Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 48
48 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 Fólk Í JANÚARHEFTI breska kvikmyndatímarits- ins Sight and Sound er fjallað um Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík (RIFF). Blaða- maðurinn, Isabel Stevens, byrjar greinina á því að vitna í Lárus Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, sem aðeins nokkrum dögum áður en hátíðin hófst hafði lýst því yfir í frægu sjón- varpsviðtali að íslenska bankakerfið stæði traustum fótum. Ellefu dögum síðar, þegar há- tíðinni var slitið, hafði Glitnir verið rík- isvæddur og hinir tveir stóru bankarnar fylgdu svo í kjölfarið, eins og frægt er orðið. Greinarhöfundur lýsir undrun sinni á fjölda þeirra sem sóttu hátíðina (20 þúsund gestir) og segir það sambærilegt við að þrjár og hálf milljón gesta sækti Kvikmyndahátíðina í Lond- on (London Film Festival). Augljóst er af grein Stevens að hápunktur hátíðarinnar í fyrra hafi verið sýning á Sögu Borgarættarinnar eftir Gunnar Sommerfeldt frá 1920 þar sem Hjaltal- ín lék undir. Segir hún að undirleikurinn hafi rímað fullkomlega við kvikmyndina sem hafi gripið áhorfendur á öllum aldri. Stevens eyðir hins vegar meirihluta grein- arinnar í fjármálaástandið og möguleg áhrif þess á kvikmyndaiðnaðinn í landinu, sem sé fyrir í mjög litlum vexti. Kvikmyndasjóður hafi gert samning við íslenska ríkið til næsta árs (2010) og er haft eftir Laufeyju Guðjónsdóttur, forstöðumanni Kvikmyndamiðstöðvarinnar, að mikið velti á að staðið verði við þá samninga. hoskuldur@mbl.is Kreppan skyggir á erlenda umfjöllun um RIFF Morgunblaðið/hag RIFF Frá sýningu á Sögu Borgarættarinnar í fyrra.  Áheyrnarprufur fyrir Idol- stjörnuleit hefjast á laugardaginn og samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafa aldrei verið fleiri skráðir. Prufurnar fara fram á Hil- ton-Nordica en eina skilyrðið fyrir þátttöku er að þátttakendur séu orðnir 16 ára. Mælst er til þess að hver hafi tvö lög á reiðum höndum. Leyfilegt er að taka vini, ættingja og nágranna með sér til stuðnings en á það skal bent að á hótelinu verða án efa myndatökuvélar á kreiki, reiðubúnar til að mynda allt „skrítna“ fólkið sem lætur sig dreyma um frægð og frama á Ís- landi. Fyrsti þátturinn verður síðan sýndur föstudaginn 13. febrúar á Stöð 2. Í dómnefnd sitja Jón Ólafs- son, Selma Björnsdóttir og Björn Jörundur Friðbjörnsson og kynnar eru sem fyrr þeir Simmi og Jói. Styttist óðum í Idol-stjörnuleit  Nýjasta plata tónlistarkon- unnar Lay Low, Farewell Good Night’s Sleep, kemur út í Bret- landi og Evrópu mánudaginn 9. mars næstkomandi, og í Banda- ríkjunum mánuði síðar. Strax í kjölfarið ætlar Lay Low svo að leggjast í tónleikaferð um Banda- ríkin til að fylgja útgáfunni eftir. Áður en að því kemur, eða hinn 28. janúar, flýgur tónlistarkonan hins vegar til London og gengur um borð í rútu Emilíönu Torrini, en Lay Low hitar upp fyrir Emil- íönu á 17 tónleikum í tónleikaferð þeirrar síðarnefndu. Koma þær stöllur fram í Frakklandi, Þýska- landi, Sviss, Austurríki, Belgíu, Hollandi, Lúxemborg og á Ítalíu. Lay Low hefur þó alls ekki gleymt aðdáendum sínum hér á landi því hún hefur boðað til tón- leika á Kaffi Rósenberg þriðju- daginn 27. janúar. Forsala á tón- leikana hefst kl. 10 í dag og fer miðasala fram á midi.is og af- greiðslustöðum mida.is. Miðaverð er 1.000 kr. og aðeins eru 150 miðar í boði. Lay Low kemur út í Evr- ópu og Bandaríkjunu Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er nú svolítið mikið og er eiginlega bara pínulítið óhugn- anlegt,“ segir Áslaug Ósk Hinriks- dóttir sem óhætt er að kalla vinsæl- asta bloggara Íslands um þessar mundir. Á síðasta ári fékk Áslaug langflestar heimsóknir á meðal þeirra sem blogga á blog.is, mest sótta bloggsamfélagi á Íslandi, en heildarfjöldi innlita á bloggsíðu hennar voru 833.319 á árinu. Áslaug bloggar fyrst og fremst um alvarleg veikindi dóttur sinnar, Þuríðar Örnu, og segir að þessar miklu vinsældir bloggsins hafi því mjög sérstaka þýðingu fyrir sig. „Að sjálfsögðu, og mér þykir mjög vænt um að svo margir skuli kíkja á bloggið mitt, og þá sérstaklega hversu margir skrifa athugasemdir við færslurnar. Það peppar mann dálítið upp þegar manni líður illa út af stelpunni – þá er alveg ótrúlega gott að fá smáútrás þarna,“ segir Áslaug og bætir því við að það sé fyrst og fremst ókunnugt fólk sem skrifar athugasemdir. „Ég þekki sjaldnast þá sem skrifa athugasemd- ir, ég fæ náttúrlega athugasemdir annars staðar frá mínu fólki.