Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 46
Listakonan Hrefna Víg-
lundsdóttir opnar á morgun
sýninguna Tilbrigði við
Jökulinn í Reykjavík Art
Gallerí.
Málverkin eru mjög per-
sónuleg en þau vann hún úr
efnivið er sóttur í Snæfells-
jökul og umhverfi hans fyrr
á árum er hún starfaði sum-
arlagt við fótskör Snæfells-
ássins. Blæbrigðin ættu að vera þeim er þekkja
jökulinn kunnugleg en listakonan segir dulmögnun
og kraft jöklsins birtast í verkum sínum.
Sýningin verður opin alla daga vikunnar, nema
mánudaga, kl. 14 - 17 ig stendur til 25. janúar. Að-
gangur er ókeypis.
Myndlist
Kraftur Snæfells-
jökuls málaður
Eitt af verkum
sýningarinnar
46 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009
BÓKIN Konur eftir Steinar
Braga seldist upp nokkrum
dögum fyrir jól og ekki vannst
tími til þess að endurprenta
hana. Nú hafa náðst samningar
um að bókin verði endur-
prentuð í kilju undir merkjum
Máls og menningar, en fyrri
útgefandi var Nýhil. Í frétt frá
útgáfunni segir: „Kiljan kemur
út um næstu mánaðamót og þá
munu þeir sem ekki nældu sér í eintak fyrir jólin
geta sökkt sér í þessa mögnuðu skáldsögu sem
hlaut fádæma góðar viðtökur; t.d. fimm stjörnur í
Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og DV.“ Steinar
Bragi (f. 1975) hefur áður sent frá sér fimm ljóða-
bækur og fjórar skáldsögur.
Bókmenntir
Konur til Máls
og menningar
Steinar Bragi
VERK Kjarvals munu þekja
alla veggi, frá gólfi til lofts, í
austursal Kjarvalsstaða á sér-
stæðri sýningu sem opnuð
verður á morgun kl. 14. Sýn-
ingin er í anda svokallaðra sa-
lon-sýninga, sem tíðkuðust á
árum áður. Á sýningunni gefst
gestum kostur á að líta nánast
alla safneign Listasafns
Reykjavíkur á verkum hins
dáða listamanns. Kjarvalssafneign Listasafns
Reykjavíkur samanstendur af 3.348 verkum eftir
listamanninn; 3.189 teikningum og 159 mál-
verkum. Sýningarstjóri er Helga Lára Þorsteins-
dóttir. Opið er alla daga á Kjarvalsstöðum frá kl.
10-17 og er aðgangur ókeypis.
Myndlist
Mynd af heild á
Kjarvalsstöðum
Jóhannes Kjarval
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
SÝNINGIN sem Halldór Ásgeirsson opnar í nýj-
um salarkynnum Gallery Turpentine í dag, á
Skólavörðustíg 14, nefnist Sálarskipið og er til-
vísun í ljóð Bólu-Hjálmars. Ljóðið var ort um
miðja nítjándu öld en listamaðurinn segir það
ekki síður eiga erindi við Íslendinga í dag.
„Sálarskipið er stór ljósmynd af síðutogara sem
er að sökkva,“ segir Halldór. „Ég hef sýnt þetta
verk áður, í minningu Dieter Roth, en ég set það
upp aftur því það er svo táknrænt fyrir ástandið í
þjóðfélaginu í dag.
Bólu-Hjálmar var eitt eftirlætisskáld Dieters.
Þegar ég kynntist honum á Seyðisfirði sumarið
1996 fór ég til hans á kvöldin og las fyrir hann upp
úr Bólu-Hjálmari. Það var mjög sérstakt.“
Innsetning á sýningunni byggist á fjórum
hraunsteinum sem Halldór hefur brætt saman, en
þeir eru úr eldfjöllunum Heklu, Puy de Dome í
Frakklandi, Vesúvíusi á Ítalíu og Fuji í Japan.
Steinarnir eiga í samræðu við máluð tákn á svört-
um plexiplötum; myndmálið er sótt í hraunið.
„Þetta er framhald af verki sem ég vann í Lista-
safni ASÍ á Listahátíð í vor. Þá hengdi ég þessa
fjóra steina í tré fyrir utan safnið. Nú eru stein-
arnir komnir inn í galleríið og ég bræði þá saman.
