósefsspítala? Þetta er spítali sem hefur sinnt grunn- læknisfræði á landsvísu og byggt upp mikilvæga starfsemi innan melting- arfræða. Þarna er hand- læknisdeild með 22 sjúkrarými og lyflækn- isdeild með 24 sjúkra- rými. Einnig göngudeild meltingarsjúkdóma og augndeild. Það eru gerð- ar u.þ.b. 2.600 aðgerðir á skurðsviði og um 3.000 speglanir á melting- arsviði á ári. Einnig eru starf- ræktar mikilvægar líf- efnafræðilegar rann- sóknir á meltingarvegi og síðast en ekki síst grindarbotn- steymi með viðeigandi rannsóknum. Ég get fullyrt að sú starfsemi er einstök þó að víða væri leitað erlendis að sambærilegri þjónustu og fagþekk- ingu. St. Jósefsspítali er ekki bara spítali Hafnfirðinga heldur hefur starfsemin sinnt öllu höfuðborg- arsvæðinu og ekki síst landsbyggðinni. Spítalinn hefur tekið við sjúklingum frá Landspítala-háskólasjúkrahúsi (LSH) til endurhæfingar eftir aðgerðir og alvarlega sjúkdóma. Ráðherra talar um að flytja meltingarfræðina á LSH og skurðstarfsemina til Keflavíkur en er það gert á svo einfaldan hátt? Hvað varðar meltingarhlutann er hann svo umfangsmikill að við erum að tala um tvöföldun á starfsemi LSH fyrir vikið. Þá spyr ég, eru til tæki og aðstaða til að taka við þessu verkefni á LSH svo vel megi fara? Ég get fullyrt að svo er ekki í dag. Hvað á svo að gera við alla skjólstæðingana sem eru í rist- ilsepaeftirliti eða eftirliti vegna frumu- breytinga í vélinda en það eru um 2.500 einstaklingar. Hvað á að gera við 500 einstaklinga sem eru í meðferð og eftirliti vegna bólgusjúkdóma í melt- ingarvegi (sáraristilbólga og svæð- isgarnabólga)? Á spítalanum hefur verið byggður upp gagnabanki um þetta eftirlit og verið stolt starfsfólks að geta sinnt þessu af alúð. Sl. 2 ár hef- ur verið starfræktur skóli fyrir sjúk- linga með bólgusjúkdóma í melting- arvegi. Þetta endurspeglar vel það sem er hornsteinn góðrar heilbrigð- isstofnunar sem er starfsandinn og gott starfsfólk. Er hægt að taka góðan starfsanda og blessun St. Jósefssystra og flytja niður á Hringbraut eða til Keflavíkur? Nei, tæplega. Hvað er þá málið? Jú, það á að spara. Það á að spara 750 milljónir. Helstu rök ráð- herra er að húsnæði spítalans sé svo lélegt að það sé allt of dýrt að gera það upp. Ef starfsemi St. Jósefsspítala hef- ur dafnað í 82 ár getum við alveg hald- ið áfram í nokkur ár í viðbót á þessum sparnaðartímum. Spítalinn hefur lagt áherslu á forvarnir og verið leiðandi í að koma á skimun fyrir rist- ilkrabbameini sem er önnur algeng- asta dánarorsök Íslendinga. Skv. mín- um heimildum greinist a.m.k. 1 krabbamein í meltingarvegi á viku við þá starfsemi sem er starfrækt á St. Jósefsspítala í dag. Þetta eru um 50 til- felli á ári. Verða þessir einstaklingar greindir annars staðar ef starfsemin verður lögð af eða flutt? Ef til vill. En það er bara ekki nógu gott svar. Fyrir þann sem greinist of seint er það skelfilegt. Þessi einstaklingur hefði hugsanlega læknast við einfalda skurðaðgerð fyrir 100 þúsund krónur en í staðinn kostar meðferð hans um 100 milljónir yfir 2-3 ár með dýrum lyfjum. Þá er sparnaðurinn, ef einhver er, fljótur að fara. Hvað verða margir fórnarlömb þessara aðgerða? Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda. Það er alveg öruggt að ef að St. Jósefsspítali verður lagður niður er ekki hægt að bæta þann skaða á stuttum tíma. Hverjir tapa aðrir en ég og þú? Allir tapa. Gott starfsfólk hverfur á braut og kemur kannski ekki aftur. Höfum við efni á því? Nei, því miður og ég verð virkilega dapur ef ég hugsa til þess. Þjóðin er búin að tapa sparifénu og heilsuna getum við ekki keypt. Heilsan er of dýrmæt til að nota sem skiptimynt í skyndisparnaði þegar kreppir að. Vinnan sem hefur verið byggð upp á St. Jósefsspítala í gegn- um áratugi er of verðmæt og um hana verður að standa vörð. Það má örugg- lega hagræða, sameina og flytja starf- semi til en ekki stofnun sem er vel rek- in, hagkvæm og metnaðarfull. Ég hvet alla sem þekkja til starfsemi St. Jós- efsspítala, bæði heilbrigðisstarfsfólk og þá sem notið hafa þjónustu spít- alans, að andmæla þessum breyt- ingum harðlega og standa vörð um það sem vel er gert í þessu landi. Nú er nóg komið. Ég vona að heilbrigð- isráðherra sýni að hann hafi þor og dug til að breyta rétt áður en það verð- ur of seint. St. Jósefsspítali – allir munu tapa Sigurjón Vilbergs- son segir frá starf- semi St. Jósefsspít- ala »Heilbrigðisráðherra ætlar að leggja niður eina best reknu heil- brigðisstofnun landsins, St. Jósefsspítala, án röksemda um sparnað. Sigurjón Vilbergsson Höfundur er sérfræðingur í lyflækn- isfræði og meltingarsjúkdómum og starfar við St. Jósefsspítala. PÓLITÍSKAR áherslur Stak- steina eru aldeilis á sínum stað í gær þegar látið er eins og útsvar sé ósanngjörn og óréttlát leið, nán- ast vond, til að fjármagna útgjöld sveitarfélagsins Reykjavíkur. Staksteinar eru nafnlausir að vanda en hjarta þeirra slær með þeim sem vilja notendagjöld, flokksbræðrum og -systrum sem vilja hærri skólagjöld, gjöld fyrir matinn á sjúkrahúsunum, og núna í fjárhagsáætlun Reykjavík- urborgar auknar álögur fyrir að hafa börn lengur en átta tíma á leikskólum. Þar ætla Staksteinar og Sjálfstæðisflokkurinn að sækja peningana. 300 milljónir skulu sóttar til foreldra leikskólabarna. Það er gamalkunnugt stef í hægri pólitík að álögur leggist á þá sem síst skyldi, sjúklinga, öryrkja, börn og aldraða. Hægri stjórnir lækka skatta á þá sem mest hafa, fjármagnseigendur og hátekjufólk. Það er ekki pólitík Vinstri grænna. Okkur finnst að þeir sem mest hafa eigi að bera kostnaðinn og þeir að njóta sem minna hafa milli handanna. Þannig hafi allir sömu möguleikana á grunnþjónustu. Um þetta verður kosið næst. Bæði til sveitarstjórna og alþingis. En hinir nafnlausu Staksteinar hafa ekki kosningarétt heldur sá almenningur sem er í sífellt ríkari mæli að hafna gjaldþrota hægri stefnu ójafnaðar og misréttis. Staksteinum til upplýsingar er hægri pólitík á undanhaldi. Svandís Svavarsdóttir Byrðunum velt á barnafjölskyldur Höfundur er borgarfulltrúi. HEILBRIGÐ- ISRÁÐHERRA, Guð- laugur Þ. Þórðarson, kynnti í vikunni ein- hverjar umfangsmestu skipulagsbreytingar sem gerðar hafa verið sl. ár á íslensku heil- brigðiskerfi. Markmið þeirra er „að ná fram hagræðingu í rekstri heilbrigð- isstofnana víðs vegar um landið og treysta um leið undirstöður grund- vallarstarfsemi heilbrigðisþjónust- unnar“. Íslendingar verja meira fé til heilbrigðismála en flest OECD- ríki og hafa á undanförnum árum varið vaxandi hlut þjóðarframleiðsl- unnar til þeirra. Sé tekið tillit til þess hversu ung þjóðin