“ Að sögn Áslaugar getur það hjálp- að henni mikið í baráttunni að blogga. „Þetta virkar svolítið eins og sálfræðingur fyrir mann,“ segir Ás- laug sem ætlar að halda ótrauð áfram. „Að sjálfsögðu, það gengur svo vel og það er svo gaman að blogga núna.“ 450 þúsund á viku Næstvinsælasti bloggarinn á blog.is í fyrra var Jóna Á. Gísladótt- ir, sem bloggar meðal annars um einhverfan son sinn. Jóna fékk 590.812 heimsóknir á síðasta ári. Í þriðja sætinu er svo Stefán Friðrik Stefánsson sem skrifar um hin ýmsu þjóðfélagsmál. 587.835 heimsóknir voru skráðar á bloggsíðu Stefáns í fyrra. Við vinnslu fréttarinnar var bæði haft samband við Vísi.is og Eyjuna og óskað eftir tölum um vinsælustu bloggarana á þeim vefsíðum, en eng- ar tölur fengust gefnar upp. Þess má þó geta að samkvæmt samræmdum vefmælingum Mod- ernus eru vikulegar heimsóknir á bloggsamfélag mbl.is (blog.is) um 450 þúsund og á bloggsamfélag vísi- s.is (blogg.visir.is og blogcentral.is) um 252 þúsund. Önnur blogg- samfélög fá mun færri heimsóknir. Þá eru heimsóknir á Eyjuna í heild sinni um 248 þúsund á viku. Vinsælasti bloggari Íslands  Áslaug Ósk Hinriksdóttir fékk rúmlega 833 þúsund heimsóknir á síðasta ári  „Mér þykir mjög vænt um að svo margir skuli kíkja á bloggið mitt,“ segir hún Morgunblaðið/Golli Mæðgur Áslaug ásamt Þuríði Örnu, dóttur sinni. „Þetta virkar svolítið eins og sálfræðingur fyrir mann,“ segir Áslaug um hvernig bloggið hjálpi sér. Vinsælustu bloggararnir á blog.is árið 2008 Nafn Slóð Innlit 1 Áslaug Ósk Hinriksdóttir aslaugosk.blog.is 833.319 2 Jóna Á. Gísladóttir jonaa.blog.is 590.812 3 Stefán Friðrik Stefánsson stebbifr.blog.is 587.835 4 Jenný Anna Baldursdóttir jenfo.blog.is 448.301 5 Jens Guð jensgud.blog.is 448.301 6 Ómar Ragnarsson omarragnarsson.blog.is 341.586 7 Guðríður Haraldsdóttir gurrihar.blog.is 269.031 8 Ásdís Rán Gunnarsdóttir asdisran.blog.is 258.938 9 Lára Hanna Einarsdóttir larahanna.blog.is 247.358 10 Snorri Bergz hvala.blog.is 247.136 Hversu pólitískur ertu á skalanum 1 til 10? 7,33. Styðurðu ríkisstjórnina? Ef ég væri að keppa í Gettu betur myndi ég segja pass. Hvað er í gangi á þessu guðsvolaða landi? (síðasti aðalsmaður, Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður, spyr) Lífið heldur áfram, til hvers? sagði skáldið forðum daga og ég held að það séu örugglega margir sem myndu vilja sofa í heila öld því að nóttin veitir aðeins skamma stund frá vandamálum hversdagsins. Er ekki Evróvisjón að byrja? Ég held að þjóðin þurfi á annarri Nínu að halda. Hver ber ábyrgð á kreppunni? Ætli ég beri ekki bara ábyrgð á henni! Ég hélt ég væri að gera frá- bær kaup þegar ég keypti pólóinn minn á myntkörfuláni og eyddi af- ganginum í bréf í Kaupþingi. Ég er tilbúinn að axla mína ábyrgð í þessu máli. Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig? Að munnurinn á mér á það til að vera skakkur þegar ég er stressaður. Ákaflega eðlilegt. Stundarðu sjálfur íþróttir? Ég reyni eins og flestir Íslendingar að mæta í ræktina í janúar. Hér áður fyrr stundaði ég hinar ýmsu íþróttir með afar misjöfnum árangri. Ég var þokkalegur í samkvæmisdansi og keilu. Uppáhaldslið í ensku knattspyrn- unni? Þetta er líklega pólitískasta spurn- ingin í þessum spurningalista: Man- chester United. Hversu stressaður varstu í fyrstu út- sendingunni, á skalanum 1-10? 9,29. Hver eru þín mestu mistök? Að hafa keypt hlutabréf í Kaupþingi og tekið myntkörfulán á bílinn minn. Og þinn stærsti sigur? Að hafa fengið 20 ár með pabba mín- um. Hver yrði titillinn á kvikmynd um ævi þína? Anchorman 2: The Legend of Ásgeir Erlendsson. Hver myndi leika aðal- hlutverkið? Will Ferrell. Hvers viltu spyrja næsta viðmæl- anda? Hvar er draum- urinn og hvar er lífið sem þú þráir? ÁSGEIR ERLENDSSON AÐALSMAÐUR VIKUNNAR KVEÐUR Á NÆSTU DÖGUM ÍÞRÓTTAFRÉTTA- STOFU SJÓNVARPSINS ÞAR SEM HANN HEFUR VAKIÐ VERÐSKULDAÐA AT- HYGLI EN TEKUR VIÐ STARFI STIGAVARÐAR Í GETTU BETUR. 1, 2, 3, ... Það mun reyna á talnahæfi- leika Ásgeirs þegar Gettu betur hefst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.