Morgunblaðið - 21.01.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„Í STAÐ þess
átakafarvegs
sem endur-
skipulagning og
lokun heilbrigð-
isstofnana hefur
verið sett í legg-
ur borgarstjórn
til að stefnt verði
að gerð heild-
stæðrar og
áfangaskiptrar
áætlunar um flutning verkefna sem
lúta að málefnum fatlaðra, aldr-
aðra, heilsugæslu og rekstri heil-
brigðisstofnana frá ríki til sveitar-
félaga,“ sagði m.a. í tillögunni sem
Dagur mælti fyrir.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
RÓTTÆK efling sveitarstjórnar-
stigsins var inntak tillögu sem borg-
arfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu
fram á borgarstjórnarfundi í gær.
Tillagan hljóðaði upp á að borgar-
stjórn beitti sér fyrir áfangaskiptri
áætlun um flutning mun fleiri verk-
efna frá ríki til sveitarfélaga en nú
eru áform um. Hanna Birna Krist-
jánsdóttir borgarstjóri mælti fyrir
frávísunartillögu meirihluta borg-
arstjórnar og var hún samþykkt að
viðhöfðu nafnakalli.
Dagur B. Eggertsson mælti fyrir
tillögunni en í henni sagði m.a.:
„Borgarstjórn samþykkir að
stefna að því að öll nærþjónusta hins
opinbera skuli vera samþætt og á
einni hendi. Í því skyni beri að flýta
flutningi verkefna frá ríki til sveitar-
félaga og skilgreina heildstæð þjón-
ustusvæði um land allt þar sem sam-
einuð sveitarfélög eða samstarf
sveitarfélaga á viðkomandi svæði
annist framkvæmd og rekstur þjón-
ustunnar.“
Hanna Birna borgarstjóri sagði
áður en gengið var til atkvæða-
greiðslu að enginn ágreiningur væri
um þá efnislegu áherslu sem í tillög-
unni fælist.
„Það eru allir sammála um það á
vettvangi borgarstjórnar Reykjavík-
ur að færa nærþjónustu frá ríki til
sveitarfélaga. Hins vegar teljum við
að sú málsmeðferð sem hér er lögð
til sé ekki í samræmi við þær ákvarð-
anir sem hafa verið teknar hér eða
teknar sameiginlega á vettvangi
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Við leggjum til að tillögunni sé vísað
frá þar sem hluti þeirra ákvarðana
sem þar eru nefndar hefur þegar
verið tekinn eða er í mjög ákveðnum
farvegi,“ sagði Hanna Birna.
Vilja efla sveitarstjórnarstigið
Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingar um
verkefnaflutning frá ríkinu var felld
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Borgarstjórn Svandís Svavarsdóttir taldi tillögu Samfylkingarinnar í borg-
arstjórn vera til marks um að ríkisstjórnarflokkarnir töluðu ekki saman.
HÁSKÓLASJÓÐUR Eimskipa-
félags Íslands rýrnaði um 1,1 millj-
arð frá 30. september til 31. des-
ember. Þetta kemur fram í
greinargerð, sem fráfarandi stjórn
sjóðsins sendi frá sér í gær.
Eignir sjóðsins voru rúmir 3,3
milljarðar en voru rúmir 2,2 millj-
arðar í árslok. Stjórn Háskólasjóðs
Eimskipafélags Íslands er sam-
kvæmt stofnskrá skipuð formanni
og varaformanni bankaráðs
Landsbanka Íslands og banka-
stjóra sama banka. Sátu þeir
Björgólfur Guðmundsson, Kjartan
Gunnarsson og Halldór J. Krist-
jánsson í stjórn sjóðsins en vegna
breytinga á eignarhaldi og yf-
irstjórn bankans í október á síð-
asta ári hafa þeir nú látið af störf-
um sem stjórnarmenn í sjóðnum.
143 milljóna styrkir
Í greinargerðinni segir að á
starfstíma stjórnarinnar hafi verð-
mæti eigna sjóðsins vaxið úr um
1,2 milljörðum króna í rúma 2,2
milljarða króna. Á sama tíma hafi
sjóðurinn greitt rannsóknarstyrki
að fjárhæð 143 milljónir króna og
styrkt byggingu Háskólatorgs fyr-
ir 500 milljónir króna eða samtals
um 645 milljónir króna.