er eru út- gjöld til heilbrigðismála hér enn hærri í OECD-samanburði. Árang- ur er einnig mjög góður á marga mælikvarða og launakjör sérmennt- aðs heilbrigðisstarfsfólks góð. Sumra með því besta sem gerist hér á landi meðal sambærilegra stétta. Fáar tilraunir til skipulagsbreytinga Útgjaldaaukning heilbrigðiskerf- isins á undanförnum 10-15 árum hefur oft vakið spurningar um það hvort fyllsta hagræðis sé gætt í skipulagi og fram- kvæmd. Tilraunir heil- brigðisráðherra sl. tveggja áratuga til skipulagsbreytinga, sem leiða áttu til auk- innar hagkvæmni, hafa undantekningarlítið mætt harðri andstöðu. Róttækasta tilraunin var árið 1995 þegar Sighvatur Björg- vinsson, þáv. heilbrigð- isráðherra, reyndi að koma á tilvísanakerfi. Kerfi sem víðast hvar þykir sjálfsagt og er ætlað að treysta grunnheilsugæslu, skapa á einum stað yfirsýn yfir heilbrigð- isvandamál viðkomandi sjúklings, sporna gegn „oflækningum“ og þar með takmarka útgjöld. Þá reis upp vel skipulögð hreyfing sér- fræðilækna sem réð sér hagfræð- inga, lögfræðinga og auglýs- ingaráðgjafa með tilheyrandi PR-umsvifum, til að koma í veg fyr- ir það sem þeir kölluðu frelsisskerð- ingu sjúklinga. Höfðu þeir fulln- aðarsigur og enginn hefur þorað að minnast á tilvísanakerfi síðan. Á svipuðum tíma var unnin tillaga að breyttri verkaskiptingu og fækk- un sjúkrahúsa á landsbyggðinni (oft nefnd „gula skýrslan“) en fyr- irkomulag þeirra var ekki talið hafa fylgt búsetuþróun, breyttri tækni í heilbrigðisþjónustu eða bættum samgöngum. Var haft á orði á þeim tíma að staðsetning og uppbygging sjúkrahúsa á landsbyggðinni hefði fylgt þróun veiða úr íslenska síld- arstofninum á gullaldartíma hans og lítið breyst síðan. Skýrslan hlaut svipaðar viðtökur hagmunahópa og tillögur um tilvísanakerfið og var snarlega sett ofan í skúffu heilbrigð- isráðuneytisins. Síðan þá hefur skipulag íslenskr- ar heilbrigðisþjónustu þróast án þess að ráðherrar hafi mikið skipt sér af skipulaginu, nema þegar spít- alarnir þrír í Reykjavík voru sam- einaðir í Landspítala – háskóla- sjúkrahús undir síðustu aldamót. Sú sameining var ekki átakalaus eins og landsmenn hafa getað fylgst með í fjölmiðlum. Tilraunir stjórnar og forstjóra LSH til umbóta og skipu- lagsbreytinga hafa á ótal punktum sem ekki verða raktir hér kostað mikil átök, einkum við tiltekna lækna spítalans. Stefnumótun ráð- herranna sjálfra á þessu tímabili hefur, fyrir utan ofantalin atriði, nær eingöngu falist í að skipta ár- legum fjárveitingum. Á sama tíma hafa heilbrigðisyfirvöld flestra ann- arra ríkja staðið fyrir umfangs- miklum rannsóknum og stefnumót- un í því skyni að nýta sem best þá miklu fjármuni sem hvarvetna fara í heilbrigðiskerfi landanna. Má segja að íslenskir ráðherrar hafi haft sér það til afsökunar að staða ríkisfjár- mála hefur lengst af verið góð en svo er ekki nú eins og allir vita. Hugrekki Guðlaugs Þórs Nú hefur ungur ráðherra, Guð- laugur Þór, látið vinna greiningu og stefnu um breytta verkaskiptingu í íslenska heilbrigðiskerfinu. Til þess þarf hugrekki í ljósi afdrifa fyrri til- rauna. Vonast er til að spara megi 1,3 milljarða, án þess að það bitni á hagsmunum sjúklinga. Ekki þarf að fjölyrða hér um stöðu ríkisfjármála og nauðsyn sparnaðar. Það þarf hins vegar mikið hugrekki til að fara í svo