Á veggjunum er ég með blekteikningar gerðar
með kalligrafíupensli á gamlan japanskan pappír
sem ég tók upp úr gömlum bókum. Það eru tákn á
honum, gamall kínverskur heimspekitexti. Ég
gerði þessi verk árið 2007, þegar ég bjó í Kyoto í
Japan – ég er að fanga ákveðnar stemningar.“
Á miðju gólfi er stöpull fylltur vatni, sem Hall-
dór hyggst setja blátt blek út í, og á stöplinum er
einnig gríma sem hann hefur þakið með hraun-
glerungi sem féll til þegar hraungrýtið var brætt.
„Ég er manna spenntastur að sjá hvernig þetta
kemur út,“ segir hann. „Maður er alltaf að vinna
út frá sömu rót, það sprettur upp af henni aftur og
aftur, bara í nýjum birtingarformum.“
Táknrænt fyrir ástandið
Halldór Ásgeirsson sýnir bráðið hraun og kalligrafíuteikningar í Sálarskipinu
Hraunmolarnir fengnir úr eldfjöllum á Íslandi, Frakklandi, Japan og Ítalíu
Morgunblaðið/Einar Falur
Bræðingur Halldór við plötur sem hann hefur málað hraunkveikt form á. Í baksýn eru brædd grjótin.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞAÐ kom aldrei annað til greina hjá okkur en
vera í Iðnó,“ segir Sveinn Einarsson. Þau Vig-
dís Finnbogadóttir, sem bæði eru fyrrverandi
leikhússtjórar þar í húsinu, eru í forsvari fyrir
Vonarstrætisleikhúsið sem stendur þar fyrir
leiklestri á leikverkinu Kaupmannahöfn eftir
Michael Frayn á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld í næstu viku, klukkan 20.00. Árni Berg-
mann þýddi verkið og Páll Ragnarsson er
ljósahönnuður. Sveinn leikstýrir.
„Við Vigdís höfum stundum verið að leika
okkur að hugmyndum um svona leikhús. Vig-
dís sagði stundum að þegar hún hætti sem for-
seti myndi hún stofna barnaleikhús. En hún
var kölluð til svo margra starfa að það gafst
ekki tími. Ég hef verið meira og minna viðloð-
andi leikhúsið. Þegar maður er með þessa
bakteríu, og hefur stýrt leikhúsi með sæmileg-
um sóma, þá vill maður halda því áfram.
Við erum óháð öðrum sjónarmiðum en því
að velja verk sem við teljum að eigi erindi við
samtímann, eins og sannarlega er raunin með
þetta stykki. Það má spyrja hvort við getum
ekki dregið lærdóm af því varðandi þann
vanda sem við stöndum andspænis í dag.
Þarna er fjallað um ábyrgð vísindamanna, ekki
gagnvart vísindunum einum heldur líka sam-
félagslega, og ábyrgð stjórnmálamanna gagn-
vart vísindamönnunum og því sem þeir komast
að. Þetta má heimfæra yfir á okkar tíma, þeg-
ar umræðan snýst öll um ábyrgð fjármála-
manna, stjórnmálamanna og þeirra sem eru í
forsvari fyrir okkar regluverk.“
Leikskáldið veltir fyrir sér frægum fundi
vísindamannna Niels Bohr og Werners Hei-
senberg í Kaupmannahöfn árið 1941, en þeir
komu báðir að þróun kjarnorkuvopna.
„Þetta er afskaplega virtur og fimur höf-
undur og tvö verka hans hafa verið sett upp
hér á landi. Kaupmannahöfn kom fram árið
1998 og var strax sett upp víða. Það vakti
reyndar strax svo miklar umræður að Frayn
breytti því eftir frumsýninguna. Þegar það var
sýnt í Bandaríkjunum var það í þessari nýju
gerð, og samt urðu miklar umræður. Fjöldi
raunvísindamanna tók til máls og vildi lýsa
sinni skoðun. En það veit enginn hvað þeim
Bohn og Heisenberg fór á milli.
Þetta er afar spennandi verk,“ segir Sveinn.
Leikarar eru þau Þorsteinn Gunnarsson,
Valgerður Dan og Jakob Þór Einarsson.