Í kjölfar kaupa nýrra kjölfestu-
fjárfesta á ráðandi hlut í Eim-
skipafélagi Íslands þann 19. sept-
ember 2003 voru gerðar
breytingar á markmiðum, tilgangi
og stjórn Háskólasjóðs Eimskipa-
félags Íslands. Markmið sjóðsins
varð að styrkja stúdenta í rann-
sóknatengdu framhaldsnámi sem
stundað er í Háskóla Íslands.
Langtíma fjárfestingarstefna
hefur haldist óbreytt frá und-
irritun samnings, 40% í innlendum
skuldabréfum, 30% í innlendum
hlutabréfum og 30% í erlendum
hlutabréfum.
Morgunblaðið/Kristinn
Háskólinn Háskólasjóðurinn
styrkti byggingu Háskólatorgsins.
Rýrnaði
um rúman
milljarð
„ÖLL mótmæli í lýðræðisríki eru
eðlileg. En þau mega ekki ganga
það langt að þau fari að snúast upp
í andhverfu sína. Þetta var mjög
sérstakur dagur og skrítið að al-
þingismönnum hafi allt að því verið
haldið í herkví inni í þinghúsinu,“
sagði Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra á
mbl.is í gærkvöldi. Hún sagði jafn-
framt að nú væri ekki rétti tíminn
til að boða til kosninga, líkt og mót-
mælendur kröfðust. „Ríkisstjórnin
verður að halda kúrs og standa í
lappirnar, en það þýðir ekki að það
verði ekki breytingar. Það er eðli-
leg krafa að það verði einhverjar
breytingar og það er eitthvað sem
menn hljóta alltaf að líta til.“
Geir H. Haarde forsætisráðherra
vildi ekki tjá sig í gærkvöldi.
„Þingmenn
í herkví“
MEÐAN fjöldi fólks safnaðist saman við þinghúsið
í gær til að mótmæla voru nokkrir drengir komnir
saman skammt frá en í allt öðrum tilgangi. Fót-
bolti átti hug þeirra allan en strákarnir eru í 6-X
og 6-M í MR. Þeir létu kuldann ekki á sig fá þar
sem þeir hlupu um ísi lagða Tjörnina.
Morgunblaðið/Ómar
Áhyggjulausir íþróttamenn
„ÉG geri engar
athugasemdir við
mótmæli. Við
þessar aðstæður
sem við erum að
berjast við, Ís-
lendingar allir, þá
er við því að búast
að í tengslum við
hinn pólitíska
vettvang láti fólk
í sér heyra. Hins vegar er alveg ljóst
að þetta hefur farið úr böndum þeg-
ar þinghúsið er grýtt og unnar eru
skemmdir á Alþingisgarðinum, þess-
ari fallegu gróðurperlu í hjarta borg-
arinnar. Þannig að ég er mjög ósátt-
ur við það,“ sagði Sturla Böðvarsson,
forseti Alþingis, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Aðspurður sagðist hann ekki eiga
von á öðru en að þingstarfið myndi
halda áfram í dag eins og ráð væri
fyrir gert. „Við erum að vinna í þjóð-
arþágu og okkur ber skylda til þess
að vinna að þeim málum sem eru
brýnust.“ Spurður hvort óskað verði
eftir auknum viðbúnaði við þingið
sagðist Sturla ekki reikna með því.
silja@mbl.is
„Geri ekki athuga-
semdir við mótmæli“
Forseti þingsins telur mótmælin þó hafa farið úr böndum
Í HNOTSKURN
»Þingfundur hefst í dag kl.13.30.
»Meðal þess sem er á dag-skrá í dag er umræða um
störf þingsins, eins og venjan
er í upphafi þingfunda.
»Einnig verða umræður utan dagskrár um stöðu
atvinnumála.
Sturla Böðvarsson
Úr átaka-
farveginum
Dagur B.
Eggertsson