Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.01.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is DÓTTURFÉLAG Glitnis í Noregi, Glitnir Bank ASA, sem var seldur á 300 milljónir norskra króna 21. októ- ber, 5,5 milljarða króna, er nú verð- metinn á um tvo milljarða norskra króna, eða um 36,5 milljarða króna. Því hefur bókfært virði bankans auk- ist um 31 milljarð króna á þremur mánuðum. Öllum megin við borðið Tryggingarsjóður innstæðueig- enda í Noregi hafði veitt Glitni í Nor- egi lánalínu upp á fimm milljarða norskra króna eftir fall bankanna á Íslandi í byrjun október til að hann gæti staðið af sér áhlaup. Heimildir Morgunblaðsins herma að nokkur hundruð milljónir norskra króna hafi þegar verið teknar út úr bankanum þegar lánalínan var skyndilega aft- urkölluð eftir fund norska Seðla- bankans, fjármálaeftirlitsins þar í landi og norska tryggingarsjóðsins. Í kjölfarið var bankinn settur í söluferli sem stjórn hans í Noregi stýrði, ekki skilanefnd Glitnis á Ís- landi. Hann var á endanum seldur til hóps 20 norskra sparisjóða. Sá sem leiddi þær viðræður fyrir hönd kaup- endanna heitir Finn Haugan, fram- kvæmdastjóri Sparebank 1 SMN sem keypti 25 prósenta hlut í bank- anum. Hann er einnig stjórnar- formaður tryggingarsjóðs innstæðu- eigenda í Noregi sem afturkallaði lánalínu Glitnis og krafðist að bank- inn yrði seldur. Heimildir Morgunblaðsins herma að skilanefnd Glitnis hafi verið kunn- ugt um þessa stöðu Haugan þegar Glitnir í Noregi var seldur. Ekki náð- ist í Árna Tómasson, formann skila- nefndar Glitnis, í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hinn norski Glitnir, sem breyttist í BN Bank um liðin áramót, var líkt og áður sagði keyptur af samtals 20 sparisjóðum. Sparebank 1 SMN keypti fjórðung, tveir sjóðir keyptu 20 prósenta hlut og einn keypti fimmtán prósent. Sextán minni sjóðir skiptu síðan á milli sín 20 prósentum. Sparebank 1 SMN hefur síðan fært virði bankans upp um 500 millj- ónir norskra króna, 9,1 milljarð króna og sjóðirnir tveir sem keyptu 20 prósent hafa fært virðið upp um 400 milljónir norskra króna, 7,3 milljarða króna. Samanlagt virði bankans í dag er áætlað um tveir milljarðar norskra króna, eða 36,5 milljarðar króna. Kaupverð 1/10 af eigin fé Samkvæmt efnahagsreikningi Glitnis í Noregi var eiginfjárstaða bankans jákvæð um 3.147 milljónir norskra króna, 57,4 milljarða króna, í septemberlok. Þegar hann var seldur þremur vikum síðar var kaupverðið, 300 milljónir norskra króna, því tíu pró- sent af eigin fé hans. Heimildir Morgunblaðsins herma að þeir sem hafi lýst yfir áhuga á að kaupa bank- ann hafi margir hverjir horfið frá þeirri hugmynd eftir að umsjón- araðili sölunar, Arctic securities, hafi sagt þeim að norsk yfirvöld myndu ekki samþykkja nýjan kaup- anda nema viðkomandi gæti lagt fram fimmtán milljarða norskra króna, 274 milljarða króna, í bak- tryggingar. Þetta var rökstutt með þeim hætti að það væri upphæðin sem þyrfti að greiða ef allir sem áttu skuldabréf í bankann myndu vilja fá endurgreitt á grundvelli eigenda- skiptaklásúlu sem væri til staðar. Á endanum var því gengið til við- ræðna við sparisjóðina og þeim boð- ið að kaupa bankann á verði sem norski viðskiptavefurinn www.DN.no kallar „ræningjakaup“. Morgunblaðið/Árni Sæberg Glitnir Norski dótturbankinn var seldur fyrir tíu prósent af eigin fé bankans. Virði hans hefur síðan verið uppfært mikið í bókum nýrra eigenda. Seldur á brot af raunvirði  Glitnir í Noregi var seldur á 5,5 milljarða króna í október  Nýir eigendur verðmeta hann nú á um 36,5 milljarða króna  Kaupverðið var tíund af eigin fé Finn Haugan, framkvæmdastjóri Sparebanken SMN, sem leiddi við- ræður sparisjóðahópsins um kaup- in á Glitni, er auk þess stjórnar- formaður tryggingasjóðs innstæðueigenda í Noregi. Hann segist ekki hafa tekið þátt í veit- ingu lánalínunnar til Glitnis á sín- um tíma þegar hún kom fyrir stjórnina. „Ég vék samstundis úr stjórninni og fékk engar upplýs- ingar um það ferli. Ég veit því ekki hversu lengi þessi lánalína átti að vera í gildi en veit þó að hún átti að vera til staðar í takmarkaðan tíma. Móðurbankinn á Íslandi þurfti að selja Glitni hér í Noregi innan ákveðins tímaramma sem var ákveðinn af norskum stjórn- völdum.“ Haugan segir ekkert vera athugavert við kaupverðið. „Það gat hver sem er boðið í þennan banka og þónokkrir gerðu það. Hæsta tilboðið var 300 milljónir.“ Hann telur heldur ekkert óeðlilegt að virði bankans hafi hækkað jafn mikið og raun ber vitni. „Vegna þeirra vandræða sem Glitnir átti í gat hann ekki stutt lengur við bankann í Noregi. Norski bankinn var hins vegar aldrei í vandræðum og allir vissu það. En þar sem móð- urfélag gat ekki stutt dótturfélag þurfti að selja dótturfélagið.