Þegar Sveinn er spurður hvort þau Vigdís
séu farin að skipuleggja önnur verkefni, segir
hann það fara eftir viðtökum þessa verks. „Ef
það er gerður góður rómur að þessu þá erum
við vís til þess. Við erum með fullt af góðum
hugmyndum um leikrit.“
Með þessa bakteríu
Nýtt leikfélag Vigdísar Finnbogadóttur og Sveins
Einarssonar flytur verk um ábyrgð vísindamanna
Morgunblaðið/Golli
Vonarstrætisleikhúsið Vigdís og Sveinn með leikurunum Þorsteini Gunnarssyni, Valgerði Dan
og Jakobi Þór Einarssyni, við Iðnó þar sem Kaupmannahöfn verður leiklesið í næstu viku.
EINN skelfileg-
asti tryllir síð-
ustu aldar er án
efa Shining eftir
Stanley Kubrick
eftir sögu Steph-
ens Kings, um
rithöfundinn
Jack Torrance
leikinn af Jack
Nicholson, sem
sest að á yfirgefnu hóteli um há-
vetur með fjölskyldu sinni í þeim
tilgangi að skrifa bók. Bók-
arskrifin virðast ganga vel, þar til
eiginkona Jacks kemst að því að
allt og sumt sem hann hefur skrif-
að er ein setning, endurtekin í sí-
fellu: „All work and no play makes
Jack a dull boy.“
Nú hefur listamaður í New
York skrifað 80 síðna bók í nafni
Jacks Torrance. Phil Buehler heit-
ir maðurinn og kveðst vera ein-
lægur aðdáandi Kubricks og
Kings. „Sjálfsagt hefur hug-
myndin verið að gerjast með mér í
áraraðir,“ segir Buehler í samtali
við breska blaðið Guardian. Bue-
hler hefur haft hraðar hendur, því
það var ekki fyrr en um jólin að
hann ákvað að ráðast í verkið. Og
hvað er í bókinni? Jú, setningin
skuggalega, en útfærð í ótal til-
brigðum í umbroti. „Ég ákvað að
halda mig við þess konar útlit sem
ritvél Jacks Torrance hefði ráðið
við, en langaði líka að kanna
hvernig síðurnar hefðu litið út ef
Torrance hefði lifað það að verða
enn geðveikari.“ Buehler við-
urkennir að hafa fengið ritstíflu
eftir 60 síður, en eftir viku hvíld
frá skrifunum hafi hann getað
klárað hana.
Jack Torr-
ance loks
kominn út
Aðdáandi Shining skrif-
ar bók geðsjúklingsins
Jack Torrance
BANDARÍKJASTJÓRN ætlar að
eyða andvirði tæpra níutíu milljóna
króna í endurreisn Babýlon, hinnar
fornu borgar Mesapótamíu í Írak. Í
tíð Saddams Husseins var mikil vinna
lögð í fornleifauppgröft og endur-
reisn staðarins, en í stríðinu fóru þjóf-
ar ránshendi um fornminjar sem þar
hafði verið komið fyrir. Verkið verður
unnið í samvinnu við Íraka.
Babýlon rís
Halldór Ásgeirsson hefur síðustu árin unnið
markvisst að verkum úr hrauni sem hann
bræðir. „Hraun og eldfjöll heilla mig. Nú er ég
að fara að vinna með Haraldi Sigurðssyni eld-
fjallafræðingi. Ég er listamaður og hann vís-
indamaður, en ástríðan fyrir eldfjöllum er sú
sama. Við ætlum að vinna að stóru verkefni á
næstu árum, samtali vísindamanns og lista-
manns um eldfjöll.“
Halldór segir margt framundan hjá sér. Í
sumar hefur honum verið boðið að vera með
vatnsgjörninga á tónlistarhátíð sem haldin er
í Danmörku. Þangað er boðið listamönnum
sem vinna í ólíkum greinum. Þá er hann að
vinna að stóru verki sem verður hluti af ný-
byggingu Háskólans í Reykjavík. „Verkið er
einskonar sólúr í yfirbyggðu hringtorgi; göt í
hvelfingunni með lituðu gleri sem birtu er
hleypt inn um. Ég nota bygginguna til að búa
til hringsjá ljóssins,“ segir hann.
Vatnsgjörningar og sólúr
Þetta er nú svolítið
mikið og er eiginlega
pínulítið óhugnanlegt. 48
»