umfangsmiklar strúkt- úrbreytingar. Flatur sparnaður hef- ur hér verið meginreglan, hann hef- ur þótt sársaukaminni pólitískt en óskynsamlegri út frá nýtingu fjár- muna. Ég hef ekki forsendur til að meta öll áform Guðlaugs Þórs en ekki skiptir minna máli hvernig fram- kvæmdin tekst til. Hún verður að gerast í samstarfi við starfsfólk heil- brigðiskerfisins. Skipulagsbreyt- ingar eru það sem kallað hefur verið eftir af þeim sem hafa skoðað þetta kerfi út frá sjónarhóli aukinnar hag- kvæmni og þá um leið árangurs. Vafalaust þarf fleiri slíkar breyt- ingar, sem ég vona að Guðlaugur Þór leggi í, með almannahagsmuni að leiðarljósi. En eigi svo að verða þarf að taka þessum áformum opn- um huga, vel þarf að takast til um framkvæmd þeirra, þær þurfa póli- tískan stuðning frá samráðherrum Guðlaugs, stjórnarþingmönnum og þeim sem hag hafa af bættri nýt- ingu þess fjár sem fer í heilbrigð- iskerfið. Ekki síst þarf heilbrigð- isstarfsfólk að sýna ábyrgð gagnvart þeirri stöðu sem uppi er. Annars er hætta á að Guðlaugur Þór og aðrir umbótasinnaðir stjórn- málamenn detti í þann farveg of margra pólitíkusa að gera sjaldnast neitt nema það sé til skammtíma vinsælda fallið. Þora ekki að horfast í augu við og taka erfiðar ákvarð- anir og fá almenning til þess sama. Hagræðing og hugrekki heilbrigðisráðherra Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifar um skipulagsbreyt- ingar í heilbrigð- iskerfinu »Heilbrigðisstéttir þurfa að sýna ábyrgð gagnvart þeirri stöðu sem við erum í, taka skipulagsbreyt- ingum opnum huga og leggja framkvæmdinni lið. Margrét Sigrún Björnsdóttir Höfundur er félagi í Samfylkingunni og situr í nefnd heilbrigðisráðherra um framtíðarhlutverk og skipulag LSH. ÞANNIG hljóðuðu tvær meginfyr- irsagnir á forsíðu Morgunblaðsins á næstsíðasta degi ársins. Í talnaflóði eftir bankahrunið þarf stundum að draga djúpt andann til að fá tilfinn- ingu fyrir þeim hildarleik sem þar er á ferðinni. Hér verður gerð lítil tilraun til að setja þessar fyrirsagnir í sam- hengi. Tökum fyrst 2,1 kr fyrir kílóvattstund. Hér segir frá því verði sem Orkuveita Rvíkur fær skv. heimildum Morgunblaðsins fyrir orkuna til álvers í Helguvík. Miðað við 100 megavatta rafafl og 25 ára sölusamning jafngildir þetta 40 milljörðum króna. Til að skoða þennan 25 ára afrakstur má skoða annað dæmi. Fyrir nokkrum árum stóð þáverandi forsætisráðherra að sölu Landsbankans til Björgólfs- feðga fyrir svipaða upphæð og reyndar fylgdi Kjartan Gunnarsson bankaráðsmaður með í kaupunum. Bankinn dafnaði vel að því er virt- ist. En nú er bankinn kominn aftur heim til þjóðarinnar (og Kjartan með) og með bankanum fylgir smá- skuld, kölluð því hugljúfa nafni „icesave“ (ísspar eða ísbjörgun). Þar kemur hin fyrirsögn blaðsins inn í myndina. Að bestu manna yfirsýn mun þetta fyrirbæri kosta þjóðina 150 milljarða hið minnsta. En hvað eru 150 milljarðar ? Jú, ef við skoðum aftur ofannefnda sölu orku til Norðuráls (40 milljarða á 25 árum) mun það taka hátt í heila öld í orkuverinu á Hellisheiði að afla þess fjár sem fór í súginn í „ice- save“ ævintýrinu. Ber nokkur ábyrgð? ÖRN HELGASON, prófessor í eðlisfræði. Togast á um Icesave-kjör/ 2,1 kr fyrir kílóvattstund Frá Erni Helgasyni BRÉF TIL BLAÐSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.