“ Finn Haugan segir ekkert óeðlilegt við verðið KARLMAÐUR um fimmtugt sem játað hefur að hafa borið eld að hús- næði við Tryggvagötu sætir varð- haldi til 16. febrúar nk. Varðhald yfir honum átti að renna út í gær en lög- reglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fór fram á framlengingu á grundvelli almannahagsmuna. Fjöldi fólks bjó í húsinu sem er mikið skemmt eftir eldsvoðann. Maðurinn kveikti í með því að kasta logandi vindlingi á gólf húsnæðisins. Áður hafði hann sprautað eldfimum vökva yfir það. Maðurinn var hand- tekinn 40 mínútum eftir að eldurinn kom upp en eiginkona hans hafði margoft kvartað vegna hótana hans um íkveikju. Gæslu- varðhald framlengt ÞEIR einstaklingar sem fengu fjárhagsaðstoð hjá Félagsþjónustu Hafnarfjarðar í desember síðast- liðnum voru nær tvöfalt fleiri en á sama tíma árið áður, að sögn Sæmundar Hafsteinssonar, for- stöðumanns stofnunarinnar. „Þeim sem sóttu um aðstoð fór að fjölga strax í október og þetta hefur farið stigvaxandi síðan. Þeir sem fengu framfærslu nú í desember voru 137 en þeir voru 75 í desember 2007. Við vitum ekki hvað verður en við gerum ráð fyrir áfram- haldandi aukningu,“ segir Sæmundur. Til þess að fá fjárhagsaðstoð þarf fólk að vera í virkri atvinnuleit. „Þegar fólk fer af atvinnuleysis- bótum og er enn atvinnulaust fer það á bætur hjá okkur. Menn geta einnig fengið styrk hjá okkur ef þeir geta ekki unnið af heilsufarsástæðum,“ grein- ir Sæmundur frá. Upphæðin sem fjárhagsaðstoðin miðast við er um 115 þúsund krónur. Séu einstaklingar með bætur undir þeirri upphæð fá þeir það sem upp á vantar hjá félagsþjónustunni. „Þeir sem eru með tekjur þar yfir eiga yfirleitt ekki rétt á aðstoð nema í alveg sérstökum tilvikum,“ tekur Sæmund- ur fram. Hann segir reglurnar setja þá sem eru með þokkalegar tekjur en gríðarlegar skuldir í vanda. „Þetta setur fólk í sömu stöðu og þeir eru í sem eru tekjulitlir eða tekjulausir. Reglurnar miðast við þá tíma þegar ekki var tekið tillit til skulda fólks.“ Laun margra skjólstæðinga Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur duga ekki út mánuðinn. Þeir sem fengu matargjöf í síðustu viku voru jafnmarg- ir og við síðustu úthlutun nefndarinnar í desem- berbyrjun eða á fjórða hundrað, að því er Ragn- hildur Guðmundsdóttir, formaður nefndarinnar, greinir frá. „Við erum farnar að gera ráð fyrir þessum fjölda og jafnvel fleirum. Við erum vel settar eins og er og vonumst til þess að geta annað eftir- spurn,“ segir hún. Ragnhildur tekur það fram að margir hafi brugðist vel við og styrkt starfsemina. ingibjorg@mbl.is Tvöfalt fleiri tekjulitlir fengu fjárhagsaðstoð í Hafnarfirði  Þeir sem eru með þokkalegar tekjur en gríðarlegar skuldir fá ekki fjárhags- aðstoð  Mæðrastyrksnefnd gerir ráð fyrir fjölgun þeirra sem fá matargjafir Morgunblaðið/Golli Matarúthlutun Margir hafa styrkt starfsemina. LÖNGU og stuttu skuldabréfasjóðir SPRON hafa verið frystir frá banka- hruninu. Björg Kristinsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjá SPRON verð- bréfum, segir haft að leiðarljósi að hámarka eignir sjóðanna til að tryggja hag sjóðfélaga. Uppgjör þeirra hafi dregist þar sem óvissan sé mikil á markaðnum. Björg segist búast við því að fregna verði að vænta um stöðu sjóð- anna og þá hvort sjóðfélagar tapi af viðskiptunum fyrir mánaðamót. „Staðan verður ljósari með hverjum deginum,“ segir Björg. Spurð hvort búist sé við því að sjóðirnir rýrni bendir Björg á að aðrir peningamarkaðssjóðir hafi rýrnað. „En dreifingin gerir það að verkum að skaðinn verður minni.“ Samsetning sé önnur en á pen- ingamarkaðssjóðum bankans en rýrnunin þar var tæp 14,5%. gag@mbl.is Sparifé enn fryst hjá SPRON ÓLAFUR F. Magnússon borg- arfulltrúi lagði til á fundi borg- arstjórnar í gær að sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu yrðu sameinuð. Í til- lögunni fólst að borgaryfirvöld í Reykjavík leituðu eftir viðræðum við bæjaryfirvöld í Kópavogi, á Seltjarnarnesi og í Mos- fellsbæ um sameiningu í eitt sveitar- félag. Ólafur kvaðst lengi hafa beitt sér fyrir sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ólafur F. Magnússon Sveitarfélög verði sameinuð LÖGREGLAN stöðvaði kannabis- ræktun í húsi við Laugardalinn um miðjan dag í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 10 kannabisplöntur á lokastigi rækt- unar. Á sama stað var lagt hald á nokkra gróðurhúsalampa. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að aðgerðin hafi verið liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkni- efna. Minnt er á fíkniefnasímann, 800-5005, en í hann má hringja nafn- laust til að koma á framfæri upplýs- ingum um fíkniefnamál. Fíkniefna- síminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Upprættu kannabisrækt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.